Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 15.05.1979, Side 24
málum og ný stefna í fjárfestingar- og lánamálum."
f því skyni að koma föstu formi á þetta samráð og
samstarf, hafa þrír ráðherrar verið kjörnir til þess að
taka þátt í því að annast það af hálfu ríkisstjórnarinnar.
Eru það þeir Tómas Árnason, fjármálaráðherra, Kjartan
Jóhannsson, sjávarútvegsráðherra, og Svavar Gestsson,
viðskiptaráðherra.
Þess er hér vinsamlegast farið á leit við yður, að þér
tilnefnið af yðar hálfu fulltrúa til þess samráðs og sam-
starfs, sem hér hefur verið fjallað um.
Ólafur Jóhannesson,
Guðm. Benediktsson.
Nokkrir fundir voru haldnir í framhaldi af þessu, en
vart er hægt að segja að samráð þetta hafi borið nokk-
urn ávöxt. Stjórn BSRB tilnefndi sex fulltrúa til að taka
þátt í samráðsfundum þessum, en þeir voru Kristján
Thorlacius, Hersir Oddsson, Haraldur Steinþórsson, Einar
Ólafsson, Kristín H. Tryggvadóttir og Örlygur Geirsson.
Yísifölunefnd
26. september 1978 skipaði ríkisstjórn svonefnda Vísi-
tölunefnd til að gera tillögur um endurskoðun viðmið-
unar launa við vísitölu.
f nefndina voru skipaðir, auk Jóns Sigurðssonar, hag-
rannsóknarstjóra, sem var formaður hennar, 2 fulltrúar
frá ASÍ, 2 frá VSÍ, 1 frá Vinnumálasambandi samvinnu-
félaganna, 1 frá BSRB, 1 frá BHM, 1. frá FFSÍ og 1 frá
samninganefnd ríkisins í launamálum. Var Haraldur
Steinþórsson, framkv.stj. BSRB, skipaður af hálfu þess,
en auk þess skipaði stjórn fjögurra manna undirnefnd.
f henni sátu:
Ágúst Geirsson, FÍS.
Jónas Jónasson, Landssambandi lögreglumanna.
Sigurveig Sigurðardóttir, Hjúkrunarfél. íslands.
Örlygur Geirsson, Fél. starfsm. stjórnarráðsins.
Með nefndinni starfaði Björn Arnórsson, hagfræðing-
ur BSRB. Hélt nefndin fjölmarga fundi þar sem tillögur
og gögn voru unnin, rædd og undirbúin fyrir fundi
vísitölunefndar og stjórnar BSRB.
Þegar frá upphafi var gott samstarf milli fulltrúa ASÍ,
BSRB og FFSÍ í nefndinni og unnu hagfræðingar BSRB
og ASÍ saman að gagnaöflun.
Á tímabilinu fram til 17. nóvember hélt nefndin 10
fundi.
17. nóv. lagði Jón Sigurðsson formaður Vísitölunefndar-
innar fram tillögur, sem hann dró saman á eftirfarandi
hátt:
1. Nýr grunnur verði lagður að vísitölu framfærslu-
kostnaðar á næsta ári.
2. Breytingar á sköttum og niðurgreiðslum hafi ekki
áhrif á verðbótavísitölu. Meðferð á áfengis- og
tóbaksverðsbreytingum haldist óbreytt.
3. Búvörufrádráttur haldist eða í hans stað komi al-
mennur frádráttur, sem nemi ákveðnu hlutfalli af
hækkun framfærsluvísitölu hverju sinni.
4. Ákvæði um verðbótaauka verði tekin til sérstakrar
endurskoðunar, en fyrst um sinn verði hann felldur
inn í fastar verðbætur á núverandi stigi.
5. Rýrni viðskiptakjör þannig, að innflutningsverð
hækki umfram útflutningsverð, skal ekki verðbæta
laun sem því nemur. Batni viðskiptakjör að nýju
á samningstímanum, kæmi til hækkunar verðbóta í
áföngum, þegar fyrra viðskiptakjarastigi er örugg-
lega náð innan þeirra marka.
6. Verðbætur greiðist sem hlutfallslegar bætur eins á
öll laun ef ein regla á að gilda fyrir alla í þessu efni.
7. Verðbætur greiðist á sex í stað þriggja mánaða fresti
fyrst um sinn.
8. Fari verðbætur fram úr ákveðnum umsömdum mörk-
um á næsta ári, falli það, sem umfram er, niður eða
renni í bundinn sjóð.
Drög að tillögum þessum höfðu verið rædd í nefnd-
inni og lét fulltrúi BSRB bóka sérstaklega á 7. fundi
nefndarinnar 10. nóv. eftirfarandi:
„Samningar BSRB og ráðherra eru í gildi til 1. júlí n.k.
Ég hef ekki sem tilnefndur af BSRB neitt umboð til að
gera hér tillögur um breytingar á gildandi vísitöluákvæð-
um miðað við 1. des. n.k.“
Fulltrúar BSRB, ASÍ og FFSÍ létu auk þess bóka eftir-
farandi sameiginlega yfirlýsingu:
„Við leggjum áherslu á, að það er ekki verkefni nefnd-
arinnar að gera tillögur um hvað gert skuli 1. desember.
Nefndin hefur rætt allar helstu tillögur, sem fram hafa
komið á undanförnum árum, um breytingar á vísitölu-
kerfinu, og umræður standa nú um verðbótaauka, fyrir-
komulag skatta í vísitölukerfinu og hvort taka megi tillit
til breytinga viðskiptakjara í verðbótarvísitölu. Við lýs-
um okkur reiðubúna til áframhaldandi umræðna um
þessi atriði. Jafnframt er okkur ljóst að þeim umræðurn
verður ekki lokið fyrir 20. nóvember n.k. og lengri tími
er nauðsynlegur, ef nefndin á að láta frá sér fara til-
lögur um þessi atriði. Við höfum innan nefndarinnar
gert fjölmargar athugasemdir við drög þau, sem rædd
hafa verið á fundunum, svo og lýst andstöðu við ákveðin
atriði þeirra.
Á þessu stigi máls teljum við þó ekki rétt að gera sér-
staka grein fyrir sjónarmiðum okkar.“
Rétt er að geta þess, að fulltrúar VSÍ töldu ekkert
svigrúm til nokkurra verðbóta, en fulltrúi samninganefnd-
ar ríkisins stóð að hugmyndum Jóns Sigurðssonar.
Desemberlögin - mófmæii BSRB
l.desember 1978 komu til framkvæmda lög um tíma-
bundnar ráðstafanir gegn verðbólgu. Samkvæmt beim
voru aðeins greiddar út 6.12% verðbætur í stað 14.13%.
24
ASGARÐU R