Fiskifréttir - 21.09.1984, Blaðsíða 51
föstudagur 21. september
51
Skynsamlegra að bæta aðstöð-
una i vesturhöfninni en að
byggfa nýjan slipp við
Sundin segir Tryggvi Magnús-
son hjá Slippfélaginu
„í þau 82 ár sem Slippfélagið í
Reykjavík hefur starfað hefur
fyrirtækið einbeitt sér að viðhaldi
á skipum, en ekki fengist við
nýsmíði,“ sagði Tryggvi Magnús-
son markaðsstjóri hjá Slippfélag-
inu í Reykjavík í samtali við
Fiskifréttir.
„Fyrirtækið ræður nú yfir að-
stöðu til að gera við 7 skip í senn,
allt að 2400 þungatonnum, og er
stærsta dráttarbraut landsins. Við
erum alltaf að reyna að auka
hagkvæmni og stytta þann tíma
sem hvert skip þarf að vera í slipp.
Þetta gerðum við með því að hafa
samstarf við fyrirtæki sem sérhæfa
sig í hinum einstöku verkþáttum
við skipaviðgerðir og má í því
sambandi nefna Stálsmiðjuna,
Flamar og Rafbða hf., en öll þessi
fyrirtæki vinna mjög mikið að
skipaviðgerðum á athafnasvæði
Slippfélagsins. Það má segja að
valið standi á milli þess að fyrirtæk-
ið sjálft hafi þessa sérfræðinga á
sínum vegum, en við álítum að
með því að fá slíka vinnu að getum
við tryggt að „dauði tíminn“ verði
ekki til að hækka tilkostnað við
viðgerðir.“
Eins og fyrr segir er fyrirtækið
ekki í nýsmíði, en samt má segja
að ástandið í þeim efnum hafi
mikil áhrif á framboð verkefna hjá
Slippfélaginu. Um það sagði
Tryggvi:
„Þegar nýsmíðaverkefnum
fækkar, fara skipasmíðastöðvar að
sinna viðhaldsverkefnum sem þau
líta ekki við þegar nóg er að gera
í nýsmíði. Þetta gerir okkur vissu-
lega erfitt fyrir, af því að þessi
fyrirtæki reyna eins og þeim er
unnt að lækka verðið. Og oft á
tíðum eru tilboð í verk lægri en
kostnaðurinn við þau.
Það má segja að fleira komi til í
því sambandi. Það er greinilegt að
„byggðastefna“ stjórnvalda hefur
veitt skipasmíðastöðvum og drátt-
arbrautum víða um land verulegan
fjárhagslegan stuðning. Þess eru
dæmi að sveitarfélög eigi til dæmis
aðstöðuna ásamt ríkinu og leigi
síðan viðkomandi fyrirtæki og það
borgar aðeins þá daga sem verið er
með skip í slipp. Við höfum alls
ekki notið skilnings skipulagsyfir-
valda í Reykjavík og þess vegna
gengur ekki nógu vel að bæta
aðstöðuna."
Þeir eru margir sem halda því
fram að æskilegt sé að gera nýjan
slipp einhvers staðar inn við Sund,
en það tel ég vera mestu vitleysu.
Það væri mun skynsamlegra að
bæta aðstöðuna hér vestur frá. Þar
er brýnast að afmarka slippinn
betur, þannig að hægt sé að beita
nýjustu tækni, til dæmis til að
sprauta skip. Sé það reynt núna, er
mjög hætt við að bílar sem lagt er
utan við slipplóðina verði ærið
mislitir. Það er nauðsynlegt að
bæta aðstöðu fyrir sandblástur og
málningu á skipum, en eins og
sakir standa er ekki hægt að beita
hagkvæmustu aðferðum," sagði
Tryggvi.
„Það er ekki algengt að fara þá
leið í sambandi við slipprekstur
eins og ég hef verið að lýsa hérna
á undan. Algengast er að slippirnir
hafi á sínum snærum sérfræðinga
á öllum sviðum viðgerða. En við
tókum þá ákvörðun fyrir mörgum
árum að fara þessa leið og ég veit
að t. d. Frakkar hafa gert það með
ágætum árangri. En með þessu
móti geta menn leitað til Slipp-
félagsins og við leitum síðan til-
boða í hina ýmsu verkþætti og þá
fær sá sem býður best hvern verk-
þátt fyrir sig. Þó má segja, að
aðalvandamálið í sambandi við
tilboðsgerð sé, að menn geri sér
ekki fyllilega grein fyrir hversu
mikið þurfi að gera, fyrr en skipið
er komið í slipp.“
Að lokum sagði Tryggvi, að
hann teldi það tvímælalaust kost,
að geta leitað til aðeins eins aðila
með allt viðhald. Fyrirtækið reyndi
að veita sem allra besta þjónustu á
hverju sviði fyrir sig í samráði við
þau fyrirtæki sem það skipti mest
við, sem væru Rafboði, Stálsmiðj-
an og Hamar.
Auk dráttarbrautar, rekur
Slippfélagið í Reykjavík bygginga-
og járnvöruverslun, timbursölu,
trésmíðaverkstæði og málningar-
verksmiðjuna í Dugguvogi.
Oft á tíSum fara skipin ekki á land fyrr en öll málnin g er búin af botninum. Þá sest mikill botngróður á þau
og olíueySsla verSur allt aS 20% meiri. - Hempels dynamic 7628 botnmálningin endist í 26 mánuSi.
StÓrt 603 smátt
HEMPEL’S úrvals málning á allar
gerðir skipa við allar aðstæður
HEMPALIN alkyd lökk og grunnur fyrir fiskiskip
smíöuö úr tré, stáli eða áli.
HEMPATEX klórgúm og acryl lökk og grunnar
fyrir flutningaskip og utanborðs á stærri skut-
togara.
HEMPADUR expoxy málningar og grunnar á
staði, þar sem sérlega mikið mæðir á.
HEMPATHANE polyurethane lökk og grunnar
á fiskiskip og skemmtibáta úr plasti.
HEMPELS DYNAMIC 7628 botnmálning
með 22-26 mánaða endingartíma.
HEMPELS TROPIC 7644 botnmálning með
12-16 mánaða endingartíma.
HEMPELS NORDIC 7133 botnmálning með
7-10 mánaða endingartíma.
HEMPELS MILLE 0777 glær botnmáln'nq
sem hindrar gróðurmyndun á sjólínu.
HEMPELS HARD RACING botnmálning á
plastfiskiskip.
HEMPELS MILLE 7670 sjálfhreinsandi botn-
málning fyrir fiskiskip og skemmtibáta úr plasti.
Slippfélagid íReykjavíkhf
Málningarverksmiöjan Dugguvogi
Simi84255