Fiskifréttir - 21.09.1984, Síða 35
föstudagur 21. september
35
ISMN*
i
ISMar hí
Ra£eindaþ jónusta
Geri aðrir betur
— Góður árangur hjá Scanmar
Margir spáðu Scanmar skammlífi
þegar fyrirtækið var stofnað fyrir
rúmum fjórum árum. Sem í sjálfu
sér var ekkert skrítið, þar sem þeir
höfðu háar hugmyndir um þróun
og framleiðslu á veiðarfærastýr-
ingu, til notkunar á veiðarfærum.
Á sama tíma voru flestir markaðir
í heiminum lokaðir að mestu,
vegna slæms ástands í sjávarút-
vegi.
Reynslan á þessum árum hefur
sýnt, að bjartsýnin getur borgað
sig. Samvinna notendaogScanmar
gerði þeim kleift að hanna, með
nýrri tækni, tæki sem mikil þörf
var fyrir og stuðlaði að hagkvæmni
fyrir notendur. í dag líta menn á
Scanmar veiðarfærastýringu sem
fjárfestingu sem skilar sér fljótt
aftur.
Móttökur þær sem Scanmar hef-
ur fengið hafa verið frábærar, ekki
aðeins í Noregi þar sem tækin eru
framleidd, heldur hjá flestum
fiskiþjóðum heimsins.
Scanmar veiðarfærastýring gef-
ur þráðlausar upplýsingar frá trolli
eða hringnót. Eru nemar settir á
veiðarfærið, sem senda síðan upp-
lýsingar upp til skipsins, í þar til
gert botnstykki og þaðan í aflest-
urstæki í brú. Nemar þeir sem
fáanlegir eru í dag eru eftirfarandi:
Aflamagnsnemar eru notaðir til
þess að segja til um hvort afli er
kominn þar sem þeir eru staðsettir
á trollinu og hefur reynslan sýnt að
þeir geta einnig sýnt mönnum hvar
og hvenær fiskur kemur í trollið,
þannig að menn geta snúið við og
farið aftur yfir þá staði sem gefa
fisk.
Hitanemi gefur upplýsingar um
hitastig sjávar, þar sem trollið er í
sjónum og þar af leiðandi eykur
möguleikann á að finna þau hita-
skil sem fiskur heldur sig í.
Dýpisnemi gefur upplýsingar
um dýpi, sökk- og hífingarhraða á
hringnót eða flottrolli.
Höfuðlínuhœðarnemi gefur
upplýsingar um hæð höfuðlínu frá
botni, þ. e. opnun trollsins. Er
þessi nemi sá nýjasti frá Scanmar.
Vængenda- eða Hlerafjarlægð-
arnetni. Nú þegar hafa verið smíð-
uð prufueintök af þessum nema og
er verið að gera tilraunir með
hann. Væntanlega verður hann
Færi ekki á loðnuveiðar
á ný án Scanmar
veiðar(ærastýringar“
— segir Sævar Þórarinsson
Fyrsti íslenski loðnubáturinn, sem
tók Scanmar veiðarfærastýringu í
notkun var Albert GK-31, en fyrir
síðustu loðnuvertíð voru settir
Scanmar nemar á nótina. Það kom
í ljós á loðnuvertíðinni að stór-
kostlegt gagn er af þessum nemum
og nú hafa verið pantaðir nemar á
nætur fjölda loðnuskipa. Sævar
Þórarinsson skipstjóri á Albert
sagði þegar rætt var við hann, að
hann hefði kunnað mjög vel við
Scanmar veiðarfærastýringuna.“
Ég held því hiklaust fram, að ég
hafi fengið meiri loðnu í vetur en
ella, eingöngu vegna nemanna á
nótinni.“
„Nemarnir hjálpuðu mér sér-
staklega þegar við vorum að veið-
um á grunnu vatni. Ég gat ávallt
settur á markað fyrri hluta ársins
1985. Gefur hann upplýsingar um
fjarlægð milli vængenda eða á milli
hlera.
Eins og sjá má á þessari upptaln-
ingu á nemum, er um að ræða
ýmislegt góðgæti fyrir fiskimenn.
