Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 15.05.1979, Side 38
„Greiddar verði kr. 5.000 vegna 8% frádráttar af mán-
aðarlaunum og kr. 10.000 vegna 16% af mánaðarlaunum,
hvort tveggja miðað við fullt starf. Þeir, sem vinna hluta
úr degi, eigi kost á hlutfallslegri greiðslu.
Verkfallsstjórn úr fyrra verkfalli verði falið að annast
úthlutun."
í verkfallssjóðinn söfnuðust 872 þús. kr., en 640 félagar
fengu bættan refsifrádrátt sinn og námu greiðslurnar
alls 5.588.000 kr. Þar sem verkfallssjóðurinn nægði fyrir
útgjöldum, þá kom ekki til viðbótargreiðslu úr sjóði
bandalagsins.
Greiðslur til einstaklinga skiptust þannig eftir aðildar-
félögum:
Samband grunnskólakennara 180 félagsm.
Starfsmannafélag ríkisstofnana 176 —
Landssamband framhaldsskólakennara 97 —
Félag íslenskra síntamanna 80 —
Hjúkrunarfélag fslands 33 —
Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar 21 —
Starfsmannafélag Kópavogs 17 —
Starfsmannafélag Hafnarfjarðar 8 —
Starfsmannafélag sjónvarps 8 —
Starfsmannafélag Garðabæjar 6 —
Félag starfsmanna stjórnarráðs 5 —
Starfsmannafélag ríkisútvarps 3 —
Félag opinberra starfsm. Suðurlandi 3 —
Póstmannafélag íslands 1 —
Einstaklingsaðilar í BSRB 2 —
Mælt með samþykkt ályktunar um öflun upplýsinga
um þjóðartekjur og kaupmátt hér og á Norðurlöndum
(4/1 1977).
Stjórn BSRB telur að þingsályktun um hámarkslaun
o. fl. muni ekki leiða til lausnar á þeim vanda, sem
henni var ætlað að leysa. (13/4 1978).
Lýst yfir andstöðu við þingsályktun um að koma upp
með lögum hagstofnun launþega og vinnuveitenda (13/4
1978) .
Varðandi þingsályktun um lágmarks- og hámarkslaun
var því svarað að slíkt ætti ekki að vera lögbundið (15/1
1979) .
Ferðaslysafrygging BSRB og félaga
vegna fundahalda
Bandalagið hefur gert sérstakan samning við Sjóvá-
tryggingafélag íslands um ferðaslysatryggingar á vegum
BSRB eða bandalagsfélaga vegna fundahalda og ráð-
stefnuferða bæði innanlands og erlendis, t. d. getur
þetta gilt fyrir fulltrúa, sem koma utan af landi eða
ræðummenn sem eru á fundaferðum.
Bandalagsfélögin geta gengið inn í þennan samning með
þvf einu að skrá hina tryggðu fyrir milligöngu skrif-
stofu BSRB. Fá félög hafa þó hagnýtt sér þetta — nema
hvað Hjúkrunarfélag íslands tryggir fulltrúa sína reglu-
bundið.
1. maí
BSRB hefur undanfarin fimm ár verið aðili 1. maí að
kröfugöngu og útifundi í Reykjavík með Fulltrúaráði
verkalýðsfélaganna í Reykjavík og Iðnemasambandi Is-
lands. Síðustu þrjú árin hafa þeir Örlygur Geirsson og
Jónas Jónasson verið í 1. maí-nefndinni.
Bandalagsstjórn hefur öll árin samþykkt eða lýst sig
fylgjandi 1. maí ávarpi verkalýðsfélaganna og tilnefnt
ræðumann á útifundinn. Árið 1977 talaði þar Örlygur
Geirsson, árið 1978 talaði Kristján Thorlacius og 1979
Haraldur Steinþórsson.
Umsagnir um þingmál
Stjórn BSRB hefur fengið send til umsagnar ýmis mál
frá nefndum Alþingis. Er þar einkum um að ræða þings-
ályktanir frá einstökum þingmönnum. Hér verður skýrt
frá afgreiðslu stjórnarinnar og í sviga er dagsetning
stjórnarfundarins.
Samþykktur stuðningur við tillögu um vinnuvernd og
starfsumhverfi (20/4 1977).
Skorað á Alþingi að samþykkja ályktun um skipun
nefndar til að kanna eðli og útbreiðslu atvinnusjúkdóma
(20/4 1977).
Tilnefndir fulltrúar BSRB fil ýmissa
sfarfa
24/6 1977 var samþykkt að Guðmundur Sigurþórsson
sæti áfram í ferðakostnaðarnefnd fram yfir næstu samn-
inga. Samkvæmt eigin ósk lét hann svo af því 30/11 ’77
og var Ágúst Guðmundsson, deildarstj. kosinn í staðinn.
Yfirkjörstjórn var kosin 26. okt. 1977 vegna atkvæða-
greiðslu um nýgerðan kjarasamning fyrir ríkisstarfsmenn.
Formaður var Eggert Bjarnason (Lögrf. Rvíkur) og með
honum voru Jón Helgason (SFR) og Hörður Zóphanías-
son (SÍB).
Örlygur Geirsson, deildarstj. var 30/11 1978 tilnefndur
í Félagsdóm fyrir BSRB til þriggja ára í stað séra Bjarna
Sigurðssonar, sem gegnt hafði því með prýði um all-
langt skeið.
Kristján Thorlacius var frá 1. jan. 1979 endurkjör-
inn í stjórn Lífeyrissj. starfsmanna rík. til þriggja ára.
Kristján Thorlacius og Haraldur Steinþórsson voru
30/11 1978 tilnefndir í samstarfsnefnd BSRB og fjár-
málaráðh. skv. 39. gr. laga nr. 39/1976 um kjarasamninga.
Þórir Maronsson, aðst. yfirlögregluþjónn og Gunnar
Sandholt félagsráðgjafi voru tilnefndir 20/12 1978 í
samstarfsnefnd ríkisins og BSRB um fullorðinsfræðslu
skv. ákvæðum aðalkjarasamnings.
38
ASGARÐUR