Fiskifréttir - 21.09.1984, Page 18
18
föstudagur 21. september
Pétur O. Nikulásson:
Nýju gaflallyttararnír frá Steinbock Boss
„Útkoman er frábær eða réttara sagt bylting“9 segir Pétur Pétursson
Heildverslunin Pétur O. Nikulás-
son hefur um langt skeið sérhæft
sig í þjónustu við fiskiðnaðinn í
landinu. A þessu ári urðu nokkur
straumhvörf í starfsemi fyrirtækis-
ins þar sem hafinn var innflutning-
ur á lyfturum af nýrri gerð.
„Til að forvitnast um þessa nýju
lyftara hafði blaðamaður samband
við Pétur Pétursson framkvæmda-
stjóra fyrirtækisins og var hann
fyrst spurður hvaðan hinir nýju
lyftarar kæmu.
Tildrög þess að hafin var fram-
leiðsla á þessum nýju lyfturum eru
þau að Steinbock fyrirtækið í Vest-
ur-Pýskalandi var selt til stór-lyft-
araframleiðandans LANCER
BOSS. Eftir sameiningu þessar
tveggja risa í lyftara framleiðslu
urðu þeir sameinaðir einir af fimm
stærstu lyftaraframleiðendum í
heimi. Strax var hafist handa um
að endurskipuleggja reksturinn og
hanna tæki sem markaðurinn í
Evropu beið eftir. Þeir tóku það
ráð að nota það besta frá hvorum
framleiðanda fyrir sig og útkoman
varð frábær eða réttara sagt
bylting. Steinbock Boss sem er-
lendu framleiðendurnir heita nú
eftir sameininguna bjóða nú
endurbætta lyftara á um 15% lægra
verði en mögulegt var að bjóða
áður“.
Pétur sagði að viðtökurnar
hefðu verið mjög góðar gagnvart
hinum nýju lyfturum hér á landi og
hefðu þeir selt á þessu ári 26
lyftara sem mest hefðu farið til
fiskiðnaðarins, en einnig til
annarra fyrirtækja sem þurft hefðu
á lyfturum að halda.
Varðandi varahlutaþjónusutuna
sagði hann að þeir hefðu alltaf lagt
metnað sinn í að sinna því hlut-
verki vel enda ekkert bagalegra
fyrir viðskiptavin en að missa lyft-
ara úr þjónustu sinni vegna skorts
á varahlutum.
„Hverjar heru helstu breytingar
sem orðið hafa á hinum nýju
lyfturum?“
„Pað helsta sem hefur breyst í
lyfturunum frá Steinbock Boss er
það að þeir eru hraðvirkari en
eldri gerðir, helðslan endist lengur
og þeir þola mjög vel vinnu í salti,
bleytu og frosti. innig má nefna að
hinir nýju lyftarar eru búnir svörtu
útsýnismastri sem eykur mjög á
möguleika ökumannsins til að
forðast margvslegar hættur þegar
ekið er með hlass á lyfturunum“.
„Hafið þið komið fram með
fleiri nýjungar?“
„Það nýjasta sem við erum með
er stálborðabindivél til að binda
skreiðarpakka. Vélin erfljótlegog
handhæg og nýtur vaxandi vin-
sælda í skreiðarverkuninni. Bindi-
vélin notar engar kelmmur heldur
pressast stálborðinn saman og
klippist með einu handtaki. Hana
má auðvitað nota við margs konar
aðra pökkun, en í fiskiðnaðinum
nýtist hún fyrst og fremst í skreið-
inni.“
Pétur sagði að þeir hefðu enn-
fremur á undanförnum tveim árum
getað boðið rafgeyma í alla raf-
magnslyftara beint frá framleið-
anda Oldham Batteries í Eng-
landi. Þeir hefðu reynst mjög vel
við hin erfiðustu skilyrði og þolað
mikið vinnuálag við störf í fiskiðn-
aði. Verðið væri einnig mjög
hagstætt.
