Fiskifréttir - 21.09.1984, Blaðsíða 26
26
föstudagur 21. september
Hreinlætið aukið um leið og
kostnaðurinn stórlækkar
Á tímum skerts aflamagns er
meira lagt upp úr betri og þarmeð
dýrari matvöru frá sjávarútvegin-
um. Hreinlæti hverskonar, hvort
heldur er um borð í skipunum eða
í fiskiðnaðarfyrirtækjunum skiptir
æ meira máli. Víða hefur verið
pottur brotinn í þessum efnum, og
stjórnendur fyrirtækja hafa e. t. v.
ekki gefið gaum að þessum þætti
rekstrarins eins og vert er.
Fyrirtækið Rekstrarvörur að
Langholtsvegi 109 er mjög sérhæft
fyrirtæki. Það leggur langmesta
áherslu á hreinlætisþáttinn í
matvælaiðnaði og hefur raunar
náð skjótum árangri á þessu sviði,
bætt hreinlæti á vinnustöum á
sama tíma og kostnaður hefur
lækkað.
Fiskifræettir ræddu við eiganda
Rekstrarvara, Kristján Einarsson.
Hann stofnaði fyrirtæki sitt fyrir
þremur árum í bílskúr í austur-
borginni, en núna er hann fluttur í
rýmra húsnæði og hjá honum
starfa 8 manns.
„Við erum búnir að ráða hingað
matvælafræðing, sem starfaði hjá
Framleiðslueftirliti sjávarafurða.
Með ráðningu hans teljum við
okkur geta boðið enn betri þjón-
ustu við fiskiðnaðinn“, sagði
Kristján .
Kristján sagði að hægt væri að
nefna ótal dæmi um það að hrein-
gerningar og hollustumál í fiskiðn-
aði hér væru handahófskennd og
háð tilviljunum. Hreingerning
fyrirtækisins væri yfirleitt síðast í
vinnsluferli dagsins og oft á tíðum
væri verkið „drifið af“, e. t. v.
meira af kappi en forsjá. Sagðist
hann til dæmis vita af fyrirtæki sem
lét 25 starfsmenn vinna í 45 mínút-
ur í lok starfsdags við hreinsun.
Eftir að þau kerfi, sem hann býður
upp á voru tekin í notkun, reynist
unnt að láta tvo menn koma og
þrífa allt skipulega. Tíma og pen-
ingasparnaður fyrirtækisins á einu
ári er umtalsverður.
Rekstrarvörur vinna í samstarfi
við danska fyrirtækið Blumpller -
Scan Otarés, sem þekkt er fyrir
samskonar störf fyrir dönsku
sláturhúsin. Rekstrarvörur vinna
nú eftir áætlunum þessa danska
fyrirtækis og nýtur góðs af reynslu
þess.
Fyrirtækið gerir tillögur um
vinnuaðferðir, tæki sem nota skal
og réttu efnin til að ná sem bestum
árangri. Þá er útbúið kennsluefni
fyrir starfsmenn og haldin nám-
skeið. Sem sagt, hér er boðið upp
á heildarlausn á hreinlætismálum
fiskiðnaðarfyrirtækisins. Áætlunin
um hreingerningu er mjög
nákvæm, þar er ekkert undan
skilið. Markmiðið er betri vinnu-
staður og aukin gæði matvörunn-
ar, auk þess sem hreingerning-
avinnan getur orðið ódýrari.
„Staðreyndin er að þessi þáttur
hefur óvíða verið verðlagður, en
kostar oft á tíðum stórfé, þegar
farð er að skoða málin“, sagði
Kristján. „Oft er hægt að koma við
mikilli hagræðingu á þessu sviði
um leið og betri árangri er náð. Því
miður veit ég til þess að slæm vara
hefur orsakast af óhreinlæti, til
dæmis slælegum kassaþvotti".
Rekstrarvörur hafa á boðstólum
ótal hreinsiefni fyrir matvöru-
framleiðslufyrirtækin, rétt efni fyr-
ir hvern krók og kima í öllu húsinu.
Kristján sagði að til greina kæmi
að fyrirtækið tæki í framtíðinni að
sér verktakastörf hreingerningum
matvælafyrirtækja, en það mál er
enn sem komið er ekki frágengið
en til athugunar.
Þá selur fyrirætkið handþvotta-
krem og handþvottafeni fyrir
hverskonar vinnustaði, auk hand-
þurrkna af ýmsum gerðum og
wc-pappír. Einnig býður fyrirtæk-
ið Rekstrarvörur upp á ýmsan
vinnufatnað, t. d. gúmmístígvél
með öryggissólum, en þau henta
mjög vel í matvælaiðnaði og ann-
ars staðar þar sem gólf gata reynst
hættuleg vegna bleytu. Þá eru
Rekstrarvörur með sérstaka
gúmmíhanska sem henta vel í
fiskiðnaði.
Umboðsmenn Rekstrarvara eru
á Akranesi, ísafirði, Akureyri,
Þórshöfn, Egilsstöðum og í Vest-
mannaeyjum.
„Við hföumí raun sagt skilið við
veiðimannaþjóðfélagið og lifum
nú við þá staðreynd að fiskurinn er
iðnaður, sem þarf að vera háþróuð
grein, ef vel á að ganga, enda er
fiskurinnokkar stóriðja. Það þarf
því að vinna faglega að hverjum
þætti þessarar miklu iðju“, sagði
Kristján Einarsson að lokum.
■ Auglýs- inga síminn er 687066 ■
Auglýs- inga síminn er 687066 ■ Auglýs- inga síminn er 687066
■ Fiski fréttir ■
Auglýs- inga síminn er 687066 ■ Auglýs- inga síminn er 687066
■ Auglýs- inga síminn er 687066 ■
MOTOROLA
Alternatorar
6-12-14-32-V
35 - 120 - A.
Haukur og Ólafur
Ármúla 32 - Sími 37700
iplwllll
• Aðalvélar í skip og
^ Rafstöðvar til lands og
Hliðarskrúfuvélar fyrir skip.
Sér hannaðar vararafstöðvar fyrir sjúkra-
hús, verslunarhús, verksmiðjur, banka o.fl.
Vélar fyrir allar tegundir vinnuvéla.
Landsþekkt varahluta- og viðgerðarþjón-
K|f‘
fi'C'i 'iy -
LEITIÐ
UPPL ÝSINCA
OC
TILBOÐA
ÍBÁS-D 156
Björn og Halldór hf.
Vélaverkstæði — Síðumúla 9 — Símar 36030 og 36930
Vú.y'