Fiskifréttir - 21.09.1984, Page 22
22
föstudagur 21. september
„Eina vélin sem sameinar
sjálfvirka flokkun og samval
— segir Ólafur Richardsson hjá Ólafi Gíslasyni
„Ekkert tæki jafnast á
við Aicorpo“
„Það er ekkert tæki sem jafnast á
við Aicorpo við flokkun á fiski.
Þetta er mjög gott fyrir okkur sem
lausfrystum flök,‘‘ sagði Borgar
Ólafsson hjá Baldri hf. í Keflavík
um Aicorpo samvalsvélina frá
Ólafi Gíslasyni & Co. „Við höfum
notað hana í 1 1/2 mánuð og hefur
hún reynst mjög vel. Hún er mjög
nákvæm, það er gott að vinna við
hana. Hún er auðveld í hirðingu
og eftirliti og hefur ótvíræða kosti
fyrir okkur. Það væri hægt að gera
þessa hluti án hennar, en það þarf
færra fólk og hún þarf sáralítið
eftirlit,“ sagði Borgar að lokum.
„Það hafa verið fleiri aðilar með
flokkunarvélar hér á landi, en
engir aðrir hafa verið með vélar
sem sameina sjálfvirkt flokkun og
samval,“ sagði Asmundur Rich-
ardsson hjá Ólafi Gíslasyni og Co
er hann greindi blaðamanni Fiski-
frétta frá nýrri örtölvustýrðri
flokkunar- og samvalsvél frá AIC
í Álaborg í Danmörku. Hann kvað
þetta tæki hafa mjög mikið gildi
fyrir fiskiðnaðinn, sem átt hefur í
örðugleikum með að aðlaga sig að
kröfum nútímamarkaðar um nýjar
pakkningar og flokkun afurða.
Þessi vél getur flokkað hvað
sem er, en hér á landi kemur hún
fyrst og fremst til með að nýtast í
fiskiðnaði. Aicorpo, en það er
vélin nefnd getur flokkað í 8, 16,
24 eða 32 flokka með fimm föstum
prógrömmum í senn. Auðvelt er
að skipta úr einni fisktegund eða
pakkningu í aðra. En hverjir
skyldu vera helstu kostirnir við
vélina?
- Aicorpo samvalsvélin er ör-
tölvustýrð og því er unnt að breyta
„prógrömmum“ hennar á fjöl-
marga vegu og þannig mæta öllum
hugsanlegum breytingum á pakkn-
ingum og flokkun.
- Stykkjafjöldi, heildarþungi
og fjöldi pakkninga skráist jafnóð-
um inn í minni vélarinnar og er
hægt að kalla það fram á skjánum
eða á prentara hvenær sem er
dagsins.
- Þungamörk hvers flokks,
ásamt staðsetningu á færibandinu
eru stimpluð inn í minni vélarinn-
ar, en boð um lokun „porta“
miðast við lengd færibandsins en
ekki tíma frá vigtun, því er hægt
að velja hverjum flokk stað hvar
sem er á færibandinu í allt að 100
metra fjarlægð.
- Lengdarmæling á flokkunar-
bandinu í stað tímamælingar,
kemur í veg fyrir villur ef flök eða
fiskur skríður til á vogarbandinu.
- Fótósellur eru óþarfar við
lengdarmælingu, sem er mikill
kostur, því þær þola illa vatn og
óhreinindi.
- Stór kostur er, hversu ná-
kvæm vogin er. Hún vegur stykkið
300 sinnum á vogarbandinu og allt
að 200 stykki á mínútu.
- Hún gefur merki eða lokar
hólfi þegar ákveðinni þyngd eða
fjölda er náð í einum eða fleiri
flokkum. Önnur hólf taka við
flokkuninni meðan þau fyrri eru
tæmd.
- Vélin er fullkomlega elek-
trónísk og byggð á stöðluðum
prentrásakortum, sem skipta má
um og er því einföld í viðhaldi.
- Vélin er smíðuð úr ryðfríu
stáli og kerfið allt vatnsþétt.
- Sjálfvirk núllstilling á milli
hverrar vigtunar kemur í veg fyrir
uppsöfnun þyngdar vegna bleytu
og úrgangs á vogarbandinu.
- Tengja má samvalsvélina
tölvukerfum sem flest frystihús
nota í dag.
Verksmiðja Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna í Grimsby notar
samvalsvél. Aicorpo er notuð með
góðum árangri í nágranna- og
samkeppnislöndum okkar íslend-
inga og hér á landi eru þrjár í
notkun, sú nýjasta kom nú í sumar
til Baldurs hf. í Keflavík.
Nýjasta gerðin af Aicorpo 332
hefur 30 prógrömm í stað 5. Með
því móti eykst hæfni tækisins til
alls eftirlits og framleiðslustýring-
ar. Auk þess gerir það fram-
leiðendum auðveldara að ganga
frá framleiðslunni í neytenda-
umbúðir í samræmi við kröfum
Efnahagsbandalags Evrópu.
