BSRB blaðið - 01.04.1986, Blaðsíða 24
eftir Jón Daníelsson
Að loknum löngum vökum taka
menn sér penna í hönd og hripa nafn
sitt á aftasta blaðið — neðst. Nöfnin
misjafnlega læsileg, enda taugaspenna
mikil. Þetta gerist reglubundið — einu
sinni á ári hin síðari ár — og það sem
verið er að skrifa undir eru kjarasamn-
ingar.
Áróðursstríð er undanfari kjara-
samninga. Það hefur verið í tiltölulega
föstum skorðum undanfarið. Fyrir
samninga er allt í hnút og vandamálin
virðast óleysanleg.Svo mikið ber á
milli deiluaðila. Af hálfu stéttarfélag-
anna eru settar fram háar launakröfur
og launafólk fer ósjálfrátt að velta því
fyrir sér, hvað það gæti keypt í matinn,
eða hvort það hefði efni á að fá sér bíl
— eða gæti e.t.v. grynnkað örlítið á
skuldunum — ef kröfurnar næðu fram
að ganga. Atvinnurekendur eru á hinn
bóginn ábúðarfullir og ábyrgir á svip-
inn, þegar þeir koma fram fyrir augu
þjóðarinnar í fréttatíma sjónvarps og
lýsa því að atvinnuvegirnir beri því
miður engar launahækkanir, eins og
ástandið sé núna, þótt þeir á hinn bóg-
inn skilji vel, að æskilegt sé að laun
hinna lægst launuðu hækkuðu örlítið
meira en annarra.
Þegar búið er að skrifa undir kjara-
samninga bregður hins vegar svo við,
að allir eru tiltölulega ánægðir. At-
vinnurekendur, sem áður töldu fyrir-
tæki sín ekki geta borið neinar kaup-
hækkanir, eru nú komnir á þá skoðun,
að þessar launahækkanir séu tiltölu-
lega hófsamar, þótt þeir á hinn bóginn
dragi ekki dul á þann ótta sinn, að hin-
ir nýgerðu samningar muni verka
hvetjandi á verðbólguna.
Undirskriftir hinna syQuðu samn-
ingamanna hefur svo varla náð því að
festast á aftasta blaðinu, þegar búið er
að hækka allar vörur í landinu um
a.m.k. sömu tölu og stendur í samn-
ingunum og helst meira.
ÖÐRUVÍSI SAMNINGAR
Þetta gerðist þó ekki í ár. Sé miðað
við kjarasamninga undanfarinna ára
og áratuga, verður jafnvel að teljast
vafamál, hvort samningamennimir
hafi einu sinni verið syfjaðir þegar þeir
skrifuðu nöfnin síp á aftasta blaðið.
Og innihald samninganna var gjör-
ólíkt því sem áður hefur sést. Lágar
launahækkanir í áföngum yfir árið, en
þess í stað loforð ríkisstjómarinnar fyr-
ir því að verðbólga verði ekki nema
um 7% á árinu. Það er sjálfsagt a.m.k.
aldarfjórðungur síðan svo lág verð-
bólga hefur verið á íslandi.
Viðbrögðin við þessari nýju tegund
kjarasamninga hafa verið mjög mis-
jöfn. Fyrstu dagana bar mun meira á
jákvæðum viðbrögðum og jafnvel
hrifningu fólks yfir því að loks væri
24 BSRB-blaðið