Fiskifréttir - 21.09.1984, Qupperneq 46
46
föstudagur 21. september
VÉLORKA HF.
GARÐASTRÆTI 2. SIMI 621222
j D135
L
*s De Smithske
DK-9400 Nerresundby . Postbox 179
Tlf. (08) 17 81 11 . Telex: 6 96 20
Kynnir í D skála á
Sjá varútvegssýningunni
t i-----
IÍD136
■ I
J I_____
------------------
BUKHAS
DK-4400 KALUNDBORG DENMARK ■
__________________J
A/S De Smithske - sem í daglegu tali er nefnd DESMI - sýnir á bás nr
D-135 sjálfsogandi miðflóttaafIsdælur af gerðinni MODULAR S og gerð
SA.
MODULAR S gerðin samanstendur af 14 stærðum með afkastagetu frá
1-400 m3/tíma með mótþrýsting upp í 150 mvs. Stærð Nr. 14,
S100-80-200, hefur nýlega verið kynnt á markaðnum og innan fárra
mánaða mun stærð nr 15. S50-32-220 verða kynnt.
DESMI dælurnar eru afgreiddar með lausum ásenda, byggðar á
undirstöður með rafmagns- eða glussa-mótor, bensin- eða dísel-vél.
Ennfremur geta dælurnar verið afgreiddar með handstýrðri kúplingu
fyrir reimdrif.
Dælurnar í þessari seríu eru hreint hönnunar meistaraverk og modular
uppbyggingin gerir það að verkum að hinir ýmsu hlutar dælunnar geta,
að vissu marki verið notaðir í aðrar dælustærðir.
SA-gerðin - samanstendur af 10 stærðum gerðar fyrir leiðslur frá 3/4“
upp í 8“. Afköstin eru frá 2-600 m3 með mótþrýsting upp í 90 metra
vatnssúlu.
Þessi gerð er ennfremur afgreidd með lausum ásenda, byggð á
undirstöðu með rafmagns- eða glussa-mótor, bensín- eða diesel-
mótor. Ennfremur afgreiddar með handstýrðri- eða rafmagns-kúplingu
fyrir reimdrif,
Sameiginlegt með báðum þessum gerðum er að þær eru sjálfsogandi.
Þessi soggeta gerir dælunum mögulegt að lofttæma sogleiðslur án
utanaðkomandi ventla eða annars búnaðar.
A/S De Smithske er eitt af elstu iðnðarfyrirtækjum í Danmörku og í júní
á þessu ári var haldið upp á 150 ára afmæli fyrirtækisins. Framleiðslan
og salan er í dag byggð upp á dælum, drifum, auk búnaðar til
hreynsunar á olíumengun í höfnum og víðar.
Látið DESMI leysa dælumálin og þau eru í góðum höndum.
DESMI dælurnar hafa verið mjög vinsælar á islenska markaðnum í
fjölda ára sérstaklega sem bruna- sjó- og lensidælur um borð í
íslenskum fiskiskipum og í frystihúsum.
Einkaumboð fyrir A/S De Smithske á íslandi er Vélorka h/f, Garðastræti
2., Reykjavík.
DESMI dælur eru afgreiddar af lager úr Tollvörugeymslunni í Reykjavík
svo og liggur geysistór varahlutalager á íslandi.
Vélorka h/f., er nýtt fyrirtæki sem
stofnað var út frá einu af hinum
eldri og gamalgrónu fyrirtækjum
Þann 1. júlí í sumar tók síðan
Vélorka h/f yfir rekstur, verzlunar
og umboða Heildverzlunar Magn-
úsar Ó. Ólafssonar Garðarstræti
2, Reykjavík,
Vélorka er fyrirtæki sem er sér-
hæft í sölu og þjónustu á alls
konar búnaði fyrir fiskiskip svo
sem aðalvélar, Ijósavélar, dælur,
loftþjöppur og margt fl. Ennfrem-
ur er fyrirtækið eitt af stærstu
stálvírasölum á landinu.
MELTUKERFI
VÉLORKA HF. Garðarstræti 2
Reykjavík hefur nú hafið innflutning
á tækjabúnaði til uppsetningar á
meltukerfum, bæði í fiskiskipum og
við fiskvinnslustöðvar í landi.
Þar sem tekist hefur að finna dæl-
ubúnað sem bæði getur hakkað og
dælt fiski og fiskúrgangi með afköst-
um u. þ. b. 10 tonn/klst upp í allt að
8 metra hæð miðað við 25% þurrefn-
isinnihald efnisins, hefur reynst
mögulegt að einfalda kerfið mjög frá
því sem áður hefur þekkst og þá um
leið að lækka stof nkostnað verulega.
