Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 15.05.1979, Page 32
8. KAFLI
MUNAÐARNES
OG ORLOFSFERÐIR
Framkvæmdir að MunaSarnesi
Á árinu 1977 var lokið framkvæmdum við stækkun
veitingaskálans að Munaðamesi.
Annars vegar er um að ræða viðbyggingu, þar sem
nú er aðalinngangur í veitingahúsið og afgreiðsla þar
sem dvalargestir fá lylda að húsunum, sængurfatnað og
annað, sem tilheyrir. í þessari viðbyggingu er aðstaða
fyrir þá þjónustu og upplýsingar, sem umsjónarmaður og
aðstoðarmenn hans veita og skrifstofa umsjónarmanns.
f stóru og rúmgóðu andyri eru fatahengi og símasjálf-
sali. Einnig er þar komið fyrir stólum og borðum fyrir
þá, er bíða þurfa eða staldra við til skrafs og ráðagerða.
í þessari viðbyggingu eru einnig snyrtiherbergi hússins.
Þá hefur verið fullgerður veitingasalur í álmu, sem
til þeirra nota var reist á árinu 1973, en var skil-
rúmuð og notuð til annars vegna fjárskorts fyrst sem
íbúðir og mötuneyti starfsmanna er unnu við framkvæmd-
ir. Síðar var afgreiðslan flutt þangað til bráðabirgða, en
vorið 1977 var sú bygging tekin í notkun sem veitinga-
og fundarsalur.
Þegar þessar breytingar voru gerðar á veitingaskálan-
um, var tekið tillit til þeirra, sem þangað komu í hjóla-
stólum. Bæði með dyrum beint inn í nýja veitingasalinn
og sérstöku rúmgóðu snyrtiherbergi.
Þá var einu orlofshúsa Starfsmannafélags ríkisstofnana
breytt og þar gerð aðstaða fyrir fatlað fólk. Jafnframt
er samkomulag um, að önnur félög BSRB fái þetta til-
tekna hús leigt, ef á þarf að halda, í skiptum fyrir annað
hús.
í smíðum er nýtt hús fyrir starfsmenn, en viðbótar-
húsnæði vantaði tilfinnanlega fyrir starfsmenn. Þetta hús
er um 80 ferm. að stærð og verður væntanlega fullbúið
snemma sumars 1979.
Viðbótarvatnsveita hefur verið lögð frá vatnsbóli í
landi Litla-Skarðs. Gerði BSRB samning um samstarf
um vatnsveitu að Varmalandi og Munaðarnesi. Eldri
vatnsveitan verður notuð áfram sem varaveita fyrir báða
staðina og til eflingar brunavarna. Verða í sumar reistir
vatnstankar í sambandi við eldri vatnsveituna, sem taka
um 70 tonn af vatni og verða eingöngu notaðir til bruna-
varna.
BSRB kaupir Stóru-Skóga
J júlímánuði 1978 var auglýst til sölu jörðin Stóru-
Skógar í Stafholtstungum, en hún er nágrannajörð þess
lands, sem BSRB hefur á leigu í Munaðarnesi og
Stóru-Gröf vegna orlofsheimilanna.
Land jarðarinnar Stóru-Skóga er um 300 hektarar. Er
landið tilvalið útivistarsvæði fyrir dvalargesti orlofsbúð-
anna. Hluti af Hólmavatni tilheyrir jörðinni.
Kaupverðið var 36 milljónir og hefur þegar verið
greitt að fullu.
Til þess að unnt væri að greiða kaupverð jarðarinnar
innan árs frá undirskrift kaupsamnings, var fengið 20
rnillj. kr. lán hjá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins.
Reksfur veitingaskálans
Sumarið 1977 var tekið upp nýtt rekstrarform á veit-
ingaskálanum í Munaðarnesi, hliðstætt því sem tíðkast
á Edduhótelunum.
Ingólfur Pétursson, fulltrúi á Ferðaskrifstofu ríkisins,
hefur um árabil haft yfirumsjón með rekstri Eddu-
hótelanna, og hann hefur tekið þar upp þetta breytta
rekstrarform.
Ingólfur Pétursson og Stefanía Gísladóttir, kona hans,
sem um árabil var forstjóri eins af Eddu-hótelunum, tóku
að sér að endurskipuleggja reksturinn.
Hefur fengist sama reynsla af þessu nýja rekstrarformi
og hjá Edduhótelunum, að hallarekstur er úr sögunni.
Og annað, sem er mjög ánægjulegt, að hið nýja rekstrar-
form veitir starfsfólkinu góð launakjör.
Sumarið 1979 er hið þriðja, sem Stefanía Gísladóttir
veitir veitingahúsinu að Munaðamesi forstöðu.
Starfræksla verslunarinnar var með sama hætti og ver-
ið hefur.
Reksfur orlofsheimifanna
Rekstur orlofsheimilanna að Munaðarnesi hefur verið
með sama hætti og áður. Eftirspum eftir vikudvöl hefur
verið mikil og hjá sumum félögum er meiri eftirspurn
en unnt er að fullnægja. Sumarið 1977 voru skiptidagar
fyrir vikuleigu færðir á föstudaga, og gefur það góða
raun.
Utan orlofstímabilsins em húsin leigð til dvalar fyrir
félagsmenn og aðra. Einnig hefur það farið í vöxt, að
Munaðarnes er leigt út yfir vetrarmánuðina fyrir fundi
og ráðstefnur.
Umsjónarmaður að Munaðarnesi hefur verið frá upp-
hafi Þórður Kristjánsson og kona hans Hrafnhildur Ingi-
bersdóttir hefur einnig lagt þar mikið starf af mörkum.
Eftirfarandi upplýsingar um rekstur orlofsheimilanna
gefa hugmynd um afkomuna skv. rekstursreikningi full-
trúaráðs orlofsheimilanna s.l. þrjú ár. Hvert það félag,
32
ASGARÐUR