Fiskifréttir - 21.09.1984, Qupperneq 37
föstudagur 21. september
37
Bjartsýni
borgar sig
ísmar hf., Rafeindaþjónusta var
stofnuð um haustið 1982 og hóf
starfsemi sína formlega í byrjun
árs 1983. Þótti það mikil bjartsýni,
á þeim tíma, að ætla að fara út í
sölu og þjónustu á siglinga- og
fiskileitartækjum. Útgerðin rekin
með bullandi tapi og mikið óvissu-
ástand með loðnuveiðar. Var fyrir-
tækið stofnað fyrst og fremst í
þeim tilgangi, að sjá um þjónustu
og sölu á tækjum frá Scanmar a/s,
í Noregi. Þau tæki voru óþekkt
fyrirbrigði hér á landi, en heyrst
hafði um góðan árangur í Noregi
og Danmörku.
í fyrstu voru starfsmenn ísmar hf.
tveir, þeir Reynir Guðjónsson
framkvæmdastjóri og Birgir Bene-
diktsson rafeindavirkj ameistari.
Var síðan hafist handa við mark-
aðssetningu á Scanmar veiðarfær-
astýringu. í þeim tilgangi voru 5
tæki sett til prufu í togara hér við
land. Þessi fimm tæki urðu fljótt
að tíu seldum tækjum og snjóbolt-
inn var byrjaður að rúlla. Nú,
rúmu einu og hálfu ári síðar, hafa
verið seld yfir 60 Scanmar tæki. Er
það meira en bjartsýnustu menn
hafa þorað að vona, að ekki sé
talað um að þessi tími hefur verið
talinn erfitt árferði í útgerð hér á
landi.
En ísmar hf. hefur aflað sér
fleiri umboða en Scanmar. Má þar
nefna Raytheon, Wesmar, Japan
Marina Co., Optik-Elektronic.
Raytheon er löngu þekkt, bæði
hérlendis og erlendis. Hafa þeir á
boðstólum m. a. loran C, mikið
úrval af ratsjám með dagsbirtu-
skjám, litadýptarmæla fyrir minni
báta, talstöðvar og fleira. Wesmar
er bandarískt fyrirtæki, sem er
þekkt fyrir fjölgeislasónara, en
þessi sónartæki hafa verið að ryðja
cr mikið til rúms síðustu árin, til
dæmis hafa verið seld yfir 100
Wesmar sónartæki í Noregi síð-
ustu tvö árin. Tæki þessi hafa
þegar verið sett í íslenskt loðnu-
skip og bíðum við og fleiri spenntir
eftir að sjá hver árangurinn
verður. En verð á 60 kHz sónar er
aðeins 337.000.00 íslenskar
krónur. Wesmar framleiðir einnig
stöðugleikatöl vur, sj álfstýringar,
litaratsjár og litavideoplotter, sem
er væntanlegur frá þeim nú í
haust. Japan Marina Co., eða
JMC, framleiða m. a. veðurkorta-
ritara og Optik-Elektronic eru
með lokuð sjónvarpskerfi. Við
látum þessa upptalningu frá ísmar
nægja.
Eigendur hins nýja fyrirtækis
eru bjartsýnir á stofnun slíks fyrir-
tækis, þrátt fyrir erfitt árferði í
útgerðinni.
„Vissulega má segja að þetta sé
einn versti tíminn til að stofnsetja
nýtt fyrirtæki og við gerðum okkur
glögga grein fyrir þeim erfiðleikum
og peningavandræðum, sem út-
gerðin berst við,“ sagði Reynir
Guðjónsson framkvæmdastjóri.
„En það er líka margt, sem mælir
með því að fara af stað núna. í
rólegheitum verðum við betur
undirbúnir og komnir úr starthol-
unum, þegar ástandið fer að
lagast. Við vonumst til að fá að sjá
raunhæfar aðgerðir, til að koma
eðlilegum rekstrargrundvelli undir
þessa atvinnugrein, sem sjávarút-
vegurinn er, sem er jú undirstöðu-
atvinnuvegur þjóðarinnar.“
Við kappkostum að bjóða hér
tæki og tilheyrandi fyrir útgerðar-
aðila, tæki sem gera þeim auðveld-
ara og ódýrara að afla verðmætis
fyrir þjóðarbúið.
Starfsmenn ísmar hf. eru nú
fjórir, (sjá mynd).
Starfsfólk ísmar hf. F. v. Ingólfur Jörgensen,
Birgir Benediktsson, Reynir Guðjónsson, fram-
kvæmdastjóri og Inga Birna.
í.
2.
3.
4.
5.
6.
7.
8.
9.
10.
11.
12.
13.
14.
15.
16.
17.
18.
19.
20.
Bjarni Sæmundsson RE 21. Drangey SK 41.
Sjóli RE 22. Dagrún ÍS 42.
Júlíus Geirmundsson ÍS 23. Bergvík KE 43.
Arnar HU 24. Heiðrún ÍS 44.
Árni Friðriksson RE 25. Sólrún ÍS 45.
Guðbjörg ÍS 26. Dalborg EA 46.
Sigluvík SI 27. Bjarni Ólafsson AK 47.
Sigurpáll GK 28. Otur GK 48.
Már SH 29. Júní GK 49.
Sléttanes ís 30. StálvíkSI 50.
Hoffell SU 31. Fengur 51.
Akureyrin EA 32. Ingólfur Arnarson RE 52.
Tálknfirðingur BA 33. Ásþór RE 53.
Páll Pálsson ÍS 34. Júpiter RE 54.
Elín Porbjarnardóttir ÍS 35. Framnes ÍS 55.
Jón Baldvinsson RE 36. Guðbjartur ÍS 56.
Albert GK 37. Gísli Árni RE 57.
Ljósafell SU 38. Dagfari ÞH 58.
Skafti SK 39. Ottó N. Þorláksson RE 59.
Hegranes SK 40. Hjörleifur RE 60.
Sléttbakur EA
Svalbakur EA
Sigurður RE
Nýsmíði Vélsmiðju Seyðis
Gullberg VE
Guðmundur RE
Krossvík AK
Örvar HU
Hilmir SU
Hilmir II SU
Erling KE
Harðbakur EA
Grindvíkingur GK
Svanur RE
Gullver NS
Örn KE
Harpa RE
Hrafn GK
Gyllir ÍS
Ljósfari RE
SCANMAR veiðafærastýring
er eina tækið sinnar tegundar í heiminum sem gefur þráðlausar upplýsingar frá
veiðarfærinu upp til skipsins.
Tækið er hannað til notkunar á ýmsum veiðarfærum t.d. trolli, hringnót, og dragnót.
** i •> \ ’
«*»
m ^ —...—*«
Tækið gefur upplýsingar um aflamagn
, í poka, hitastig við veiðarfæri, dýpi,
* sökk- og hífingarhraða á veiðar-
v færinu, höfuðlínuhæð á trolli.
tö.
•» :
>
Ómetanlegar upplýsingar
fyrir skipstjóra.
Rafeindaþjónustan
ÍSMKR hf.
Borgartúni 29, Box 1369
121 Reykjavík
Símar 29744 og 29767
Öll viðgerða-
og varahlutaþjónusta.