BSRB blaðið - 01.04.1986, Blaðsíða 6
LEIÐARI
AÐ SKRÁ SÖGUNA
Þetta blað — BSRB-blaðið — er til-
raun. Kannske tekst hún. Kannske
ekki. Tíminn leiðir það í ljós. Fyrir
okkur vakir að fjalla um þjóðmál í
víðasta skilningi orðsins. Við ætlum
ekki að einblína á kjaramál í þrengstu
merkingu. Við byggjum á reynslunni
af Asgarði, sem undir ritstjóm Har-
aldar Steinþórssonar, varð eitt út-
breiddasta tímarit landsins. Það var
fyrir hans frumkvæði að blað BSRB
var sent öllum félagsmönnum sam-
takanna og því höldum við áfram.
BSRB leggur metnað sinn í að allir fé-
lagsmenn fái blaðið í hendur.
Fjölmiðlar hafa verið mjög til um-
ræðu innan BSRB síðustu misseri.
Ástæðan er sú að menn gera sér grein
fyrir hve snar þáttur fjölmiðlar eru í
lífi fólks. Upplýsingar berast nú — fé-
lagsmönnum BSRB og öðrum —
hraðar og í meira magni en áður.
Gildir þetta jafnt kjaramál, málefni
samtaka á borð við verkalýðshreyf-
inguna og jafnvel það sem áður taldist
til einkamála. Styrmir Gunnarsson,
annar ritstjóra Morgunþlaðsins, sem
hér er í viðtali, segir m.a., að blaða-
mönnum og fréttamönnum hafi geng-
ið misjafnlega að fóta sig í nýju hlut-
verki. Undir þetta getum við tekið.
Og það er þetta sem liggur að baki
umræðunnar um fjölmiðla innan
BSRB. Menn treysta ekki ijölmiðlum
og vilja að verkalýðshreyfingin hasli
sér völl á því sviði. í þessu felst ósk
um vandaðri fréttamennsku — ná-
kvæmari upplýsingar. Fagmannlegri
vinnubrögð.
Það skal ósagt látið hvort þátttaka
verkalýðshreyfingarinnar í Qölmiðla-
stríði myndi breyta ijölmiðlun í Iand-
inu. Verkalýðshreyfingin gæti breytt
valdahlutföllunum á íjölmiðlamark-
aðinum. Hún gæti það með því að
tryggja í raun, opna lýðræðislega um-
ræðu um það sem er að gerast í kring-
um okkur. En hún þarf að vilja það.
Hún þarf að vilja fjölmiðil, sem yrði
stórveldi á markaði.
í þessu blaði er fjallað um verka-
lýðsbaráttu og dómsstóla. Þessi grein
snýst ekki um fjölmiðla. Hún snýst
um réttindi launafólks. Hún Qallar
um réttinn til að leggja niður vinnu,
þegar menn telja á sér brotið.
Nokkrir félagsmanna BSRB —
starfsmenn Ríkisútvarpsins — voru
kærðir í verkfalli BSRB fyrir að leggja
niður störf, þegar fjármálaráðherra
neitaði að greiða þeim laun svo sem
lög kveða á um. Máli þessu hefur
ranglega verið ruglað saman við
ólöglegar útvarpssendingar nokkurra
aðila í verkfalli BSRB og gerð að út-
varpsmálum. Bendir margt til þess að
þeir sem það gerðu hafi litið svo á, að
kæra á hendur þessum félagsmönnum
gæti orðið skiptimynt fyrir dómsstól-
um þegar mál ólöglegu útvarpsstöðv-
anna væru afgreidd. Nokkrir nafntog-
aðir sjálfstæðismenn komu við sögu í
þessu máli. Þeim mistókst ætlunar-
verk sitt.
Fjölmiðlar skrifa söguna. Við vilj-
um að sagan sé skráð rétt. Þess vegna
fjöllum við um þessi mál. Og það er
einmitt tilgangurinn með BSRB-blað-
inu. Við ætlum að leggja okkar að
mörkum til þess að sagan verði rétt
skráð. Rétt — eins og við skiljum
hana.
Helgi Már Arthursson.