Fiskifréttir - 21.09.1984, Side 53
föstudagur 21. september
53
Verslun O. Ellingsen:
Vcrzlunnrhi'is O. Fllingsen meönn steinbrj ggjan rur i iÖ lið:.
Þegar litð er til vöruvalsins í
Verslun O. Ellingsen kemur í ljós
að útgerðarvörur skipa stórt rúm.
Þá er rétt að nefna því tengt ýmiss
konar öryggis og skoðunarvörur
frá Pains Wessex, Schermuly línu-
byssur, handblys, svifblys og fleira
þess háttar. Mikið úrval af vörum
til skipasmíða. Þá eru á boðstólum
í Ellingsen vélaþéttingar og véla-
nauðsynjar og verkfæri ýmiss kon-
ar í miklu úrvali. Málningarvörur
og tjörur af ýmsum gerðum. Þá
geta sjómenn fengið allan vinnu-
fatnað sem þeir þurfa á að halda í
versluninni. Má þar nefna sjó-
klæði, sjóstakka og sjóhatta.
Til að geta veitt viðskiptavinum
sínum þá þjónustu sem nauðsynleg
er. þarf verslunin alla jafna að eiga
fyrirliggjandi um 8000 vöruteg-
undir. Vörurnar eru keyptar frá
meira cn 250 erlendum fram-
leiðendum og 60 innlendum aðil-
um. Þar af leiðir, að fyrirtækið
verður alltaf að vera í sambandi
við 3-400 framleiðendur og sölu-
aðila.
Eins og fyrr segir þarf Ellingsen
ávallt að hafa tiltækar um 8000
vörutcgundir. í útgerð er málum
þannig háttað, að oft er lítill
fyrirvari áður en menn þurfa á
nauðsynlegum vörum að halda.
Þar af leiðandi kallar þessi þjón-
usta á svona mikið vöruval.
Verslun O. Ellingsen leitast við
að uppfylla þær kröfur sem við-
skiptavinir fyrirtækisins gera og
þjóna á þann hátt undirstöðuat-
vinnuvegi landsmanna.
Verslun O. Ellingsen er með bás á
sjávarútvegssýningunni i Laugar-
dalshöll Ásamt þeint sýna eftirtal-
in fyrirtæki og greint er frá þeim
vöruflokkum sem þau k\nna.
Móreplast A/S. Noregi; lóðabelgir
og netahringir.
Paul Merten, V. Þvskalandi.
björgunarhringir. bjargbelti.
Scanropc A/S, Noregi; stálvírar.
togvírar, landfestatóg og sísallín-
ur.
The Beldham packing & rubber,
Englandi; vélaþéttingar.
Tranberg A/S. Noregi; siglingalj-
ós.
Andr. Jacobsen Industri A/s. Nor-
egi; veiðarfæralásar. tréblakkir.
trolllásar, vatnstrekkjarar.
Verslunin O. Ellingsen er eitt elsta
verslunarfyrirtæki í Reykjavík.
Fyrirtækið var stofnað árið 1916.
af Othar Ellingsen, norskum
skipasmið, sem komið hafði hing-
að til lands árið 1903 til að veita
Slippfélaginu í Reykjavík for-
stöðu. Fyrsta árið var verslunin til
húsa í Kolasundi, en ári síðar flutti
hún í Hafnarstræti 15 og var hún
þar til húsa í tæp 60 ár. Nú er
verslunin til húsa í Ánanaustum
og er þar mjög vel staðsett gagn-
vart aðalfiskveiðihöfninni í borg-
inni.
l. pphaflega var Ellingsen hugs-
uð sem sérverslun með veiðarfæri
og útgerðarvörur, en segja má að
breiddin í vöruúrvalinu nriðist við
ntun fleiri svið en sjávarútveginn
einan. En alltaf hefur þjónustan
við útgerðina verið efst á blaði hjá
Ellingsen.
Enda þótt Ellingsen væri stað-
sett í Revkjavík. náði þjónustu-
svæði verslunarinnar yfir allt
landið. Nauðsynlegt er fyrir versl-
un af þessu tagi að hafa tiltækan
mikinn vörulager og víst er að sá
tilkostnaður sem fylgir því að
líggja nteð miklar vörubirgðir hef-
ur í áranna rás oft valdið stjórn-
endum Ellingsen erfiðleikum. En
þrátt fyrir það. hcfur verslunin
verið starfrækt í tæp 70 ár og veitt
islenskum sjávarútvegi mikilvæga
þjónustu.
Frá togalagernum hjá Ellingsen i Ánanaustum.
Verslunarhus Ellingsen í Ananaustum.
Avallt er lögð mikil áhersla á að
hafa lagerinn sem bestan.
Frosts knivefabrik, Svíþjóð; fisk-
aðgerðarhnífar.
ABA-bolage, Svíþjóð; slöngukl-
emmur.
i’tins Wessex Ltd., Schermuly,
Englandi; neyðarmerki, línubyss-
ur.
Oelta puntpefabrik A/S, Noregi;
dælur.
Sigtryggur Jonsson
skrifstofustjóri Ellingsen.
Barzillai Hingley & Sons, Engl-
andi; trolliásar, trollútbúnaður,
akkeri, keðja, sigurnaglar.
1/S Aalykke, Danmörku; net-
adrekar, dragnótahlekkir, sigurn-
aglar.
Ansell Jones & Co, Englandi;
blakkir, blakkaskífur.
Nauteknik A/S. Noregi; björgun-
arbúningar Nord 15
8000 vörutegundir
ávallt tiltækar