En Scanmar eru ekki þar með
hættir, heldur halda þeir framþró-
uninni stöðugt áfram. Tillögur um
nýja nema streyma inn. Allir mið-
ast þeir við að fá auknar upplýsing-
ar um hvernig veiðarfærið, fiskur-
inn og aðstæður í sjónum haga sér
hverju sinni. Og ekki má gleyma
því að upplýsingarnar, sem menn
fá, eru oft meiri en heiti nemana
gefa til kynna, t. d. mun
vængendaneminn gefa til kynna ef
leggur slitnar, ásamt því að segja
til um fjarlægð milli vængendanna.
Aflamagnsnemar hafa á sér hinar
ýmsu hliðar, eins og að finna troll,
finna fisk þar sem engar lóðningar
eru, láta vita ef gat kemur á poka
o. s. frv., o. s. frv.
Við getum slegið því föstu að
ánægja fiskimanna með Scanmar
veiðarfærastýringu og leiðbeining-
ar þeirra, hafa gert Scanmar að því
veldi sem þeir eru í dag og um
ókomna framtíð.
„Hitamælirinn
kannski
það besta,
- segir Ásgeir á Guðbiörgu
frá ísafirði
„Reynslan af Scanmar veiðarfæra-
stýringunni, er betri en ég átti von
á í byrjun. Við notum aflamælirinn
mikið og kannski er hitamælirinn
það besta við Scanmar veiðarfæra-
stýringuna. Það er stórkostlegt að
geta fengið upplýsingar um hitastig
við botn upp í brú. Enda hefur það
sýnt sig, að til dæmis þorskurinn
heldur sig mikið í sama hitastiginu,
það er að segja kringum 2 gráður
C. Nú orðið gæti ég ekki hugsað
mér að fara á ný til sjós án
Scanmar veiðarfærastýringar, 2
sagði hinni kunni aflamaður Ás-
geir Guðbjartsson þegar rætt var
við hann. Það þarf vart að kynna
skip Ásgeirs, sem er Guðbjörg ÍS
46 sem um langt árabil hefur verið
aflasælasti togari íslendinga.
„Það er líka gott að geta séð
þegar fiskurinn kemur í trollpok-
ann. Þó svo að dýptarmælarnir í
brúnni séu góðir, þá sýna þeir ekki
alltaf hversu mikill fiskur er í
lóðningunum. Ef það er fiskur í
lóðningunum, þá kemur það strax
fram á aflamælunum," bætti Ás-
geir við.
Hann sagði ennfremur, að þegar
hann notaði flottrollið, þá sýndi
Scanmar kerfið hversu langt frá
yfirborðinu trollið héldi sig og þær
upplýsingar væru mikilvægar þeg-
ar menn notuðu flottroll.
snurpað á því dýpi, sem ég óskaði
mér og er það mikill munur frá því
sem áður var. Þegar við vorum að
veiðum úti á dýpinu, gat ég alltaf
fylgst með hversu hratt nótin sökk,
og það er líka munur frá því sem
áður var,“ sagði Sævar.
Hann bætti því við, að nú gæti
hann einnig séð þegar hann væri
búinn að snurpa. Áður hefði hann
alltaf þurft að hugsa um hvenær
hann yrði búinn að snurpa,“ en
með Scanmar getur maður séð
þetta á móttakaranum í brúnni.“
„Nú myndi ég ekki fara til
nótaveiða á ný án Scanmar. Ef ég
myndi ráða mig á annan bát,
myndi ég setja það sem skilyrði að
Scanmar yrði keypt um borð,“
sagði Sævar að lokum.
Reynslan er ólygnust!
Reynsla meira en 400 Scanmar
veiðarfærastýringa, þar af um 60 á íslandi,
hefur opnað augu manna fyrir nýjum mögu-
leikum.
Á básnum okkar nr. C-15 í aðalsal
Laugardalshallar sýnum við meðal annars
Scanmar veiðarfærastýringar fyrir troll og
hringnót ásamt mynd um notkun á tækjunum,
Raytheon ratsjár, loran C, dýptarmæla o.fl.,
veðurkortaritarar frá JMC, Wesmar litasonar og
stöðugleikatölvu.
Rafeindaþjónustan
ÍSMM2 hí.
Borgartúni 29, Box 1369
121 Reykjavík
Símar 29744 og 29767