BSRB blaðið - 01.04.1986, Blaðsíða 70
ORLOFSHUS
Á fundi stjórnar BSRB þann 9. apríl
var samþykkt svofelld tillaga vegna
þeirra tólf orlofshúsa, sem gengu til
BSRB við úrsögn K.I. úr BSRB:
„Stjórn B.S.R.B. ákveður að afsala
ekki að svo stöddu umráða- og ráðstöf-
unarrétti til einstakra bandalagsfélaga
á þeim 12 orlofshúsum, sem gengu til
bandalagsins við úrsögn K.í. úr
B.S.R.B.
Jafnframt samþykkir bandalags-
stjórnin að eftirtaldir aðilar fái hús
leigð næsta sumar gegn sömu greiðsl-
um og fulltrúaráð orlofsheimila sam-
þykkti á aðalfundi sínum 13. mars
1986, þ.e. 54 þús. kr. fyrir stórt hús og
40 þús. kr. fyrir lítið hús yfir sumar-
leigutímann:
1. Lífeyrisþegadeild kennara innan
Sambands lífeyrisþega ríkis og bæja
1 stórt hús og 1 lítið
2. Starfsmannafélag Ólafsfjarðarkaup-
staðar og Starfsmannafélag Dalvík-
urbæjar og Dalbæjar
1 stórt hús saman.
3. Að öðru leyti verði húsin boðin
bandalagsfélögunum til leigu í
sumar með þeim kjörum er að
framan greinir.“
Var stjórn orlofsheimila falið að
auglýsa þessa ákvörðun.
LOGREGLUMENN
SEGJA UPP
STÖRFUM
Hálft fjórða hundrað lögreglumanna
hefur sagt upp störfum sínum og taka
uppsagnimar gildi 1. júlí. Eru þetta
u.þ.b. sextíu prósent starfandi lög-
reglumanna í landinu. Að sögn Tóm-
asar Jónssonar, formanns Landssam-
bands lögreglumanna, er ekkert um
það að lögreglumenn dragi uppsagnir
sínar til baka. Lausafregnir herma að
dómsmálaráðherra muni ætla sér að
framlengja uppsagnarfrest lögreglu-
mannanna um þrjá mánuði, en þann
rétt hefur ráðherra.
Með uppsögnum sínum vilja lög-
reglumenn mótmæla vinnuþrælkun og
öryggisleysi í starfi. Þeir telja að sífellt
fleiri og erfiðari verkefni hafi hlaðist á
lögreglumenn, m.a. vegna fleiri vín-
veitingastaða, og að í raun og veru sé
lögregluliðið í landinu of fámennt. Til
að bæta úr þessu vilja lögreglumenn
fjölga í liðinu og draga úr yfirvinnu
með hagræðingu. Telja þeir að þetta
megi gera án þess að slíkt hafi í för
með sér útgjaldaaukningu fyrir ríkið
svo nokkru nemi.
Lögreglumenn benda á, að einmitt
þeir hafi dregist mjög aftur úr starfs-
stéttum,sem þeir hafa lengst af miðað
sig við, og nefna í þessu sambandi
kennara. Er mikill hiti í lögreglu-
mönnum vegna kjaramálanna, enda
finnst þeim ríkisvaldið hafa komið
fram gagnvart hópnum af hinni mestu
hörku. Á landsþingi lögreglumanna,
sem haldið verður dagana 21,—22.
apríl verða kjaramál og uppsagnir
aðallega til umræðu.
ORLOFSLEIGAN1986
Aðalfundur Fulltrúaráðs orlofsheimila BSRB hefur ákveðið leigugjöld
fyrirárið 1986.
Sumarið 1986
Vorleiga Stór hús Lítil hús
16. maí — 13. júní 2.700 kr. 2.100 kr.
Sumarleiga 13. júní — 15. ágúst 3.600 kr. 2.600 kr.
Haustleiga 15. ágúst — 12. sept. 2.700 kr. 2.100 kr.
Aðildarfélög BSRB sjá um útleigu og úthlutun orlofshúsanna um sumar-
tímann, þ.e. frá 16. maí — 12. september.
Leiga húsanna utan þess tíma er afgreidd á skrifstofu BSRB.
70 BSRB-blaðið