BSRB blaðið - 01.04.1986, Qupperneq 75

BSRB blaðið - 01.04.1986, Qupperneq 75
Jónsdóttir, ritari, og Þóra Gestsdóttir, gjaldkeri. Stjóm félagsins skipa nú: Hreinn Pálsson, formaður, Solveig Thoraren- sen, ritari, Anna Kristín Ásgeirsdóttir, gjaldkeri, Gestur Kristinsson, varafor- maður, Lárus Már Björnsson, með- stjórnandi. í varastjórn eru þau Ást- hildur Hermannsdóttir og Bjöm Helgason. NÝTT HUSNÆÐIS- LÁNAKERFI Húsnæðislán frá Húsnæðisstofnun ríkisins hækka 1. september. Og láns- tíminn verður lengri. Kemur þetta einkum þeim til góða, sem eru að koma sér þaki yfir höfuðið í fyrsta sinn. Vextir af þessum lánum verða 3,5% — út kjörtímabilið. Þeir eru ekki lögfestir til lengri tíma þar sem ríkis- stjórnin treysti sér ekki til að gefa fyrir- heit um slíkt. Snar þáttur kjarasamninganna frá því í vetur voru fyrirhugaðar úrbætur í húsnæðismálum. Nú hefur verið lagt fram á Alþingi frumvarp, sem tryggja á þau markmið sem verkalýðshreyfingin samdi um í þessum samningum. Gert er ráð fyrir að frumvarpið verði að lög- um á næstu dögum, er taki gildi 1. september n.k. Frumvarpið var unnið af nefnd skipaðri fulltrúa aðila vinnu- markaðarins. Vann nefndin undir for- sæti Hallgríms Snorrasonar, hagstofu- stjóra. Fulltrúi BSRB í nefndinni var Örlygur Geirsson. Fulltrúar ASÍ voru þeir Ásmundur Hilmarsson og Jó- hannes Siggeirsson. Með nefndinni unnu starfsmenn félagsmálaráðuneyt- is, Húsnæðisstofnunar ríkisins og Seðlabanka. í frumvarpsdrögunum segir m.a.: „Meginatriði húsnæðissamkomu- lagsins svo og þessa frumvarps er það, að lagt er til að lánsréttindi í hinu opinbera húsnæðislánakerfi verði tengd aðild manna að lífeyrissjóðum og lánveitingum lífeyrissjóðanna til húsnæðislánakerfisins. Er lagt til að einstaklingar hafi mismikinn lánsrétt eftir því hve lífeyrissjóðir þeirra hafa lánað mikið fé til húsnæðislánakerfis- ins í hlutfalli við ráðstöfunarfé sitt. Lánveitingar lífeyrissjóða til Bygging- arsjóðs ríkisins og Byggingarsjóðs verkamanna hafa um árabil verið ein meginuppspretta lánsijár þessara sjóða. Þessar lánveitingar, eða skulda- bréfakaup lífeyrissjóðanna af bygg- ingarsjóðunum tveimur, hafa bæði verið reistar á sérstöku samkomulagi um að sjóðirnir tækju með því móti þátt í fjármögnun félagslegra íbúða- bygginga en hins vegar á lögum. Með lögum nr. 13/1981 var ákveðið, að hveijum lífeyrissjóði sé skylt að verja að minnsta kosti 40% af ráðstöfunarfé sínu til kaupa á verðtryggðum skulda- bréfum Byggingarsjóðs ríkisins, Bygg- ingarsjóðs verkamanna, Fram- kvæmdasjóðs íslands og fjárfestingar- lánasjóða. Skuldabréfakaupin í heild sinni hafa þó aldrei náð þessu marki og skuldabréfakaup sjóðanna allra hafa numið 33 — 37% ráðstöfunarfjár þeirra undanfarin ár. Að auki hafa sjóðirnir keypt mjög mismikið af skuldabréfum, margir sjóðir hafa staðið við kaup- skylduna og vel það en aðrir hafa keypt mun minna. LÁN HÆKKUÐ Framhaldafbls. 57 MISGENGISFÓLKIÐ Frumvarpið tekur ekkert á vanda þess fólks sem fjárfesti í íbúðarkaupum á þeim árum er lánskjaravísitalan æddi áfram á meðan að launin stóðu í stað? „Nei, við fórum ekkert út fyrir þann ramma sem Garðastrætissamkomulag- ið setti okkur og því var vandi þessa hóps ekki viðfangsefni nefndarinnar. Hinsvegar er í samkomulaginu ákveð- ið að 500 milljónir fari í að leysa bráðavanda þessa fólks en Húsnæðis- stofnun mun sjálf ákveða hvernig þeim fjármunum er varið. Ég er aftur á móti þeirrar skoðunar að með þessu nýja húsnæðislánakerfi muni viss vandi þessa fólks leysast. Vandi þess hefur verið tvíþættur, annarsvegar er það misgengið og hinsvegar það að eignirnar hafa ekki haldið verðgildi sínu. Þegar stórauknu fjármagni verð- Tinni, Tobbi og Kolbeinn vita vel aö safnast þegar saman kemur. Tinnasparibaukurinn fæst aðeins hjá okkur. Landsbanki íslands Banki allra landsmanna BSRB-blaöiö 75
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

BSRB blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: BSRB blaðið
https://timarit.is/publication/1583

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.