Fiskifréttir - 21.09.1984, Blaðsíða 61
föstudagur 21. september
61
Póllinn á ísafirði:
Setja upp frystihús á
Fiskveiðasýningunní
Pað má segja að þeir í Pólnum á
ísafirði hafi núna lokað hringferl-
inum í sambandi við vinnslurás
frystihúsa og annarra fiskvinnslu-
fyrirtækja með nýjasta framlagi
sínu á markaðnum.
Nú býður Póllinn h.f. upp á
heildarpakka fyrir frystihúsin. í
þessum pakka er nánast allt að
finna: Tímaskráning, launaupp-
gjör, fjárhags- og viðskiptamanna-
bókhald, aflauppgjör, eftirlit með
vogum í vinnslusal, bónusskráning
og vinnsla, vélanýtingar, eftirlit,
birgðabókhald. Þarna er einnig
um að ræða útreikninga og spár
um framlegð.
Petta er ekki lítið, og að sögn
Jónasar Ágústssonar sölustjóra
fyrirtækisins, er allt hannað af
þeim Pólsmönnum sjálfum.
Til þessa hafa allskonar vogir
tengdar tölvum verið aðal þeirra
ísfirðinganna, en hér hefur stórt
skref verið stigið fram á við.
Pá býður Póllinn h.f. upp á
útgerðarpakka svokallaðan með
fjárhags og viðskiptabókhaldi,
birgðabókhaldi og aflauppgjöri.
„Á sýningunni í Laugardalnum
ætlum við að setja upp lítið frysti-
hús eða fiskvinnslufyrirtæki. Þar
gefst mönnum kostur á að skoða
allar vogirnar frá okkur, 7-8 gerðir
auk samvalsvélarinnar. Og þarna
verða líka sýnd tölvukerfin okkar
og þá munu menn komast að raun
um að við bjóðum nánast allt sem
til þarf í þessum efnum,“ sagði
Jónas Ágústsson.
Annars eru Pólsvogirnar nýlega
búnar að vera á sýningu, þar sem
þær vöktu mikla athygli. Pað var í
Þrándheimi í síðasta mánuði. Þar
voru vogirnar sýndar tengdar inn
á Pólskerfin.
Útflutningur Pólsins á vogum
hefur verið umtalsverður og fer
vaxandi. Einkum er selt til Noregs
og Færeyja, en nú hefur verið
gerður samningur við Micro Tools
í Bandaríkjunum um að það fyrir-
tæki framleiði á framleiðsluleyfi
vogir. Póllinn leggur til tækniþekk-
ingu sína og nýtur í staðinn hluta
af sölutekjum. Töldu þeir á ísafirði
rétt að gera slíkan samning við
fyrirtæki Þorsteins Þorsteinssonar,
enda eiga þeir fullt í fangi með að
sinna markaðnum í Noregi og
Færeyjum eins og er, auk innan-
landsmarkaðarins. Vogin sem
framleidd verður í Bandaríkjun-
um er pakkningavog eða borða-
— og sýna þar
fullkominn
heildarpakka
vog, en síðar verður ákveðið hvort
farið verður út í að framleiða fleiri
af vogum Pólsins vestra.
Hjá Pólnum h.f. starfa nú 55
manns, þar af 3-4 í Kópavogi en
þar er þjónustudeild fyrir við-
skiptavini fyrirtækisins syðra, ekki
aðeins fiskvinnslufyrirtækin held-
ur einnig kjötvinnslur og mjólkur-
bú og fleiri aðila.
Nýlega keypti fyrirtækið stórt
íbúðarhús á ísafirði og þar eru nú
til húsa tölvudeild og framleiðsla
tölvubúnaðar. Þar starfa þessa
dagana fimm menn við að semja
ný forrit, sem ætluð eru fiskiðnað-
inum.
Alls 600 vogir eru nú á markaðn-
um frá Pólnum h.f., sem allar
stuðla að aukinni sjálfvirkni við
vinnsluna og þar með hagkvæmari
rekstri fyrirtækjanna.
„Sjónker£i(49 róbót-
ar og pökkunarvélar
í bás d26 kynnir John Aikman
tvenns konar tækjalínur. Annars
vegar pökkunarvélar af ýmsum
tegundum og gerðum í samvinnu
við Laursen & Co. Pak HB, og
hinsvegar róbóta, sjálfvirknitæki
og „sjónkerfi", sem kynnt eru í
samráði við Tectrade Automation.
Pökkunarvélarnar eru nánast af
öllum hugsanlegum gerðum, og
má segja að þær vélar, sem hér eru
kynntar, geti annast alla pökk-
unarþörf fiskiðnaðarins, þ. e. a. s.
vélar sem pakka heilum fiski og
fiskflökum, bæði ferskum og
frosnum, vélar til að raða fisk-
pökkum í kassa, sem róbótar geta
síðan séð um að stafla á bretti.
Einnig verða kynntar vélar til að
pakka fiskpökkum í kraftpappír,
og losna þannig við bárupappa-
kassana, en þessi aðferð er nú
órðin möguleg vegna gámaflutn-
inga á frosnum fiski. Samvalsvigtar
verða líka á dagskrá í bás D26, og
þá vigtar sem náð geta um 0,5%
nákvæmni í pakkaþyngd.
Þá má minnast ápökkunarvélar
fyrir lýsi og mjöl. Pökkunarvélarn-
ar fyrir lýsið, eða önnur fljótandi
efni, eru sérlega áhugaverðar, þar
sem þær vinna nær algerlega
sjálfvirkt: mannshöndin kemur
hvergi nærri. Plasthráefni og lýsi,
eða það sem pakka skal, eru sett í
vélina og hún skilar lýsinu í lokaðri
flösku, sem neytandinn síðan
opnar.
Eins og flestum mun kunnugt
eru róbótar til margra hluta nyt-
samlegir, t. d. við rafsuðu í skipa-
smíði, við trefjaplastframleiðslu,
við pökkun, röðun og stöflun, o.
fl. o. fl. Róbótarnir, sem kynntir
verða í bás D26 eru þeim eiginleik-
um gæddir að auðvelt er að breyta
skipunum, sem er stór kostur hér
á okkar markaði, þar sem fram-
leiðslumagn er fyrirleitt fremur
lítið.
Að lokum verður kynnt svokall-
að „sjónkerfi“, Vision System,
sem hægt er að tengja við róbóta
og getur kerfið þá til dæmis stærð-
arflokkað fisk, séð um að allir
fiskar á færibandi snúi eins, kastað
frá skemmdum fiski, og jafnvel
snyrt flök, eða greint bein og aðra
aðskotahluti í fiskflökum. Þetta
eru þó aðeins nokkur dæmi, sem
tengjast fiskiðnaði, en allar ofan-
greindar vélar og tæki er auðvitað
einnig hægt að nota við hvaða
framleiðslu sem hugsast getur.
Jungheinrich R100 róbót, snýst á 5 eða 6 ásum. Lyftigeta 15-30 kg. Stjórnstöðin getur stjórnað 10 ásum
samtímis. Hægt er að tengja við móðurtölvu.