Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 15.05.1979, Side 27
Tillögur BSRB
26. okt. 1978 voru af hálfu BSRB settar fram þessar
tillögur um samningsréttinn. Tillögurnar voru lagðar fram
í samningsréttarnefndinni:
1. Fellt verði niður ákvæði um samningstímabil, sem
framvegis verði þá samningsatriði.
2. Kjaranefnd verði lögð niður. Verkfallsréttur gildi um
sérsamninga aðildarfélaga BSRB.
3. Kjaradeilunefnd verði lögð niður. BSRB veiti nauð-
synlegar undanþágur.
4. Lögin verði látin ná til þeirra stofnana, sem fá fé
til greiðslu launa frá hinu opinbera (ríki og/eða)
sveitarfélögum.
Viðræður um samningsréttinn gengu mjög erfiðlega og
segja má að lengi vel hafi ekki verið samkomulag milli
fulltrúa ríkis og BSRB nema 1. liðinn. Ríkisstjórnin var
frá upphafi reiðubúin að breyta því ákvæði í lögunum.
Eftir áramótin komst nokkur skriður á samningavið-
ræður, en þær strönduðu á ný eftir fund 18. jan. s.l.
Viðræður lágu niðri fram til miðs marsmánaðar. Sjá
nánar um einstaka þætti þessa máls í 5. og 6. tbl. Ásgarðs
1978 og 1. tbl. 1979.
Samkomuíagið
Stjórn og samninganefnd BSRB héldu sameiginlega
fund 20. mars s.l. til að fjalla um uppsögn gildandi
samninga.
Fundinum bárust skilaboð frá fjármálaráðherra með
ósk um, að haldið yrði áfram umræðum um samnings-
réttarmálin. Að loknu fundarhléi voru samþykkt drög að
slíku samkomulagi sem sex manna nefnd BSRB skyldi
hafa sem veganesti í viðræðum við samráðsnefnd ríkis-
stjórnarinnar.
Næstu tvo daga voru stöðugir viðræðufundir við ráð-
herranefndina.
Umræður urðu mjög mikiar og ýtarlegar í samninga-
nefndinni um einstaka þætti þeirra tillagna, sem gengu
milli samningsaðilanna.
Samkomulag það, sem 6 manna nefndin lagði fram að
lokum, var samþykkt á sameiginlegum fundi stjórnar og
samninganefndar 22. mars s.I. með 48 atkvæðum gegn
tveimur, 5 sátu hjá.
Samkomulagið, sem var undirritað 23. mars s.l. með
þeim fyrirvara að það yrði samþykkt í allsherjarat-
kvæðagreiðslu félagsmanna BSRB, fer hér á eftir í heild.
SAMKOMULAGIÐ
Fjármálaráðherra f. h. ríkissjóðs og Bandalags
starfsmanna ríkis og bœja hafa náð samkomu-
lagi um eftirfarandi:
1. Ríkisstjórnin beiti sér fyrir eftirfarandi efnisbreyting-
breytingum & lögum nr. 29/1976 um kjarasamninga
Bandalags starfsmanna ríkis og bæja:
a. Fellt verði niður úr lögum ákvæði um tveggja ára
lágmarks samningstímabil, en lengd samnings-
tímabils verði framvegis samningsatriði.
b. BSRB fer með gerð aðalkjarasamninga fyrir ríkis-
starfsmenn. Á sama hátt fara félög bæjarstarfs-
manna með gerð aðalkjarasamninga við hlutaðeig-
andi sveitastjórnir.
c. Hvert aðildarfélag BSRB fer með gerð sérkjara-
samninga, það er um skipun starfsheita og manna
í launaflokka. Þeir samningar gilda í 3 ár. Ef sér-
kjarasamningar takast ekki, skulu aðildarfélögin
hafa verkfallsrétt, enda verði verkfall þá boðað
samtímis og frá sama tíma hjá öllum aðildarfélög-
um BSRB, sem verkfall ætla að boða. Heimilt skal
félögum í stað verkfallsboðunar að vísa ágreiningi
skv. þessum lið til þriggja manna gerðardóms, þar
sem samningsaðilar skipa sinn mann hvor o<-
Hæstiréttur formann. Á sama hátt getur ráðherra
eða sveitarstjórn sem segir upp samningi einhliða
lagt á verkhann eða skotið einstökum málum af
þessu tagi til gerðardóms. Til gerðardóms má
skjóta málum einstaklinga á samningstímabili
vegna nýráðinga og breytinga á störfum. Ákvæði
þessa liðar taki gildi 1. sept. 1980.
d. Nefndarmönnum í Kjaradeilunefnd verði fækkað
úr 9 í 5. Fjármálaráðherra skipi tvo, BSRB tvo
og Hæstiréttur einn, sem sé formaður. Gildandi
ákvæði í lögum, þar sem kveðið er á um hverjir
ekki megi fara í verkföll til að haldið verði uppi
nauðsynlegri öryggisgæslu og heilsugæslu verði
gerð skýrari.
e. Lögin nái til hálfopinberra stofnana, m. a. þeirra
sem fá fé til greiðslu launa frá ríki eða sveitar-
félögum að meginhluta. Ákvæði um þetta verði
sett með lögum eða reglugerð eftir því sem þörf
krefur að athuguðu máli.
2. Jafnframt því sem ríkisstjórnin beitir sér fyrir ofan-
greindum breytingum á samningsréttarlögum BSRB
nr. 29/1976, samþykkir samninganefnd BSRB fyrir
sitt leyti að falla frá þeirri 3% grunnkaupshækkun,
er taka átti gildi 1. apríl n.k. Samkomulag þetta er af
báðum aðilum undirritað með þeim fyrirvara að það
verði samþykkt í ailsherjaratkvæðagreiðslu félags-
manna BSRB.
Reykjavík, 23. mars 1979.
Fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs.
Tómas Árnason.
F.h. Bandalags starfsmanna ríkis og bæja.
Kristján Thorlacíus. Einar Ólafsson.
Örlygur Geirsson. Kristín H. Tryggvadóttir.
Hersir Oddsson. Haraldur Steinþórsson.
ÁSGARÐUR
27