Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 15.05.1979, Blaðsíða 37
10. KAFLI
ÝMIS MÁL
Lífeyrissjóðsmál
Síðasta þing BSRB lýsti fullum stuðningi við þá rétt-
lætiskröfu, að öllu launafólki verði tryggð eftirlaunakjör
sambærileg þeim, sem gerast best í landinu.
Jafnframt var lögð rík áhersla á, að áunninn lífeyris-
og eftirlaunaréttindi opinberra starfsmanna verði ekki
skert.
Endurskoðun lífeyrissjóðslaga
Þá var ályktað um ýmsar umbætur á gildandi laga-
ákvæðum um lífeyrissjóði opinberra starfsmanna.
Á árinu 1975 var skipuð nefnd til að endurskoða lög
um lífeyrissjóði opinberra starfsmanna.
Enginn árangur hefur enn orðið af starfi þessarar
nefndar. Fulltrúar ríkisvaldsins og Bandalags háskóla-
manna hafa komið í veg fyrir, að nokkrar leiðréttingar
fengjust fram. Tvær ástæður eru fyrir þessari afstöðu
þeirra.
í fyrsta lagi hefur ríkisvaldið viljað bíða með öll stærri
málin eftir að heildarstefna verði mynduð almennt um
lífeyrismál í landinu. f öðru lagi hefur sú krafa verið
sett fram af hálfu BHM, að Lífeyrissjóður starfsmanna
ríkisins verði klofinn og félagsmenn í BHM verði fram-
vegis í sérstökum lífeyrissjóði.
Þessi krafa BHM hefur komið í veg fyrir, að nauðsyn-
legar leiðréttingar fengjust á lögunum svo sem lækkun
úr 20 ára aldri í 16 til aðildar að sjóðnum og að hinn
svo nefndi biðreikningur verði jafnframt lagður niður.
Lífeyrissjóöslán
Lán úr lífeyrissjóðum opinberra starfsmanna eru nokk-
uð mishá. Þau hafa tekið breytingum með hækkun verð-
lags í landinu og miðað við fjárhagslega stöðu sjóðanna.
Upphæð lána hefur verið sem hér segir:
Frá 1. apríl 1977 1.500.000
Frá 16. des. 1977 1.800.000
Frá 22. sept. 1978 2.300.000
Frá 5. apríl 1979 2.800.000
Endurlán eftir 10 ár eru óbreytt (300.000 kr.).
Vextir hafa verið:
Frá 1. maí 1976 16%
Frá 16. des. 1977 19%
Lífeyriskerfi allra landsmanna
Á árinu 1976 skipaði ríkisstjórnin 17 manna nefnd til
að semja tillögur um nýskipan lífeyriskerfisins í landinu.
Þessi nefnd hefur ekki lokið störfum, og er gert ráð
fyrir, að starf hennar taki enn alllangan tíma.
Hins vegar hefur nefndin nýlega skiiað frumvarpi,
sem felur í sér bráðabyrgðalausn þessara mála á þann
veg, að um 3000 manna, sem orðnir eru 70 ára, fái nú
sambærilegan lífeyri og þeir, er koma undir ákvæði laga
um eftirlaun til aldraðra í stéttarfélögum.
í nefndinni komu fram þrjár hugmyndir um, hvernig
afla skuli fjár tii að standa undir eftirlaunum til þeirra
landsmanna, sem fengju rétt samkv. frv. ef að lögum yrði.
Stjórn BSRB tók þá afstöðu að styðja tillögu, sem
studd var af öllum öðrum fulltrúum samtaka launa-
fólks í nefndinni, svo og af fulltrúum Vinnuveitenda-
sambands íslands og Vinnumálasambands samvinnu-
félaganna. Þessi tillaga felur í sér m. a., að lagður verði
5% skattur á iðgjaldatekjur allra lífeyrissjóða, auk fram-
lags frá ríkissjóði, atvinnuleysistryggingasjóði, stofn-
lánadeild landbúnaðarins, Jöfnunarsjóði sveitarfélaga og
eftirlaunaiðgjaldi sjálfstæðra atvinnurekenda.
Miðað við verðlag nú er áætlað, að þetta næmi urn
170—200 millj. kr. greiðslum árlega frá lífeyrissjóðum
opinberra starfsmanna, en heildarkostnaður vegna gild-
andi laga um eftirlaun aldraðra og þeirra viðbótar, sem
frumvarpið gerir ráð fryir, er áætlaður rúmlega 3.7
milljarðar.
Yerkfallssjóóur bætir refsifrádráft
í bréfi fjármálaráðuneytis frá 17. mars 1978 var til-
kynnt að dregin yrðu 8% af mánaðarkaupi fyrir eins
dags fjarvist og 16% fyrir tveggja daga fjarvist 1. og 2.
mars. Stjórn BSRB samþykkti eftirfarandi mótmæli á
fundi sínum 21. mars:
„Stjórn BSRB mótmælir harðlega þeirri ákvörðun rík-
isstjórnarinnar og borgarstjórnar Reykjavíkur að draga
yfirvinnukaup í stað dagvinnu af þeim starfsmönnum,
sem þátt tóku í mótmælaaðgerðum gegn kjaraskerðingu
launafólks í byrjun marsmánaðar þ. á.
Stjórn BSRB samþykkir, að þeir starfsmenn ríkis- og
bæjarfélaga, sem beittir verða refsifrádrætti launa sem
svarar yfirvinnukaupi vegna fjarveru í mótmælaskyni
1. og 2. mars s.l., skuli eiga kost á greiðslu úr Verk-
fallssjóði BSRB.
Beinir bandalagsstjórn þeim tilmælum til aðildarfélaga
bandalagsins, að þau leggi viðbótarfé í Verkfallssjóð
BSRB í þessu skyni. Það sem á vantar að núverandi inn-
stæða f Verkfallssjóði, væntanleg framlög bandalagsfé-
laganna og framlög einstaklinga hrökkvi fyrir þessum
útgjöldum, skal greiða úr sjóði BSRB.“
Varðandi framkvæmd á greiðslum var eftirfarandi
samþykkt:
ASGARÐUR
37