Fiskifréttir - 21.09.1984, Qupperneq 11
föstudagur 21. september
11
Meðan gert er út þarf
að þjónusta flotann
— segir Kjartan Ó Kjartansson
Flestir þeirra sem starfa í sjávarút-
vegi á íslandi þekkja ASIACO, en
það fyrirtæki hefur lengi þjónað
íslenskum sjómönnum og útvegs-
mönnum. Fyrirtækið er nú til húsa
að Vesturgötu 2, í Reykjavík, sem
sagt nálægt sjónum, en úti á Sel-
tjarnarnesi er fyrirtækið með lager
og netaverkstæði, sem tók til starfa
fyrir nokkrum árum.
Á dögunum lögðum við leið
okkar til ASIACO og ræddum við
Kjartan Örn Kjartansson fram-
kvæmdastjóra fyrirtækisins.
Fyrsta spurningin, sem við lögð-
um fyrir Kjartan Örn var: AS-
IACO er þjónustumiðstöð fyrir
sjávarútveginn, og hefur verið
lengi. Hvernig hefur starfsemin
þróast?
Það er ef til vill best að skýra frá
þessu með því að líta á þróun
fyrirtækisins í þau rúmlega 25 ár,
sem það hefur starfað. Asíufélagið
hf. eins og það hét þá, var upphaf-
lega stofnað í kringum hin nýju
gerviefni sem þá voru að koma á
markaðinn, aðallega nælon. Þá
voru neta og nótaveiði allsráðandi
og hefur fyrirtækið verið leiðandi
í öllu því er að neta og nótaveiðum
lítur síðan. Þegar skuttogarabylt-
ingin hófst kringum 1970, þá juk-
um við þjónustu í togveiðarfærum
hverskonar. Fyrirtækið hafði milli-
göngu um smíði 10 togara í Japan
og á sama tíma kynntum við
plastkassa til notkunar um borð í
veiðiskipum, sem leið til að varð-
veita hráefnið betur. í dag rekum
við víra- og netaverkstæði að
Suðurströnd 4 á Seltjarnarnesi.
Þaðan getum við nú mætt flestum
þörfum í sambandi við veiðarfæri.
Sem dæmi get ég bent á bát, sem
stundar netaveiðar hluta af árinu,
er á fiski- eða humartrolli á sumrin
og síðan á síldveiðum á haustin.
Þessum bát getum við þjónað með
allar hans þarfir frá einum stað.
f sambandi við plastílátin á þetta
einnig við, hvort heldur er fyrir
fiskvinnslu í landi eða fyrir fiski-
skip. Allir þekkja Dyno-Strömber
fsikikassana og Dyno-Cipac fiski-
körin. Þau eru nú til í fleiri stærð-
um og gerðum en áður eða eftir
því sem ég best veit hjá öðrum,
það er að þessum þörfum öllum
mætum við einnig frá einum stað.
Þá vil ég líka geta nýustu þjón-
ustunnar, sem er útflutningur á
ferskum fiski. Fyrirtækið hefur um
árabil, í meira eða minna mæli,
verið í útflutningi á rækju og
flestar afurðir frystitogarans Örv-
ars frá Skagaströnd hafa verið
seldar af ACIACO. Nú tökum
við að okkur fyrir viðskiptavini
okkar að koma ferskum fiski í
gámum á markað í Englandi eða
Þýskalandi eftir því sem við á. Því
held ég að það sé rétt að mega
kalla okkur þjónustumiðstöð fyrir
sjávarútveginn. Við höfum allt til
að veiða fiskinn, varðveita hann
og hreyfa og koma honum síðan á
markað.
- Hvað þýðir sjávarútvegssýn-
ingin fyrir ACIACO?
- Þó að á sýningu, sem þessari
sé væntanlega seint hægt að koma
fyrir öllum þeim hlutum, sem mað-
ur vildi sýna, eða kynna alla þá
þjónustu sem fyrirtækið getur tek-
ið að sér, þá er hún samt sérstakt
tækifæri til að sýna á einum stað
styrk fyrirtækisins og breidd. Um
leið tekst okkur væntanlega að
hitta þarna mikinn fjölda við-
skiptavina til að ræða við þá um
þarfir þeirra í nútíð og framtíð.
Það er jú okkar hlutverk að koma
góðum framleiðsluvörum til not-
enda og koma upplýsingum not-
enda til skila við framleiðendur.
- Hvaða fyrirtæki munuð þið
kynna á sýningunni og verða full-
trúa þessara erlendu fyrirtækja
staddir á íslandi á meðan sýningin
varir?
