Fiskifréttir - 21.09.1984, Blaðsíða 12
12
föstudagur 21. september
Netasalan hf. með alheimsfrumsýningu á
Alþjóða sjávarútvegssýningunni 1984:
Ný tækni I froðuhreinsun
og hnútalausar loðnunætur
„Ég held að það fari ekki milli
mála að við munum kynna ýmsar
gagnlegar nýjungar á sýningunni“,
sagði Daníel Þórarinsson, fram-
kvæmdastjóri Netasölunnar hf. í
viðtali við Fiskifréttir. „Við mun-
um leggja mikla vinnu í að kynna
það sem við höfum að bjóða fyrir
viðskiptavinum okkar og öðrum
þeim sem sýninguna sækja“.
Daníel sagði að Netasalan
mundi sýna tæki og búnað fyrir
bæði útgerðina og fiskvinnsluna.
En skoðum fyrst það sem fyrirtæk-
ið sýnir áhugasömum stjórnendum
fiskvinnsluhúsa:
Scanima-froðuhreinsitækið
Danska fyrirtækið SCANIMA
frumsýnir á sýningunni nýja gerð
af froðuhreinsitæki, sem þeir kalla
2000 M, tæki sem er smíðað að
langmestu leyti úr ryðfríu stáli.
Froðan úr froðutækinu „hangir“ á
veggjum og láréttum flötum og
hreinsiefnið losar óhreinindin. Á
eftir eru fletir spúlaðir og sápa og
óhreinindi fara sína leið.
„Við settum okkur það mark-
mið að framleiða vél sem gerði
hreint án þess að slíta óeðlilega
viðkvæmum innréttingum“, segir
Vagn Andersen deildarstjóri hjá
Scanima, en hann mun verða í
sýningardeild Netasölunnar hf. og
svara fyrirspurnum viðskiptavina.
„Auk þess lögðum við áherslu á
að gera hreingerninguna þannig úr
garði að hún kæmi til móts við
allar kröfur nútímans og framtíð-
arinnar auk þess sem hún skapaði
þægilegan vinnustað.“ Og þetta
telur hann að hafi einmitt tekist
með smíði nýja froðuhreinsitækis-
ins.
Vélin framleiðir og dreifir
„blautu“ froðuefni, sem er mynd-
uð með þrýstivatnsdælu og loft-
dælu. Blöndungur vélarinnar er
nýlega hannaður og blandar hann
saman vatninu og sápunni í hárná-
kvæmum hlutföllum. í síðasta
þrepi blöndungsins bætist þrýsti-
loft við, en einmitt þetta gerir
kleift að nota hreinsimiðla með
afar lágu innihaldi löðurs, sem
aftur eykur áhrifin af hreingern-
ingunni. Efnið er lagt á með mjög
lágum þrýstingi, 8 bar. Það þýðir
ennfremur að ekki myndast aero-
sol-þoka í vinnusalnum.
Spúlað er eftir 5-20 mínútur
með krafti sem er nálægt 30 bar,
sem er lágur þrýstingur og hlífir
viðkvæmum búnaði og innrétting-
um.
Þá getur vélin lagt úr sóttvarnar-
efni á 12 bar þrýstingi.
Vagn Andersen sagði að lokum
að þeir hjá Scanima tryðu því að
vélin yrði til þess að vernda heilsu
fólks á vinnustöðum, auk þess sem
þrifnaður stórykist frá því sem
áður hefur tíðkast, og það byggðist
á lágþrýstingi vélarinnar, sem er
fimmfalt minni en við höfum þekkt
til þessa.
Plastkassar fyrir rækjuskipin
Netasalan mun sýna enska plast-
kassa frá hinu gamalkunna GPG
International, einnig plastbakka
frá sömu aðilum. Innflutningur á
þessari vöru er tiltölulega nýlega
hafinn og hefur þótt henta vel í
rækjuskipunum. Þola kassarnir
sérlega vel frost, enda úr öðru
plasti en algengast er, brotna
minna og endast því vel.
Bindivélar og færibönd
Fyrir pökkun og meðferð kassa
hefur Netasalan upp á ýmislegt að
bjóða, m. a. einkar netta og hand-
hæga handbindivél fyrir plast. Þá
verður kynnt á sýningunni rúllu og
hjólafæribönd, ekki ósvipuð þeim
sem við þekkjum frá flugvöllun-
um. Hægt er að stilla þessi færi-
bönd, lengd þeirra og stefnu. Þessi
færibönd eru kynnt hér í fyrsta
sinn.
Vírar með innbyggða vörn gegn
tæringu og ryði
Frá H&T Marlow Ltd., stærsta
tóframleiðanda Bretlands sýnir
Netasalan m. a. víra með inn-
byggðri vörn gegn tæringu og ryði.
Auk þess verður sýnt ýmislegt
annað frá þessu mikla fyrirtæki,
m. a. Nelson-blýteinninn, land-
festatóg, dragnótatóg og fleira.
Japanir með nýtt og betra loðnu-
nótarefni
Að sjálfsögðu sýnir Netasalan net
og nætur frá japansaka fyrirtækinu
Nippon Kenno Co. Ltd., en það
fyrirtæki hefur hafið framleiðslu á
nýrri gerð loðnunótaefnis, hnúta-
lausu, sem vakið hefur mikla at-
hygli. Reyndar svo miklar að Rúss-
ar hafa fest kaup á slíkum nótum,
og er þó sagt að mikið þurfi til að
fá þá til að kaupa tækninýjungar
frá öðrum löndum. Hnútalausa
loðnunótarefnið er einkar
staðfast, það hróflar sér ekki þrátt
fyrir að mikið sé á það lagt við
veiðarnar. Efnið er fyrirferðar-
minna, sekkur betur en fyrri gerðir
og styrkur þess er talinn vera
25-30% meiri. Mótstaða í kastinu
verður mun minni. Nætur hafa
mest slitnað á hnútunum, en hér er
ekki hætta á slíku. Nótin safnar
líka ekki í sig skít eins og eldri
gerðir nóta.
Þá eru nýjustu fréttir af þorska-
netum, þrísterk net eru þau
kölluð. Þetta eru þríþátta þræðir
festir saman. Þetta net á að hafa
miklu meiri endingu en þau sem til
þessa hafa verið notuð við veiðar
hér og spáði Daníel Þórarinsson
því að það mundi vekja mikla
athygli fiskimanna og útgerðar-
stjóra á sýningunni.
Ýmislegt fleira mun bera fyrir
augu í sýningarbás Netasölunnar
hf., m. a. má nefna brýningartæki
frá Bandaríkjunum, sem sparar
ekki aðeins tíma, heldur sér um að
hnífarnir séu alltaf í toppformi,
þegar á þarf að halda. Þá verða
sýnd plastkör frá Dolav í ísrael, ný
gerð sem eru útfærð með það fyrir
augum að þrif verði auðveldari.
Netasalan er um þessar mundir
að flytja frá sínum gömlu höfuð-
stöðvum við Klapparstíginn.
Fyrirtækið verður í framtíðinni til
húsa í Hafnarhúsinu í austurend-
anum á 4. hæð. Þar verða bæði
vörugeymslur og skrifstofur.
NETASALAN
KLAPPARSTÍG 29,
101 REYKJAVIK,
S.24620
Daníel á skrifstofu Netasölunnar.
Daníel Þórarinsson framkvæmdastjóri Netasölunnar á tali við viðskiptavin.