Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 15.05.1979, Qupperneq 19
svonefnd verkfallsathvörf, þar sem haldnir voru fundir
jafnvel daglega til þess að kynna mönnum það, sem væri
að gerast. í Reykjavík voru slíkir fundir haldnir reglu-
bundið hjá Starfsmannafélagi ríkisstofnana á Hótel Esju,
sömuleiðis hjá kennarasamtökunum að Hallveigastöðum,
í Hafnarfirði í hjálparsveitarhúsinu og sömuleiðis var
haldið uppi skrifstofum hjá Starfsmannafélagi Reykja-
víkurborgar og Keflavík, Kópavogar og víðar á land-
inu. Eitt af því sem varð mjög áberandi var sambands-
leysi úti á landi og kom í ljós að það háði mjög vmsri
framkvæmd verkfallsins að það skorti tilfinnanlega upp-
lýsingar um, hvað raunverulega var að gerast vegn
símasambandsleysis.
Yerkfallssjóður skapast
Þegar verkfallið hafði staðið í nokkra daga, sam-
þykkti samninganefnd BSRB að koma upp styrktarsjóði
vegna verkfallsins. Fjár skyldi aflað með a) almennri
fjársöfnun b) frjálsum framlögum þeirra opinberra starfs-
manna, sem væru í starfi meðan á verkfalli stæði.
Styrkur skyldi veittur þeim félagsmönnum BSRB, sem
ættu í verulegum fjárhagserfiðleikum, sem stafaði af
verkfallinu og færi eftir tekjum og fjölskyldustærðum.
Sérstök sjóðstjórn var ætlað að stjórna bæði fjáröflun
og úthlutun og formaður hennar var Kristín Tryggva-
dóttir, ritari BSRB. Var í fréttatilkynningu til dagblaða
óskað eftir umsóknum til skrifstofu bandalagsins.
Ýmis félög brugðu mjög skjótt við og kom hæsta fjár-
hæðin frá Hjúkrunarfélagi íslands, 1 milljón, Sjúkra-
liðafélag íslands gaf 500 þús., Lögreglufélag Suðurnesja
300 þús., Félag flugmálastarfsmanna 200 þús. og Félag
háskólamenntaðra kennara gaf 200 þús. og BHM beitti
sér jafnframt fyrir verulegri söfnun á vinnustöðum.
Frá einstaklingum innan vébanda BSRB barst all-
mikið fé, einkum sýndu fangaverðir, lögreglumenn, starfs-
fólk Pósts og síma og félagar SFR frá heilbrigðisstofn-
unum lofsvert framtak og söfnuðu drjúgt á vinnustað.
Utan BSRB bárust ýmis framlög, má þar nefna að Félag
flugumferðastjóra gaf 150 þús., Félag ísl. rafvirkja 100
þús., Iðjuþjálfafélag íslands 100 þús. og blaðamenn Þjóð-
viljans gáfu ein daglaun hver. Hæsta framlag frá ein-
staklingi nam 110 þús. og næsthæsta 63 þús. í verk-
fallinu söfnuðust á 8. milljón og munu reikningar verk-
fallssjóðs verða kynntir á þingi BSRB, en greiddir
styrkir skiptust þannig að 107 einstaklingar úr 10 félög-
um fengu rúmlega 3 millj. kr. (Sjá bls. 25 í Ásgarði 1. tbl.
1978).
4. KAFLI
VINNUSTÖÐVUN
I. 06 2. MARS1978
Sarmtaða með ASÍ o. fl.
Innan verðbólgunefndar þeirrar, sem ríkisstjórn hafði
skipað og frá segir í 5. kafla í þessari skýrslu, hafði
myndast samstaða með fulltrúum ASÍ og BSRB, sem
skiluðu minnihlutatillögum ásamt fulltrúum Alþýðu-
bandalagsins, Alþýðuflokksins og Samtaka frjálslyndra
og vinstri manna. Þessi samstaða ASÍ og BSRB hélt
áfram og fleiri samtök launafólks bættust í hópinn.
Þegar frumvarp ríkisstjórnar sá dagsins ljós, hélt BSRB
formannaráðstefnu, sem lagðist eindregið gegn kjara-
skerðingu þeirri, er í frumvarpinu fólst. Sagði m. a. í
samþykktum ráðstefnunnar þann 15. febr. 78.
„Ef nauðsyn krefur og samstaða næst við önnur
launþegasamtök um aðgerðir, felur formannaráðstefnan
stjórn BSRB að gangast fyrir víðtækri þátttöku félags-
manna Bandalags starfsmanna ríkis og bæja í þeim. —
Komi til vinnustöðvunar, er stjórn bandalagsins falið að
taka þátt í stjórnun hennar af þess hálfu.“
Samstarfsnefnd launafólks hélt daglega fundi. Voru
í henni fulltrúar frá BSRB, ASÍ, Farmanna- og fiski-
mannasambandi, Sambandi bankamanna, BHM og
Iðnemasambandinu. Nefndin lét gera dreifimiða um
kjaraskerðinguna og var hann prentaður í 60 þúsund
eintökum og dreift um allt land. Var hann undirritaður
af ASÍ, BSRB, FFSÍ, SÍB og BHM.
Þá voru haldnir rúmlega 20 fundir utan Reykjavíkur
á vegum samstarfsnefndar. Ræðumenn voru frá ASÍ og
BSRB og auk þess frá öðrum á nokkrum stöðum.
Fljótlega var tekið að ræða aðgerðir gegn lögunum og
voru ýmsar hugmyndir uppi. Má þar nefna t. d. skæru-
verkföll, staðbundnar vinnustöðvanir og allsherjarverk-
fall, er stæði í einn eða fleiri daga, eða jafnvel ótíma-
sett. Eftir miklar umræður var ákveðið að flytja tillögu
í stjórnum allra samtakanna um, að hvetja félagsmenn
til að leggja niður vinnu dagana 1. og 2. mars. Var það
samþykkt af öllum nema bankamönnum.
Ávarp stjórnar BSRB
Stjórn BSRB sendi frá sér ávarp af þessu tilefni þann
23. febrúar, þar sem m. a. sagði:
„Þar sem meirihluti Alþingis virti að vettugi allar
ASGARÐUR
19