- Ein aðalástæðan fyrir vel-
gengni fyrirtækisins er hversu vel
okkur hefur tekist til að með
erlenda samstarfsaðila, sem eru
hver á sínu sviði leiðandi í heimin-
um. Flestir aðalsamstarfsaðilar
okkar sýna hér og eru flestir með
fulltrúa svo þar gefst viðskipta-
mönnum tækifæri til að eiga við-
ræður beint við framleiðendur,
sem er örugglega mikilvægt fyrir
öll samskipti. í stafrófsröð sýna
þessir:
Edwin Ashworth Marine Ltd.,
Englandi sýnir nýja hlera. Bison
toghlera og verða þeir bæði sýnd-
ir í aðalbásnum nr. D-70 og einnig
á útisvæði nr. F-18. Bison hlerarnir
eru mjög sérstakir og um margt
mjög öðruvísi en menn eiga að
venjast. Sú reynsla sem fengist
hefur af þeim er alveg frábær og
hvet ég menn eindregið að heim-
sækja okkur og ræða við fram-
leiðendann og hönnuðinn hr. John
Ashworth. Við erum að gefa út
bæklinga með tæknilegum upplýs-
ingum um hlerana, en slíkt hefur
verið af skornum skammti hér á
landi til þessa. Verða þeir afhentir
áhugamönnum í aðalbásnum.
Baskelittfabrikken A/S í Noregi
sýnir í aðalbási okkar nr. D-70
hvers konar neta- og nótaflot,
baujur og belgi og fríholt. Fram-
leiðsla Baskelitt er mjög fjölbreytt
og mætir þörfum margra og hefur
framleiðsla þeirra fengið mikla
reynslu hérlendis eða á þriðja tug
ára, en framleiðslan er sífellt að
þróast.
British Robes Ltd., Englandi
stærstu stálvíraframleiðendur
heims, sýna þarna ýmsar gerðir
víra, frá fiskivírum til kranavíra
og allt þar á mili. Flestirþekkj a bláa
þráðinn, Rolls Roycinn í vírum, en
færri vita að þeir eru einnig mjög
stórir framleiðendur á köðlum
hvers konar t. d. verður sýnt
snurvoðartóg, sem hefur fengið
mjög góða reynslu hér. Ekki
skemmir að verðin eru nú mjög
hagstæð á þessari gæðafram-
leiðslu.
Dyno Norplast A/S Dyno Cipax
Nord AOS Noregi eru með sér bás
nr. D-86, þar sýna þeir ýmsar
gerðir af kössum, bökkum, kútum
og kerum, meðal annars nýja gerð
fiskikassa, sem eru auðveldari að
bera í höndum en eldri gerðirnar
og enn sterkari ef eitthvað er.
Mjög margar gerðir af fiskkössum,
bæði einangruðum og óeinangruð-
um eru sýndar og trúi ég að margir
eigi eftir að leggja leið sína til
Dyno, ekki hvað síst vegna aukins
ferskfiskútflutnings í gámum.
Hermann Engel Co, Bremer-
haven, hinn þekkti og leiðandi
framleiðandi í flottrollum sýnir í
bás nr. C-96. Hönnuðurinn
sjálfum, Hans-Hermann Engel
verður til viðtals í básnum og er
gaman að fá slíkan auðfúsugest
hingað heim.
Nichimen Co Ltd. Unitia, Japan
sýna þarna ýmsar gerðir nælon-
neta. Aflanetin frá Nichimen eru
gæðavara sem flestir vildu líkja
eftir og þarf vart að kynna netin
hér.
Nam Yang Fishing Net Ind. Co.
S-Kóreu sýna einnig nælon þorska-
net og nótaefni. ASIACO hefur
nýlega hafið samstarf við þetta
fyrirtæki, sem býður vörur sínar á
mjög hagstæðu verði.
ETS, Morgere, Frakklandi sýnir
hluta af framleiðslu sinni á úti-
svæði nr. F-14 en frekari upplýs-
ingar fást í aðalbásnum. Frönsku
Polycalent stálhlerarnir eru löngu
þekktir hér sem annarsstaðar og
eru „orginalinn af stálhlerunum“.
Panther Plast A/S, Danmörku
sýnir í aðalbásnum m. a. ýmsar
gerðir af plastflotum. Nokalon
trollflotin eru löngu orðin þekkt
hér, enda þau sem tóku við af
álkúlunum. 8“ djúpsjávarflotið
þeirra er það sem mest er notað
hér, enda reynst það besta af sinni
tegund. Er aldrei að vita nema
extra góð kaup gerist á þeim nú.
Parsons Chain Co Ltd., Bretlandi
sýna hér bæði Trawlex keðjur og
keðjulása og Kuplex lyftikeðjurog
tengi. Trawlex trollkeðjurnar og
„rauðu lásarnir“ eru löngu orðin
þekkt hér á landi, en færri þekkja
enn Kuplex, sem er sérstakt kerfi
keðju og tengja til að búa til hvers
konar stroffur til lyfinga. Hefur
kuplex mjög aukið öryggi í för
með sér, utan þess, sem það er
ódýrari lausn í notkun þar sem það
á við en venjulegar vírstroffur.
