Fiskifréttir - 21.09.1984, Blaðsíða 38
38
föstudagur 21. september
Er skipið þitt
óstöðugt?
Stöðugleikatölva £yrir skip
Nýtt frá Wesmar
Nú hefur Wesmar komið með eina
nýjungina enn, en það er stöðug-
leikatölva, sem reiknar stanslaust
út stöðugleika skipa.
Eins og allir vita er stöðugleiki
skipa mikið öryggisatriði og hefur
verið mikið til umræðu nú í seinni
tíð.
Ýmis atriði geta haft áhrif á
stöðugleika skipa, eins og t. d.
ísing, yfirhleðsla á vörum eða
veiðarfærum, ásamt minnkandi
olíu um borð. Það sem tölvan
gerir, er að reikna stöðugt út
svokallað GM (sjá útskýringu) og
lætur skipstjórnarmenn vita, ef
skipið nálgast óstöðugleikapunkt
og hefur hann þá tíma til að breyta
hleðslu skipsins, tímanlega, áður
en óhapp verður.
GM er mæling á þyngdarstöðug-
leika skipsins, þ. e. lóðrétt fjar-
lægð milli þyngdarpunkts og velti-
punkts.
Ýmsir fróðleiksmolar um Fritz
Wright björgunargalla:
Föt þessi eru úr efni sem heitir
neoprene. Það er það efni sem
gefur fötunum floteiginleika sína.
Föt þessi eru þurrföt. Fötin koma
í þar til gerðum poka, appelsínu-
gulum að lit. Á poka þessum
standa eftirfarandi upplýsingar.
Fritz Wright björgunarföt. Full-
orðinsstærð (passar öllum).
1. Takið fötin úr pokanum.
2. Farið í fötin eins og um sam-
festing sé að ræða.
3. Dragið hettu yfir höfuðið.
4. Rennið rennilás hægt og jafnt
upp.
5. Blásið flothring upp þegar
komið er í sjóinn.
6. Fötin eru úr eldþolnu efni.
Við viljum benda á eftirfarandi:
1. Þegar fötin þarf að taka í
einum grænum úr pokanum,
er nóg að grípa í handfang á
botni pokans og rykkja snöggt
í, þá losna smellurnar og fötin
detta út.
2. Hettu skal draga vel yfir
höfuðið, helst þannig að allt
hár sé innundir henni.
3. Áríðandi er að vera vel
klæddur innan undir ef slys
ber að höndum. Það lengir
líflíkur í mjög köldum sjó.
4. Einnig er gott að vera sæmi-
lega mettur, allavega að hafa
sem mest vökvamagn í líkam-
anum.
5. Til að minnka hitatap í gegn-
um fötin er æskilegt að menn
séu í einum hnapp í sjónum,
helst þannig að menn liggi
með höfuð og hluta af baki
upp að brjósti næsta manns.
6. Örþreyta minnkar lífslíkur
talsvert. Það að synda í sjón-
um er talið stytta lífstíma um
ca. 35% á móti því að liggja
hreyfingarlaus.
7. Hægt er að klæða sig í fötin
eftir að komið er í sjóinn. Er
það gert með því að láta fötin
í sjóinn og leggjast síðan ofan
á þau og hægt og sígandi
smokra sér ofan í þau. Þetta
er eflaust ekki hægt, ef öldu-
gangur er einhver.
8. Á fötunum er flauta sem ætl-
uð er til að menn geti látið
heyra í sér. Einnig er á þeim
ljós, sem kveikt er á, með því
að kippa í handfang á raf-
hlöðu og fjarlægja það.
Kviknar þá á ljósinu ef raf-
hlaðan kemst í sjó. Endist
rafhlaðan í 8 tíma.
9. Fötin fljóta jafnvel, þó þau
fyllist af sjó. En kæling líkam-
ans verður að sjálfsögðu hrað-
ari.
10. Þegar stokkið er í sjóinn er
rétt að hafa fætur krosslagða.
Er talið að menn fari þá ekki
eins djúpt niður og annars.
Varast skal að stinga sér með
höfuðið á undan. Er þá hætta
á að lappir fljóti upp og höfuð
snúi niður. Á fótunum eru
öriggisventlar á hælum. sem
hleypa lofti út, ef menn snúa
11. Það er ætlast til þess að menn
fari í fötin eins og þeir eru
klæddir og í skóm. Þetta á að
sjálfsögðu ekki við ef: menn
eru í sjógalla.
12. Við teljum að menn eigi að
æfa sig að fara í fötin við góð
skilyrði í landi og einnig í
vondu veðri á rúmsjó. Að
sjálfsögðu er nauðsynlegt að
Árið 1965 kynntu Wesmar fyrstir
allra fjölgeisla sónar og hafa þeir
síðan verið stöðugt að þróa þetta
tæki.
í dag er Wesmar með fjölgeisla
litasónar, sem er með níu liti.
Örtölvutækni er notuð til að greina
styrkleika torfunnar sem verið er
að skoða og breytir henni í allt að
átta mismunandi liti, sem koma
fram sem stöðug mynd á skj ánum.
