Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 15.05.1979, Síða 33
sem hefur umráðarétt yfir húsi greiðir vegna reksturs-
ins ákveðna upphæð pr. hús, en fær í staðinn leigutekjur
frá miðjum maí til miðs september. Síðan fær fulltrúa-
ráðið allar leigutekjur yfir veturinn.
Greiðsla Leiga Hagnaður
félaga v/húsa að vetri eða halli
1976 10.6 millj. 1.4 millj. -h 458 þús.
1977 13.8 millj. 2.8 millj. + 558 þús.
1978 22.1 millj. 5.0 millj. -v- 1.432 þús.
Leigugjöld á viku hafa verið sem hér segir:
Stærri húsin (6—8 svefnstæði).
Vor og Júnílok Helgareiga
haust — ágúst að vetri
1976 9.000 12.000 4.500
1977 11.000 15.000 6.000
1978 18.000 24.000 10.000
1979 23.000 30.000 13.000
Minni húsin (1 svefnherbergi).
Vor og Júnílok Helgareiga
haust — ágúst að vetri
1976 6.000 8.000 3.200
1977 8.000 11.000 4.000
1978 13.000 17.000 6.500
1979 17.000 22.000 8.000
Stjórn fulltrúaráðs orlofsheimila
Samkvæmt reglugerð um orlofsheimili BSRB er
stjórn fulltrúaráðsins kosin til þriggja ára að afloknu
bandalagsþingi
Stjóm BSRB tilnefnir þrjá í stjórn og eru þeir:
Kristján Thorlacius, sem er formaður, Einar Ólafsson
(SFR) og Hersir Oddsson (Rvíkurborg). Aðalfundur
fulltrúaráðsins, sem haldinn var 24. febrúar 1977 kaus
svo tvo meðstjórnendur þau Boga J. Bjarnason (Lögrf.
Rvík) og Helgu Riohter (LSFK). Varamenn voru kjörn-
ir Friðþjófur Sigurðsson (Hafn.) og Sindri Sigurjónsson
(Póstm.fél.). — Endurskoðendur fulltrúaráðsins voru í
tvö ár Bjarni Ólafsson (FÍS) og Magnús Á. Bjarnason
(Kópav.). Síðasti aðalfundur (1979) kaus sem endur-
skoðendur Guðrúnu Jörundsdóttur (Kópav.) og Alex-
ander Guðmundsson (FÍS) og til vara Þorgeir Runólfs-
son (Tollv.).
Orlofsferðir
Á undanförnum árum hefur BSRB leitast við að semja
við ferðaskrifstofur um afslátt í ýmsum ferðum fyrir fé-
lagsmenn. Á seinni árum hefur sífellt verið meiri vand-
kvæðum bundið að fá verulegan afslátt, sérstaklega um-
fram þann, sem ferðaskrifstofur veita almennt vegna sam-
keppni.
Sumarið 1977 gerði bandalagið leigusamning við Arn-
arflug um tvær Kaupmannahafnarferðir og seldist fyrri
ferðin nær alveg upp, og í síðari ferðinni var yfirfullt. Þá
buðu Samvinnuferðir 6000 króna afslátt í sólarlanda-
ferðum sumarið 1977. Um haustið var á sama hátt um
leiguflug að ræða til Dublin á írlandi og London, og seld-
ist hvorutveggja upp og var þá bætt við annarri Lund-
únarferð síðar.
Árið 1978 voru endurteknir leiguflugsamningar við
Arnarflug og þá um tvær ferðir. Þá reyndist lítil aðsókn
að fyrri ferðinni, en síðari fylltist alveg. Samvinnuferðir
buðu 10.000 króna afslátt á tilteknum ferðum á Spán og
Júgóslavíu. Sömuleiðis var boðið upp á sérstaka írlands-
ferð.
í sumar hafa Samvinnuferðir gert tilboð fyrir BSRB
félagsmenn um tvær ferðir. Er þar um að ræða leiguflug
til Kaupmannahafnar 25. júní til 16. júlí og er áætlað
verð fyrir fullorðna 58.500 kr. Svo mikil aðsókn var að
þessari ferð, að það seldist upp á svipstundu og þegar
þetta er ritað þá var biðlistinn orðinn meiri en í eina
vél. Hin ferðin var 9 daga ferð til Bergen 24. júlí. Aðsókn
þar hefur verið nokkur en þó ennþá of dræm.
Þá hafa verið kynntar í Ásgarði ferðaáætlanir Sam-
vinnuferða á þessu sumri, og er búið að ganga frá
hver afsláttur verður til félagsmanna innan BSRB sér-
staklega.
Verður 15 þús. kr. afsláttur veittur á allmörgum ferð-
um til Júgóslavíu og Costa del Sol, og einnig verður sami
afsláttur á dvöl í orlofshúsum í Danmörku.
Hlufafé í Samvinnuferðum
Þegar þing bandalagsins var haldið árið 1976, var
rætt um aðild að ferðaskrifstofum, en bandalaginu hafði
þá verið boðin aðild að tveim ferðaskrifstofum þ. e. a. s.
Samvinnuferðum og Landsýn. Þingið ákvað að taka ekki
afstöðu til þessa máls að svo stöddu, en leita hins vegar
eftir að ná sem hagkvæmustu kjörum um orlofsferðir.
Skömmu síðar var tekin upp bein samvinna milli Sam-
vinnuferða og Landsýnar og stóð það í rúmt ár, og á ár-
inu 1978 þá varð það úr, að þessar tvær ferðaskrifstofur
voru sameinaðar og heita nú Ferðaskrifstofan Samvinnu-
ferðir—Landsýn h.f. BSRB var þá boðið að tilnefna einn
af stjórnarmönnum í ferðaskrifstofunni og jafnframt
gefinn kostur á að gerast hluthafi. Hlutafé nýja félags-
ins var við sameininguna 65 milljónir og var samþykkt
heimild til að auka það um 35 milljónir. Stjórn banda-
lagsins samþykkti að kaupa 1 milljón króna hlut í hinu
nýja hlutafélagi.
Það er mjög þýðingarmikið í sambandi við möguleika
ferðaskrifstofunnar Samvinnuferðir—Landsýn h.f. til að
bjóða félagsmönnum betri kjör, að viðskiptum sé beint
þangað í eins miklum mæli og frekast er kostur. Gildir
það jafnt um viðskipti félagsmanna sem einstaklinga,
svo og einstakra bandalagsfélaga, sem talsvert gera af því
að semja um ferðir innanlands og utan fyrir sína félags-
ÁSGARÐUR
33