Fiskifréttir - 21.09.1984, Side 42
42
föstudagur 21. september
Vogir hf.
Vogin verður að vera
kjörgripur hinn mesti
— of mikið um innflutning lélegra tækja, semenginn býður þjónustu og viðgerðir á
Nákvæmni 1 að vega sjávarafla er
mikilvæg eins og flestum er ljóst.
Vogir þurfa því að vera kjörgripir
hinir mestu, áreiðanlegar út í ystu
æsar auk þess sem þær þurfa að
standast ýmsar kröfur hér á landi,
sem notendur erlendis gera ekki.
Hér er m. a. átt við salt og raka.
Elsta starfandi fyrirtæki
landsins, sem sérhæft hefur sig í
viðgerðum og viðhaldi á vogum er
Vogir h. f. í Sundaborg 1 hér í
Reykjavík. Fyrirtækið var stofnað
1972 og leysti vandamál fiskiðnað-
arins hvað snertir viðhald og við-
gerðir á þeim vogum sem þá voru
í notkun víðsvegar um landið. í
ársbyrjun 1981 óskuðu Berkel-
verksmiðjurnar hollensku eftir því
að Vogir h. f. að fyrirtækið yrði
umboðsmaður þess hér á landi.
Berkel er þekkt fyrirtæki um
allan heim og framleiðir vogir til
nánast allrar vigtunar, sama hvaða
nafni það nefnist. Margir aðilar
hér á landi höfðu falast eftir um-
boðinu, en það sem varð til þess
að Berkel óskaði eftir samstarfi
við Vogir h.f. var hin sterka staða
Voga h.f. hvað snertir þjónustu
við viðskipavinina.
Hér á landi voru vogirnar frá
Berkel kunnar víða, m. a. í fisk-
iðnaðinum. í gegnum árin hafa SH
og SÍS keypt Berkelvogir inn sam-
eiginlega og mun það eini snerti-
flöturinn á samvinnu þessa tveggja
risa í fiskiðnaðinum.
Fiskifréttir ræddu við þá Baldur
Sigurjónsson og Gústaf Her-
mannsson hjá Vogum h.f. Þeir
sögðu að fyrirtækið legði megin-
áherslu á að veita fullkomna þjón-
ustu við viðskiptavini sína. Aðal-
áherslan væri lögð á tvær gerðir
voga, en báðar verða sýndar á
Sjávarútvegssýningunni 22. til 26.
sept. n. k. Þetta eru 1500 kílóa
vog, Berkcl B71/LC með pallstærð
1,5 metrar x 1,25 metrar. Þetta er
álitin besta vogin á markaðnum
bæði hvað verð og gæði áhrærir og
meðal þeirra sem líta svo á málin
er SÍF.
Hin vogin er 100 kílóa með
pallstærð 60 sm = 60 sm. Við þessa
vog hefur verið gerður sérstakur
hugbúnaður fyrir þá sem eru í
skreiðar og saltfiskverkun. Þannig
má nota hugbúnaðinn og prentara
við vogina. Varla þarf að taka
fram að allar rafmagnsvogir Berk-
el má tengja öllum helstu tölvu-
kerfunum, sem notaðar eru í heim-
inum í dag.
Rafmagnsvogir Berkel hafa ver-
ið framleiddar um allmörg ár, og
eru arftakar gömlu vísavoganna.
Þessar vogir eru framleiddar eftir
ströngustu gæðakröfum og reglu-
gerðum sem EBE setur um tæki
þessi, en þær kröfur gerast ekki
strangari en einmitt hjá EBE.
Allar Berkelvogir koma með
löggildingu að utan en eru auk
þess löggiltar af Löggildingarstof-
unni hér, sem ætti að vera næg
trygging fyrir kaupandann hér
heima. Auk þess er eins árs ábyrgð
á öllum vogum frá Berkel.
Þeir Baldur og Gústaf sögðu að
Berkel hefði lagt sig mjög fram við
að mæta þeim aðstæðum, sem eru
á markaði hér, og höfðu þá saltið
og rakann með í myndinni. Því
miður væru þess dæmi að hér
hefðu verið seldar sáraódýrar
vogir, t. d. frá Bandaríkjunum
sem síðan hefðu enst stutt og enga
þjónustu að fá neins staðar. Væri
það í raun furðulegt hvað mönnum
liðist í þessum efnum, því kaup-
andinn stæði eftir með sárt ennið
og gæti ekkert aðhafst.
„Við viljum bjóða gesti á sýning-
unni velkomna til okkar í bás B9.
Við vitum að við getum kinnroða-
laust sýnt framleiðslu Berkel í
Hollandi og munum veita þeim
sem áhuga hafa allar upplýsingar
um okkar vöru,“ sögðu þeir félag-
ar að lokum.
Að lokum má geta nýjuna frá
Hollandi. Þeir eru komnir með í
sölu vogir sem notaðar eru úti á
sjó. Sú vigt er ekki elektrónisk, en
þykir henta vel t. d. á frystiskipum
og útilegubátum sem vinna aflann
um borð. Þá er á markaðnum
hangandi vogir sem notaðar eru
við uppskipun og eru búnar ljós-
aborði þar sem vigtin kemur fram.
Hluti af vogakerfi hjá Vogir hf.
R. Sigmundsson:
Hefur þjónað íslenska
(lotanum í meira en 50 ár
Fyrirtækið R. Sigmundsson hf.
hefur þjónað íslenska skipaflotan-
um í meira en 50 ár og alla tíð
hefur fyrirtækið boðið nýjustu og
fullkomnustu tæki hvers tíma.
Fyrirtækið seldi í upphafi meðal
annars fyrstu dýptarmælana og
fyrstu ratsjárnar sem fóru um borð
í íslensk skip. R. Sigmundsson
hefur alla tíð selt og þjónað sigl-
inga- fiskileitar- og fjarskiptatækj-
um.
Trausti Ríkharðsson fram-
kvæmdastjóri R. Sigmundsson
sagði að á sýningunni í Laugardals-
höll myndi fyrirtækið kynna meðal
annars eftirtaldar nýjungar: Kelv-
in Hughes 1600 tölvuratsjá með
plotter. Þá yrði kynntur Ansxhuts
gyrostar gyroáttaviti og sjálfstýr-
ing fyrir minni skip.
Þá sagði hann, að nefna mætti
Cetre K 7000 tölvustýringu, Int-
ernav loran C leiðsögutæki, sem
ynni á tveimur lorankeðjum. Ann-
að leiðsögutæki verður á sýning-
unni, Magnarox, sem ætlað er til
notkunar að taka á móti merkjum
frá gervitunglum og Omegakerf-
inu.
Frá japanska fyrirtækinu Kaijo
Denki sýnir R. Sigmundsson fiski-
leitartæki af ýmsum gerðum. Eitt
fiskileitartækjanna frá Kaiojo
Denki er með doppler litaskjá,
sem sýnir straumhraða og straum-
stefnu á mismunandi dýpi og þetta
tæki er tengt við tæki, sem sýnir
gervitunglamynd af veiðisvæðinu
á litaskjá.
Frá C-Tech sýnir R. Sigmunds-
son Seamatic litasónar og frá
Danmar sýnir fyrirtækið tölvu-
stýrða SSB-talstöð. Ennfremur
verða sýndar Dancall VHF-tal-
stöðvar, Sagem hraða- og vegmæl-
ar, Amplidor kall- og tónlistar-
kerfi, Alden veðurkortaritarar og
fleira.