BSRB blaðið - 01.04.1986, Blaðsíða 46
verður Hinrik sjöundi, og stendur yfir
höfuðsvörðum Ríkharðs.
Ríkisráðsatriðið allt er margendur-
tekið og skoðað. Leikstjórinn ræðir
lengi við Helga Skúlason um hraðann
í leiknum. Ríkharður rennir sér hér á
þunnum ís, segir leikstjórinn, og má
ekki gefa neinum tíma til að hugsa ráð
sitt, því þá gæti hann misst allt út úr
höndum sér. Það verður þess vegna að
auka hraðann, Ríkharður vill að allt
gangi sem hraðast fyrir sig nú. Rúrik
Haraldsson veltir líka fyrir sér fram-
komu jarlsins af Darrbæ í þessu atriði.
Hann svíkur þar sinn helsta banda-
mann og sleppur sjálfur úr bráðum
háska.
NÚTÍMALEGT LEIKRIT
Þegar John Burgess leikstjóri heldur
því fram, að leikritið Ríkharður III sé
mjög nútímalegt leikrit, vitnar hann
m.a. til böðlanna tveggja, þeirra Rík-
harðs Ráðkleyfs, sem Sigurður Sigur-
jónsson leikur, og Lúfa lávarðar, sem
Hákon Waage leikur. Ríkharður notar
þá til drápa einna saman. Þeir eru af
aðalsættum báðir, en þeirra hlutverk
er ekki að gefa ráð um stjórnmál, eða
gegna öðrum erindum en að drepa þá
menn, sem húsbóndi þeirra bendir á.
Burgess líkir þeim við SS-menn, og
bendir á, að 80% SS-manna voru há-
skólamenntaðir menn af góðum ætt-
um.
Svo má geta þess að Ríkharður er í
Rípajarl og Vöggur eru færðir til aftöku.
Ríkharður syrgir Hasting.
46 BSRB-blaöið