Pelters Co. Ltd., Englandi stærsti
bobbingaframleiðandi heims sýnir
á útisvæði nr. F-20 ýmsar gerðir
stál- og gúmmíbobbinga fyrir allar
gerðir trolla og báta og er hér um
geysimikið úrval að ræða til að
mæta öllum þörfum. Frekari upp-
lýsingar verða gefnar í aðalbásn-
um.
SABA/Mölnlycke sýna Tork
hreinlætisvörurnar. Er hér um að
ræða þurrkur og sápur bæði fyrir
grófa notkun eins og á verkstæðum
eða í vélarrúmum eða þar sem
Frá lagernum hjá ASIACO við
Suðurströnd á Seltjarnarnesi.
sérstaks hreinlætis er þörf eins og
í frystihúsum eða rannsóknarstof-
um. Tork vörurnar mæta öllum
þurrkunarvandamálum og munu
sölumenn sýna viðskiptavinum
vörurnar svo þeir geti sannfærst af
eigin raun.
SpanSet, Englandi sýnir hluta af
fjölbreyttu úrvali tækja til sjóbún-
aðar farms um borð í skipum og
böndum og smoffum til hverskyns
lyftinga og festinga.
Vickers Oils, Englandi sýna olíur
og smurefni til notkunar í stefnis-
rörum skipa og þar sem hætta er á
að sjór eða vatn komist að. Þar má
sérstaklega nefna Hydrox 21, sem
er stefnisröraolía, sérstaklega ætl-
uð til þess að draga úr olíuleka
þegar ásþétti skrúfubúnaðar hefur
orðið fyrir skemmdum. Þetta er
nýung hér á landi, sem væntanlega
á eftir að vekja athygli.
Thos B. Wellings Co. Ltd., Eng-
landi sýna hverskyns veiðarfæra-
lása, króka o. s. frv. ASIACO er
löngu orðið þekkt fyrir góða þjón-
ustu í öllu stáli fyrir togveiðarfæri
og þarna getur að líta sýnishorn af
því, sem á boðstólum er.
- Nú hefur ASIACO verið í
fremstu röð á sínu sviði í fjölda
ára. Hvers væntið þið af sjávarút-
vegssýningunni?
- Til viðbótar því sem ég hef
áður sagt má segja í stuttu máli að
við væntum þess að selja þær bestu
vörur, sem nú eru fáanlegar á
markaðnum til viðskiptavina
okkar, gamalla sem nýrra og til að
kynna okkur og þær vörur sem við
erum fulltrúar fyrir til nýrra kaup-
enda.
- Eruð þið með eitthvað sér-
stakt á sýningunni, sem þig munið
Bison hlerar á útlsvæði ASIACO.
leggja áherslu á að kynna. Eitt-
hvað nýtt sem menn hafa ekki séð
áður í heiminum?
- Allt sem við sýnum finnst mér
vera sérstakt og merkilegt, en það
er rétt að benda á það sem kann
að vera óvenjulegt og þar á ég við
sérstakar ferðir milli sýningar-
svæðis og verkstæðis- og vöruhúss
okkar. Þar getum við sýnt við-
skiptavinum og sýningargestum,
þá góðu aðstöðu, sem við höfum
skapað okkur. Þar verða einnig til
sýnis allar þær vörur, sem við
getum ekki komið fyrir í sýningar-
básum. Það er líka rétt, að við
sýnum í fyrsta sinn stóran „Bison“
toghlera. Þessi hleri er 1200 kíló,
ætlaður fyrir togara, en þeir sem til
þekkja vita að þessir sérstöku
hlerar hafa einungis verið til fyrir
báta fram til þessa. Við ráðleggj-
um öllum að heimsækja okkur til
að skoða þessa hlera ásamt öðru.
- Nú er sjávarútvegssýningin
haldin á tíma er hálfgerð kreppa
ríkir í íslenska sjávarútveginum.
Hvernig finnst þér að taka þátt í
sýningu á þessum tíma og ertu
bjartsýnn á að úr rætist?
- Það er Ijóst að þjónustufyrir-
tæki í sjávarútvegi líður nákvæm-
lega eins og útveginum sjálfum.
Erfiðleikar hans bitna á fyrirtækj-
um eins og okkar. Það er ríkasta
von okkar, að sjávarútvegurinn
megi fá eðlilegan rekstrargrund-
völl og standa í eðlilegum blóma,
enda ekki annað að sjá, en að
stærri hluti þjóðanna þurfi að lifa
á honum beint eða óbeint í nán-
ustu framtíð.
Meðan gert er út á íslandi, þarf
að þjónusta fíotann og við ætlum
okkur að vera hérna lengi, sagði
Kjartan Örn að lokum.