Fiskifréttir - 21.09.1984, Side 52
52
föstudagur 21. september
Frígoscandia (ær viðurkenningn fyr-
ir GYRoCOMPACT 64 lausfrystitækið
2 CYRoCOMPACT 64 lausfrystir hentar til þess að frysta allar tegundir
matvæla
Á IFFEX ’84 eða International
Frozen Food Congress, sem haldið
var á vegum Industrail and Trade
Fairs í Bella Center í Kaupmanna-
höfn í maí mánuði síðastliðnum
voru veittar tvenns konar viður-
kenningar. Önnur fyrir frábærar
nýungar í framleiðslu á frystum
matvælum hin fyrir frábæra nýung
í tækni er varðar fryst matvæli.
Tækniviðurkenningin var veitt
Frigoscandia Contracting AB í
Helsingborg í Svíþjóð, en Frigo-
scandia kynnti nýtt lausfrystitæki á
sýningunni í Bella Center og nefn-
ist það GYRoCOMPACT 64. Um
þessar mundir er Frigoscandia tal-
ið vera leiðandi fyrirtæki í heimin-
um í framleiðslu á tækjum fyrir
fryst matvæli.
í úrskurði dómnefndar um
GYRoCOMPACT 64 segir meðal
annars að lausfrystitæki beri af
öðrum tækjum, ef litið sé á
hollustuhliðina, fjölhæfni við
framleiðslu og afköst, hvernig ork-
unýtingin er og einnig er hönnun
tækisins talin vera að öllu leyti
framar öðrum lausfrystitækjum.
Einn af leyndardómunum á bak
við GYRoCOMPACT kerfið er
„patcnt" sem byggist á sjálf-
hleðslu, svonefnt FRIGoBELT
sem gerir slár og bita allskonar
óþarfa við að halda beltinu uppi.
Hverri frystistöð í lausfrystitækinu
er þannig fyrir komið, að af-
kastagetan er 50% meiri en á fyrri
tækjum, miðað við stærð. Engin
hætta er á að hið fastdrifna
FRIGoBELTI verði fyrir titringi
eða núningi. Hin fullkomna hönn-
un kemur í veg fyrir sérhvern
möguleika á skemmdum og engin
hætta er á að beltið beri með sér,
bakteríur. Beltið er umlukið ryð-
fríu stáli og einnig er það sífellt
þvegið með vissu millibili.
Að auki er FRIGoBELT með
gífurlega möguleika hvað varðar
frystigetu og eins er hægt að koma
fyrir á því hinum ólíku tegundum
matvæla til frystingar, bæði hvað
varðar breidd og hæð. Þá er líka
hægt að koma frystistigunum fyrir
eftir óskum kaupenda. Sem sagt
nýja lausfrystikerfið gefur mestu
hugsanleg gæði við frystingu á;
kjöti, fuglum, fiski og öðrum sjá-
vardýrum, ennfremur er það hent-
ugt til frystingar á brauðum, kar-
töflum, grænmeti, ís og ýmsu
fleiru.
Frigoscandia er einnig með
einkaleyfi á hvernig loftblásturinn
gengur eftir frystiklefanum. Eftir
lokuðum FRIGoBELT göngum
er blæstrinum stjórnað, sem þýðir
styttri frystitíma og um leið minni
orkunotkun.
GYRoCOMPACT 64 er eini
lausfrystiskápurinn á markaðnum,
sem getur fryst vöru, sem er frekar
há. Pegar hann er afhentur frá
verksmiðju er hann sendur í þrem
tilbúnum hlutum í gámum. Gengið
er frá öllu, jafnt einangrun, sem
hinu óviðjafnanlega FRIGo-
BELTI. Að jafnaði tekur um 10
daga að ganga frá lausfrystinum
eftir að hann kemur á áfangastað,
en þá er hann tilbúinn til notkunar.
Við hönnun á GYRoCOM-
PACT 64 lausfrystitækinu var mik-
ið hugsað um að sem minnst færi
fyrir því. Það má koma lausfrysti-
tækinu fyrir í litlum verksmiðjum
og án þess að trufla aðra fram-
leiðslu. Þá er hægt að hafa tækið
þannig, að matarinn í frystinn er á
sömu hlið og losunartækið. Einnig
má hafa tækið utandyra, ef menn
vilja það heldur, þar sem öll ein-
angrun á tækinu er vatnsheld.
Þá má flytja lausfrystitækið á
milli staða og tekur það j afn langan
tíma að koma því fyrir þar og á
upphaflega staðnum, eða 10 daga.
GYRoCOMPACT 64, er aðeins
smurt á einum stað, belta þvottur
og þurrkun sér um hreinsunina og
sérstakt Frigoscandia afþíðingar-
kerfi afþíðir tækið þegar það er
ekki í notkun.
Á IFFEX í Kaupmannahöfn
sagði Folke Plymouth fram-
kvæmdastjóri Frigoscandia meðal
annars: „Við vitum að við erum nú
með fyrsta flokks tæki á ferðinni.
Viðtökurnar á markaðnum hafa
verið frábærar og ég er einstaklega
ánægður með þá viðurkenningu
sem hönnuðir og starfsmenn
Frigoscandia fengu fyrir allt það
verk, sem þeir eiga að baki við
smíði á GYRoCOMPACT 64.“
Pannig lítur CYRoCOMPACT 64 út á
teikningunni.
Vélsmiðja Hornatjarðars
35 reknetahrist-
arar seldir
á nokkrum
árum
Vélsmiðja Hornafjarðar hóf starf-
semi árið 1973 og nú starfar fyrir-
tækið í fjórum deildum, þar er:
vélsmiðja, bifreiðaverkstæði,
smurstöð og hjólbarðaviðgerðir
ásamt efnis- og varahlutaverslun.
Fyrirtækið er með aðsetur í húsi,
sem er 1500 fermetrar að grunn-
fleti og var byggt 1974. Vélsmiðja
Hornafjarðar hefur stækkað smátt
og smátt og um þessar mundir eru
starfsmenn 34.
Ari Jónsson framkvæmdastjóri
segir, að frá upphafi hafi aðalþætt-
irnir í starfsemi fyrirtækisins verið
viðgerðir, endurbyggingar eða
endurnýjanir atvinnutækja í sjá-
varútvegi.
Eitt af markmiðum fyrirtækisins
hefur alla tíð verið að nýta sér
þekkingu og reynslu sem það og
starfsmenn þess öðlast við fram-
kvæmdir áðurnefndra verkefna.
Með góðu samstarfi við útgerðar-
menn og ýmsa skipstjóra á Höfn
vinnur Vélsmiðja Hornafjarðar
stöðugt að þróun og framleiðslu
tækja og búnaðar til sjávarútvegs-
ins.
Frá því á árinu 1976 hefur
Vélsmiðja Hornafjarðar framleitt
og selt 35 reknetahristara. Nú eru
70% báta sem stunda síldveiðar í
reknet búnir þessum tækjum.
Af annarri framleiðslu fyrir-
tækisins má nefna trollhlera,
vökvaknúin vírstýri á togvindur,
netaskífur, netadreka, vindur og
fleira.
Vélsmiðja Hornafjarðar kynnir
þessar vörur á sjávarútvegssýning-
unni á bás C-58. - Vertu velkom-
inn.
VélsmBla I iornafiar$ar hf
78C Nfn
símar 97-834C & 97-8341