„Við hjá heilverslun PON reyn-
um að hafa aðeins á boðstólum
gæðavörur sem viðskptamenn
okkar geta treyst á. Okkur er ljóst
að bestu sölumennirnir eru ánægð-
ir viðskiptamenn og þá er sem
betur fer að finna nær alls staðar
þar sem fiskur er verkaður." sagði
Pétur Pétursson að lokum.
Pétur Pétursson.
Örtölvutækni:
Mælarnir firá Ortölvutækni
verða sifiellt fiullkomnari
skólans, en framleitt af Örtölvu-
tækni. Það er notað til að mæla
frumuframleiðni. Kosturinn við
það er, að mæling fer fram á
staðnum og allar niðurstöður eru
tiltækar nánast um leið, í staðinn
fyrir að áður fyrr tók það oft
alllangan tíma að fá handhægar
niðurstöður,“ sagði Arnlaugur
Guðmundsson hjá Örtölvutækni
að lokum.
„Við kynnum auðvitað fyrst og
fremst framleiðsluvörur okkar sem
nýtast í sjávarútvegi á sýningunni
í Laugardalshöll," sagði Arnlaug-
ur Guðmundsson hjá Örtölvu-
tækni h/f í samtali við Fiskifréttir.
„Fyrirtækið hóf starfsemi sína
árið 1978 og við byrjuðum að
framleiða mælitæki og þá fyrst
sjávarhitamæla. Þetta var í fyrst-
unni mjög einfaldur mælir með
aðeins einum nema. En í samræmi
við óskir og þarfir viðskiptavina
okkar framleiðum við nú og seljum
hitamæla sem geta sýnt hitastig á
fleirum en einum stað. Og það
allra nýjasta er hitasírati,“ sagði
Arnlaugur.
Fyrirtækið framleiðir einnig
hitamæla fyrir hærra hitastig. þeim
er ætlað að mæla afgashita frá
vélum. Eiginlega má segja að um
sé að ræða lágmarksvélgæslu með
þessum hætti. Með mælinum er m.
a. hægt að fylgjast með hitastiginu
í afgasi, í höfuðlegum, skollofti,
olíu og í vatni. Þannig er hægt að
fylgjast með hita á 30 stöðum og
þessi mælir hefur mjög öfluga
aðvörunarrás. Hægt er að stilla
mælinn þannig að við ákveðið
hitastig á hverjum stað fyrir sig
vari hann við með ljósmerki eða
sírenu. Aðvörunarmörkum ræður
sá sem stjórnar tækinu. Það fer allt
eftir skilyrðum í hverju tilfelli fyrir
sig hver þau eru.
„Til að koma til móts við þá sem
eru með minni vélar höfum við
litla útgáfu af afgasmæli. Þar er í
rauninni um að ræða ódýrari og
einfaldari útgáfu af hinum mælin-
um“ sagði Arnlaugur.
„Við munum á sýningunni sýna
olíueyðslumæli sm sýnt getur bæði
olíunotkun á klukkustund og einn-
ig heildar olíunotkun. Þá er einnig
hægt að sjá hversu mikilli olíu
vélin eyðir pr. mílu. Við þennan
mæli er svo hægt að tengja fjaraf-
lestrartæki, sem hægt er að hafa
annars staðar. Það sýnir eyðsluna
í lítrum á klukkustund,“ sagði
Arnlaugur.
Fyrirtækið mun einnig vekja
athygli á tæki sem smíðað hefur
verið fyrir Elektra. Það er örtölvu-
stýrð stjórnunareining fyrir hand-
færarúllur. Þar er um að ræða
viðbót við eldri gerðir af Elektra
handfærarúllum. Það sem þessi
stjórnunareining gerir er, m. a. að
sýna dýpi, að skaka og hún man
hvar fiskur fékkst síðast. Og það
sem vinnst er einfaldlega það, að
einn maður getur sinnt fleiri rúll-
um í einu.
„Loks viljum við geta tækis sem
nýtist fiskifræðingum. Það er
hannað af Raunvísindastofnun Há-
Arnlaugur Guðmundsson í Örtölvutækni.