BSRB blaðið - 01.04.1986, Síða 62

BSRB blaðið - 01.04.1986, Síða 62
Hörður Einarsson, Sveinn R. Eyjólfsson, Jónas Kristjánsson, Ellert B. Schram og Hannes H. Gissurarson koma allir viö sögu i svonefndu útvarpsmáli. Til að þessi kenn- ing stœðist þurfti að sjáifsögðu að telja fólki trú um að neyðarástand hefði skapast. Síðan myndu þeir Jónas Kristjánsson, Ellert Schram og Hannes Hólm- steinn sjá um að brjóta lögin. Að sjálfsögðu myndi margraddaður kór frjálshyggju- manna kyrja undir þeim söng, að verkföll vœru siœm og einokun i útvarpsrekstri af hinu illa. Verður það hlutskipti verkalýðshreyfingar að reka kjarabaráttu í Hæstarétti? verkfallið þar sem deiluaðilar féllust á að láta ágreiningsefni sín niður falla. Fyrst tók þó steininn úr þegar sjálfur ríkissaksóknari, Þórður Bjömsson, gekk fram fyrir skjöldu, fyrirskipaði málssókn og réttarhöld yfir starfsfólki útvarps og sjónvarps, og til þess að undirskrika að embættið teldi þessi mál grein af sama meiði og lögbrot frjálshyggjumanna birti hann lands- mönnum ákærumar gegn hinum ólöglegu útvarpsstöðvum og starfs- mönnum Ríkisútvarpsins í einni og sömu fréttatilkynningunni. Dæmið hafði gengið upp. Utvarpsmálin voru orðin til. „VIRÐULEGA SAMKOMA“ Eitt stórbrotnasta hlutverkið í þessu sjónarspili öllu lék Ragnhildur Helga- dóttir þáverandi menntamálaráðherra. Svo hugleikin var henni barátta Hann- esar Gissurarsonar og lögbijótanna á DV að þegar þeir höfðu verið kærðir í óþökk hennar skundaði hún samdæg- urs á fund svokallaðs Útvarpsfélags þar sem þessi mannskapur var mættur. Þar sagði ráðherra m.a. orðrétt: „Virðulega samkoma. í dag hafa gerst atburðir sem urðu þess valdandi að ég ákvað að fara á þennan fund. Ég tel að það hafi gerst aburðir sem þýða að við verðum að leggja allt kapp á það, að fá lögfest nú alveg á næstunni löglega fijálsa útvarpsstarfsemi í land- inu ... I dag hefur verið lokað á veg- um dómsvaldsins tveimur stöðvum sem ... ekki voru löglegar í strangasta skilningi, nema að dómur felli þann úrskurð að þær hafi verið það, þrátt fyrir allt, eftir grundvallarreglunni um tjáningarfrelsi og eftir neyðarrétti eins og á stóð ... ég vonast til þess, að þeg- ar framhaldsstofnfundur þessa félags verður haldinn, að þá verði fijáls út- varpsstarfsemi orðin fyllilega lögmæt á íslandi. Ég óska ykkur til hamingju með það sem framundan er og vona að það verði gæfulegt." Hér verður ekki annað sagt en að menntamálaráðherra landsins gangi æði langt í stuðningi sínum við ólög- lega starfsemi þótt verri sé að sjálf- sögðu sá tvískinnungur, sem í því fólst að gera allt sem hægt var til að koma í veg fyrir að útvarpað væráút Ríkisút- varpinu meðan á verl,.iil i stóð og hneykslast síðan á því fólki sem tók sér það vald „að láta fólk þegja,“ eins og menntamálaráðherrann komst að orði um starfsmenn Ríkisútvarpsins í ræðu sinni. Hér verða menn að minnast þess að meira en lítið var í húfi fyrir frjáls- hyggjumenn: Orðstír eins útbreiddasta málgagns þeirra, DV. Og — Sjálfstæð- isflokksins. Hann hafði heimilað hin- um ungu frjálshyggjumönnum að koma upp útvarpsstöð í sjálfri Val- höllu, í blóra við lög og margra varkár- ari sjálfstæðismenn. Svo mikið var í húfi — eins og menn minnast — að þegar löggæslumenn bar að garði í Valhöll til að rannsaka hvort um ólög- legt athæfi væri að ræða, þá meinuðu þeir Kjartan Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, og Davíð Oddsson, borgarstjóri, lög- 62 BSRB-blaðið

x

BSRB blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: BSRB blaðið
https://timarit.is/publication/1583

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.