BSRB blaðið - 01.04.1986, Blaðsíða 51
Einar Ólafsson, SFR.
BSRB „falla frá þeirri 3% grunnkaups-
hækkun er taka átti gildi 1. apríl n.k.“
Meginatriði samkomulagsins var að
ef sérkjarasamningar tækjust ekki,
„skulu aðildarfélögin hafa verkfalls-
rétt, enda verði verkfall þá boðað sam-
tímis og frá sama tíma hjá öllum aðild-
arfélögum BSRB, sem verkfall ætla að
boða. Heimilt skal félögum í stað verk-
fallsboðunar að vísa ágreiningi sam-
kvæmt þessum lið til þriggja manna
gerðardóms, þar sem samningsaðilar
skipa einn mann hvor og Hæstiréttur
formann. Á sama hátt getur ráðherra
Ágúst Geirsson, FIS.
eða sveitarstjóm, sem segir upp samn-
ingum einhliða, lagt á verkbann eða
skotið einstökum málum af þessu tagi
til gerðardóms.“ Síðan segir:
„Nefndarmönnum í Kjaradeilu-
nefnd verði fækkað úr 9 í 5. Fjármála-
ráðherra skipi tvo, BSRB tvo og Hæsti-
réttur einn, sem sé formaður. Gildandi
ákvæði í lögum, þar sem kveðið er á
um hverjir megi fara í verkfall til að
haldið verði uppi nauðsynlegri örygg-
isgæslu og heilsugæslu verði gerð skýr-
ari.“
Það er skemmst frá að segja að í
kosningum valdi hinn almenni launa-
maður 3% launahækkunina fram yfir
þennan áfanga í samningsrétti BSRB.
(4.510 sögðu nei og 2032 já af 10.216 á
kjörskrá).
ALLUR SAMNINGSRÉTTUR HJÁ
FÉLÖGUNUM
Menn eru enn að velta fyrir sér
hvort þetta voru rétt viðbrögð. í Ás-
garði í febrúar 1982 fjallar Ágúst
Geirsson, þáverandi formaður Félags
íslenskra símamanna, um samnings-
réttarmálin:
„Eg hef verið eindregið þeirrar
skoðunar frá upphafi að hin einstöku
félög ættu að hafa allan samningsrétt-
inn, og þar með allan verkfallsréttinn á
sínum höndum á sama hátt og ASÍ.“
Síðan segir hann:
„Ýmsir hafa haldið því fram, að
sjálfstæður samningsréttur til félag-
anna geti orðið samheldni BSRB
hættuleg og jafnvel stefnt framtíð þess í
voða. Eg er algjörlega á öndverðum
meiði við þá skoðun og tel þvert á
móti, að slík breyting yrði líklegri til
að halda bandalaginu saman en ekki,
og bendi í því sambandi á reynsluna
hjá ASÍ.“
Ágúst ræðir einnig af hverju menn
vildu heldur 3% en þennan áfanga í
samningsrétti, og telur að mönnum
hafi þótt þessi réttur of takmarkaður.
Ágúst hvetur síðan til ítarlegrar um-
ræðu innan bandalagsins um þessi mál
og mótun framtíðarstefnu.
ERUM AÐ FÁ NÝJAR
SENDINGAR AF
LEDURHÚS-
GÖGNUM
B ÖRGm-
Kúsqöqn
Hreyfilshúsinu á horni Grensásvegar og
Miklubrautar. Sími: 68-60-70 og 68-59-44
Úrvalið hjá okkur er meira en þig grunar