Ólafur Gíslason & Co. vekja
athygli á nýjung í flutningi hráefnis
innan vinnslustöðva, kervog sem
tengist lyftara.
Aicorpo samvalsvélin hjá Baldri hf. í Keflavík.
r
Isvélar hf.:
Framleiðir nú bæði £ersk-
ísvélar og sjávarisvélar
— Aukin ísnotkun um borð bætir gæði afians
„Við höfum framleitt frystivélar í
10 ár,“ sagði Sigurður Sigurðsson
framkvæmdastjóri ísvéla hf. í sam-
tali við Fiskifréttir. „Fyrirtækið
hefur fengið mjög litla umfjöllun í
fjölmiðlum, en þrátt fyrir það
hefur það þjónað íslenskum sjá-
varútvegi í áratug. Fyrstu átta árin
fór þessi framleiðsla fram innan
fyrirtækisins Stálver, en fyrir
tveimur árum var fyrirtækið ísvél-
ar hf stofnað. Á þessum tíu árum,
höfum við framleitt á annað
hundrað vélar og selt þær flestar á
innanlandsmarkaði og lítilsháttar
í Noregi og Bandaríkjunum.“
Aðspurður um, hvort fyrirtækið
hefði í hyggju að reyna fyrir sér á
öðrum mörkuðum sagði Sigurður,
að fyrir einu ári hefði verið stofnað
í Bandaríkjunum fyrirtækið Ice
International. Starf þess fyrirtækis
væri að selja framleiðslu ísvéla hf.
Að undanförnu hafa verið kannað-
ir af hálfu Ice International mark-
aðir í Súdan, Nígeríu og Saudi-
Arabíu.
„Það má segja að við framleið-
um vélar af öllum stærðum, allt frá
vélum sem framleiða 1/2 tonn af ís
á sólarhring til véla sem framleiða
20 tonn af ís á sólarhring. Þetta eru
bæði ferskísvélar og sjávarísvélar.
Vinsælastar eru þriggja Og tíu
tonna vélarnar og eru þær mikið
teknar í smærri fiskverkanir,
rækjuvinnslur og frystihús," sagði
Sigurður. „Um borð í togurum eru
þetta 1, 2 eða 3 sjö tonna sjávar-
ísvélar, en í bátum eru hins vegar
oftast tveggja tonna vélar.“
Sigurður sagði að það mætti
meðal annars þakka aukinni ís-
notkun, hversu miklu betri afli
hefur komið að landi að undan-
förnu. Síðasta vertíð væri mjög
gott sæmi um það.
„Þegar byrjað var á framleiðslu
ísvéla hér hjá ísvélum, var mjög
lítill hluti vélarinnar smíðaður hér
á landi. Hlutar vélanna voru flestir
smíðaðir erlendis en settir saman
hér. En þetta hefur verið að breyt-
ast og nú er svo komið að vélin er
alfarið íslensk framleiðsla,“ sagði
Sigurður.
Sé litið á núverandi stærð fyrir-
tækisins er ljóst að íslenski mark-
aðurinn er nógu stór. En ef við
ætlum okkur að ná að auka okkar
hlut, þá verðum við að líta til
annarra landa. Og það er hug-
myndin að baki Ice International.
Við íslendingar erum að bjóða
öðrum þjóðum sem talist geta
vanþróaðar á sviði sjávarútvegs
hugmyndir og kunnáttu. Við eig-
um að láta fylgja með, að selja
þeim íslenskan iðnvarning, tæki
og búnað til nota í sjávarútvegi,“
sagði Sigurður Sigurðsson fram-
kvæmdastjóri ísvéla að lokum.
ISVELAR H.F.
Funahöfða 17,
110 Reykjavík, lceland
Telephone:
+354-1 - 83444,
Telex: 2012 virkir is
Það stendur fyrir dyrum smíði
ísverksmiðju í Þorlákshöfn, sem
ætlað er að þjóna Þorlákshöfn.
Eyrarbakka og Stokkseyri. Áætl-
uð afkastageta hennar er 100 tonn
á sólarhring og í samtali við Fiski-
fréttir kvaðst Sigurður Sigurðsson
hjá ísvélum hf. vonast til að fyrir-
tækið annaðist smíði verksmiðj-
unnar að einhverju eða öllu leyti.
Þetta verður stærsta ísverksmiðja
landsins og mun gert ráð fyrir að
íslagerinn verði 1000 tonn. Stærsta
verksmiðjan nú er í Grindavík og
framleiðir hún 70 tonn á sólarhring
og er lager hennar 600 tonn. Búist
er við að framkvæmdir við verk-
smiðjuna hefjist í haust.