Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 15.05.1979, Qupperneq 36
ráðuneytis, að ríkið taldi að það gæti einhliða tekið
ákvörðun um öll launakjör þessa fólks og þ. á m. röðun
þess í launaflokka. BSRB taldi hins vegar að þessir að-
ilar fullnægðu því ákvæði kjarasamningalaganna og kjara-
samnings að vera í hálfu starfi eða meira. Það skipti
ekki máli, hvort samningsráðningin næði yfir skemmri
eða lengri tíma.
Málflytjandi ríkisins gerði þá aðalkröfu fyrir Félags-
dómi, að málinu yrði vísað frá dómi, þar sem að það
tilheyrði almennum dómstólum en ekki Félagsdómi. Vara-
krafa var hins vegar að fjármálaráðherra væri sýknaður
af öllum kröfum. Mál þetta hefur þegar verið flutt fyrir
Félagsdómi, en dómur var ekki uppkveðinn, þegar skýrsla
þessi var samin.
8. Viðurkenning starfsaldurs hjó öðrum
en ríkinu
BSRB hefur höfðað mál fyrir Félagsdómi vegna starfs-
tíma. Krafan er að starfstími hjá öðrum en hinu opin-
bera skuli jafngilda 6 ára starfsaldri skv. kjarasamningi.
Viðkomandi ráðuneyti (menntamálaráðuneyti) hafði fall-
ist á við gerð ráðningarsamnings, að þessi starfstími væri
tekinn til greina, en því var hins vegar synjað af fjár-
málaráðuneytinu. Dómur lá ekki fyrir í máli þessu,
þegar skýrslan var samin.
Samsffarfsnefnd BSRB og fjármála-
ráðherra
í lögunum um kjarasamninga bandalags starfsmanna
ríkis og bæja er gert ráð fyrir því að stofnuð skuli
samstarfsnefnd og að BSRB tilnefni í hana 2 menn og
fjármálaráðherra 2. Hlutverk þessarar nefndar er sam-
kvæmt lögum það, að stuðla að samræmingu á fram-
kvæmd laga þessara. Þá skal leggja fyrir nefndina deilu-
mál, sem upp kunna að rísa. Verði samkomulag í sam-
starfsnefnd um atriði, skal það bindandi fyrir báða
aðila. Samstarfsnefnd hélt sinn fyrsta fund í septemtr
1976. Af hálfu BSRB hafa alla tíð átt sæti f nefndim
Kristján Thorlacius og Haraldur Steinþórsson, en af
hálfu fjármálaráðuneytisins Höskuldur Jónsson og Þor-
steinn Geirsson, og síðar í stað Höskuldar, Baldur Möller.
Starfsmenn nefndarinnar hafa verið þeir Guðmundur
Karl Jónsson, fjármálaráðuneyti og Gunnar Eydal o"
síðar Baldur Kristjánsson frá BSRB. Einar Ólafsson er
varamaður í nefndinni.
Fyrir nefndina, sem haldið hefur 27 fundi, hafa alls
verið lögð 38 mál af hálfu BSRB. Auk þess hafa komið
fyrir nefndina fjölmargar óformlegar fyrirspurnir á báða
bóga og þar hafa átt sér stað umræður um einstaka
þætti kjarasamninga og um ýmis framkvæmdaatriði.
Um ágreiningsmál fyrir samstarfsnefnd má lesa sér til
í eftirtöldum heftum Ásgarðs:
f 4. tbl. 1976:
Um lágmarkshvíld
— frídaga vaktavinnumanna
— greiðslu staðgengilsstarfa
— útfærslu á orlofslengingu
— vetrarorlof
— hvort atvinnurekandi skuli greiða fyrir læknis-
vottorð
— yfirvinnu vaktavinnumanna í veikindum
— framkvæmd greiðslu yfirvinnukaups
— yfirvinnukaup lausráðinna og ágreiningsmál
—• það hvernig búa skuli að símamönnum í útilegum.
1 1. tbl. Ásgarðs 1978:
Um hvernig greiða skuli vinnu í verkfalli (sjá einnig
um þetta í Huga 12. tbl. 2. árg.)
— hvernig skilja beri ákvæði aðalkjarasamnings um
flokkatilfærslu milli launaflokka 1—5,
— 8 stunda lágmarkshvíldina
— fæðispeninga
I 3. tbl. Ásgarðs 1978:
Um hvort orlof skuli skert vegna verkfallsins (svo
varð ekki)
— breytingu á ráðningarsamningi án samráðs við
starfsmann
— starfsaldurshækkun
— almennt um meðferð ráðningasamninga
í 5. tbl. Ásgarðs 1978:
Um launalaust leyfi í stað veikindaleyfis
— bætur fyrir hattmissi opinbers starfsmanns
— hvernig greiða skuli, þegar unnið er í sumarleyfi
—• réttindi sumarafleysingarfólks
í 7. tbl. Ásgarðs 1978:
Um hvort tiltekið starfsfólk við heilbrigðisþjónustu og
víðar skuli teljast dagvinnufólk eða vaktavinnu-
fólk
— hvort greiða skuli orlofslaun eða orlofsfé í til-
teknu tilviki
— hvort lögskráðir sjómenn geti fallið undir sömu
starfsgrein og verkstjórar í landi
í 2. tbl. Ásgarðs 1979:
í samstarfsnefnd voru samþykktar reglur um fæðis-
peninga og mötuneyti í skólum
um 12 daga gæsluvaktafrí, 16 daga frí,
— 50 mín. reglu.
í 3. tbl. Ásgarðs 1979:
Þar er birt samkomulag sem tókst í samstarfsnefnd
um það að þær konur sem hafa starfað hjá ríkinu í 6
mánuði skuli fá barnsburðarleyfi.
Barnsburðarleyfismál hafa verið mjög áberandi á nær
öllum fundum samstarfsnefndar.
36
ÁSGARÐU R