Kerfi þetta hefur verið byggt upp í
fullu samráði og samvinnu við sérf-
ræðinga Rannsóknarstofnunar
Fiskiðnaðarins sem hafa fylgst
menna mest með þróun þessara
mála frá upphafi.
í þessum búnaði er innifalið fyrr-
nefnd hakkavél/dæla, ásamt hring-
rásardælu sem fer sjálfvirkt í gang
þegar efnið er komið í geymslutank
og síðan sér timarofi um stjórnun
hringrásar þar til komið er í land. Þá
er hringrásardælan einnig notuð til
að dæla meltunni í land úr skipinu.
Sýrustigsmæling og skömmtun sýru
í efnið er einnig sjálfvirk, þannig að
á þessu sést að engin aukavinna á
að koma á sjómennina um borð í
skipunum. Fyrrnefndur búnaður, er
allur frá viðurkenndum fyrirækum í
Vestur-Þýskalandi og hefur verið val-
inn til að uppfylla ströngustu kröf ur.
Unnið er nú að niðursetningu áfyrsta
kerfinu í nýsmíðað skip Einars Guð-
finnssonar á Bolungarvík, SÓL-
RÚNU ÍS-250, og fleiri eru í undir-
buningi.
Allar nánari upplýsingar ásamt teikn-
ingum af kerfinu eru fyrir hendi á
skrifstofu Vélorku h/f Garðastræti 2
Reykjavík sími 91-621222
Motorfabriken BUKH A/S var stofnað 1904 af verkfræðingunum BUKH
og GRY. í upphafi voru framleiddar vindur og brunahreiflar sem urðu
upphafið af að nýta slíka orku fyrir rafstöðvar.
Þegar árið 1910, voru verksmiðjurnar álitnar tæknilega leiðandi
fyrirtæki og ómissandi hlekkur í þróun og hönnun á fyrstu dönsku
díselvélinni. Síðan þá hafa verksmiðjurnar framleitt fjölda gerða af
dísei vélum til ýmissra nota. Vegna orðstírs þeirra um gæði framleið-
sfunar og þróttmikillar starfsemi, hafa þessar vélar verið seldar til
flestra landa heimsins
Árið 1970, eftir margra ára stöðugar rannsóknir kom BUKH með
vélagerð með innbyggðu kerfi til að losna við titring véianna, sem var
hannað vegna sérstakra þarfa fyrir plastbáta.
Reyndar hafa þessar vélar reynst það þróttmiklar að þær hafa
ennfremur verið notaðar út um allan heim fyrir dælur, rafala ofl.
Árið 1977 var bætt við þessa vélagerð 3ja strokka vél DV-36 sem
afkastar 36 hestjöflum og ennfremur 3ja strokka vél með forþjöppu sem
afkastar 48 hestöflum. Innbyggt í þessar vélar er kerfi til að losna við
titring og ennfremur voru útfærðar í þessum 3ja strokka vélum nýjasta
tækniþekking frá okkar eigin hönnunardeild og rannsóknum gerðum
erlendis á okkar vegum.
Hjá Motorfabriken BUKH A/S vinna 150 starfsmenn og eru útibú í
Hollandi, Þýskalandi og Ítalíu, svo og samsetningarverksmiðja í Tunis
fyrir vélar á markað vanþróaðra landa. Þar að auki hafa BUKH
verksmiðjurnar umboðsmenn og þjónustukerfi í 72. öðrum löndum.
Motorfabriken BUKH A/S er hluti af A.P. Mölier fyrirtækjasamsteypunni,
sem í eru starfandi yfir 20.000 starfsmenn um allan heim.
A BAS
ER BUKH
136
VÉLIN
Setjið vélina í gang og sannfærist um
hversu þýðgeng hún er.
BUKH er mjög hljóðlát og titringslaus - sértu í vafa
- komdu þá við hjá okkur i bas 136
- og við setjum vélina í gang fyrir þig.
í bás okkar á sýningunni erum viðmeð 20 hp og 48 hestafla vélar með
gír, en ennfremur eina 48 hestafla vél sem hægt er að starta í gang, og
láta ganga á staðnum.
Yfir 400 BUKH dieselvélar eru í gangi á íslandi í dag. Einkaumboð fyrir
BUKH á íslandi er VÉLORKA HF., Garðastræti 2., Reykjavík.