í hverju horni skjásins koma
fram tölulegar upplýsingar, t. d.
um stöðu botnbúnaðarins, hvort
hann er uppi eða niðri, hvaða skali
er notaður, halli á spegli frá +4°til
-90°, lægð og dýpi á torfu.
Fjarlægð og dýpi á torfu er
fengið með því að setja lausan
hring yfir þá torfu sem verið er að
skoða, þá reiknar tölva út lárétta
fjarlægð á torfuna og dýpi á henni,
út frá halla spegilsins.
Á skánum kemur fram 360°
mynd, sem er alveg stöðug, en
breytist við hverjasendingu. Hægt
er að minnka myndina allt niður í
15° geira og er hægt að hafa hann
hvar sem er í hringnum.
Þegar kveikt er á tækinu (són-
arnum) fer fram prófun á öllum
einingum hans og kemur það fram
á skjánum og getur notandinn þá
séð hvort allt er í lagi.
menn prufir að fara ís jóinn í
fötunum, t. d. í höfninni.
13. Athugið að fötin geta komið
að góðum notum við fleiri
tækifæri en í sjávarháska. Til
dæmis, ef maður fellur útbyrð-
is, geta menn óhikað hent sér
í fötum á eftir honum. Einnig
skal aldrei fara á milli skipa á
rúmsjó öðruvís en í björgun-
arfötum.
14. Það er mjög áríðandi að selta
og önnur óhreinindi séu þveg-
in af björgunarfötunum strax
eftir notkun, með því að
sprauta fersku vatni á þau. Ef
olía eða óhreinindi koma á
fötin, skal þvo það af með
sápuvatni. Þerra skal fötin vel
áður en þau eru sett í pokann,
jafnt utan sem innan.
Tæknilegar upplýsingar:
Senditíðni: 60kHz
Sendiorka 1/1: 1500W
Sendiorka 1/10: 150 W
Púlslengd: 0.2ms til 2.5ms
Botnstykkisgeisli: 9x14°
Skalar: 30, 60, 100, 150, 200, 300,
500, 800, 1200, 1600m.
Þessi sónar er mjög hentugur í
minni skip, bæði til síldveiða með
hringnót og einnig á togveiðar, til
að sjá botnlagið.
Reikna má með inestu lang-
drægni um lOOOm við góð skilyrði.
í Noregi voru seld yfir 90 tæki
árið 1983.
Verð á Wesmar SS270 fjölgeisla
sónar er í dag ca. 320.000 kr.
Umboðið fyrir Wesmar sónar
hefur ísmar hf., Rafeindaþjón-
usta, Borgartúni 29, 105 Reykja-
vík, símar 29744 og 29767.
Lokað sjónvarpskerfi fyrir skip og frystihús. Þetta kerfi hefur möguleika
á að sýna mynd frá einni eða fjórum myndavélum samtímis á skerminn.
Hægt er að fá mismunandi myndavélar, bæði fyrir litla og mikla birtu og
einnig sjálfvirka, fyrir breytilega birtu.
Vatnsþétt og upphituð hús, fyrir myndavélarnar, er einnig hægt að fá.
Mjög hagstætt verð.
Öll verð i is-
lenskum krónum
- á tolla og söluskatts, (gengi 28/8)
1. Scanmar veiðarfærastýring Frá kr. 250.000-
2. Raytheon Raynav 750 loran . . . til 600.000,- 50.500,-
3. Raytheon/JRC litavideoplotter .... - 132.000,-
4. Raytheon/JRC segulband við plotter . - 75.000,-
5. Raytheon 1200,12 sjómílna dagsbirtu ratsjá . 66.000,-
6. Raytheon 2500, lósjómílna dagsbirturatsjá . 77.500,-
7. Raytheon 3200, 32ja sjómilna ratsjá . - 88.500,-
8. Laus hringur og radaraðvörun — 14.000,-
9. Raytheon Ray 400 útikallkerfi, með einu gjallarhorni . . 14.950,-
10. Gjallarhorn . — 2.650,-
11. Raytheon DC-50 dýptarmælir, með 50 kHz botnstykki 20.000,-
12. Raytheon V-900 litadýptarmælir fyrir minni báta, 50 kHz botnstykki 68.000,-
13. JMC-FX 240 veðurkortaritari _ 71.000,-
14. Fitz Wright björgunarföt, samþykkt af Siglingarmálastofnun. Yfir 50 stk. þegar seld 11.680,-
15. Wesmar SS 270 fjölgeislasónar, 60 kHz, lOOOm langdrægni 337.000,-
16. Wesmar SC^44 Stability Computer, með prentara 144.000,-
17. Wesmar AP 800 sjálfstýring - 39.800,-
18. Optik-Elektronic myndkerfi: - Video monitor 12“ 9.450,-
- Quad selector 4QNG-1A — 9.9975,-
- VC 654 10 lux myndavél - 4.940,-
- 8mm linsa - 1.330,-
- VC 673 1 lux myndavél — 16.200,-
- Upphitað hús fyrir myndavélar . . . - 3.600,-
19. -25mm linsa, með sjálfvirkri birtustillingu .... Ben vegmælir, án aflesturstækis .... - 5.670,- 43.000,-