Fiskifréttir - 21.09.1984, Síða 64
64
föstudagur 21. september
Árið 1980 hóf Bátasmiðja Guð-
mundar, Helluhrauni 6, Hafnar-
firði, framleiðslu á skemmti- og
fiskibátum úr plasti. í byrjun var
framleiddur 6,15 m langur bátur
sem var seldur undir nafninu Sómi
600.
Báturinn varð strax mjög vinsæll
þar sem hann hentar mjög vel til
styttri skemmtisiglinga og sport-
veiða. Sómi 600 er skráður 4
manna bátur en svefnpláss er fyrir
2.
Fljótlega kom í ljós að margir
óskuðu eftir stærri bát til lengri
siglinga. Pá var hafist handa um
smíði á Sóma 700 sem er 7,19 m
langur. Um borð í Sóma 700
rúmast vel 6 manns en svefnpláss
er fyrir 4. Sómi 700 hlaut strax svo
miklar vinsældir að Bátasmiðja
Guðmundar hefur varla getað ann-
að eftirspurn. Síðla árs 1983 var
svo hafin framleiðsla á Sóma 800,
sem er stærstur Sóma bátanna,
eða 7,98 m langur. Eins og Sómi
700 er hann skráður fyrir 6 manns,
en þar sem lestin er 85 cm lengri
en í Sóma 700 þá hentar hann
sérstaklega vel til neta-, línu-, og
handfæraveiða. Vinsældir Sóma
800 hafa aukist jaftn og þétt, enda
hefur reynslan sýnt að hann er
hagkvæmur í rekstri og snöggur á
fiskimiðin og því mjög hentugur til
þessara veiða.
Bátarnir eru allir búnir vatns-
þéttum skilrúmum sem skiptast í
þrjú hólf og hægt er að dæla úr
hverju fyrir sig.
Bátarnir eru sérstaklega styrktir
fyrir hið erfiða sjólag við ísland og
hafa reynst afburða vel við stendur
landsins.
Hægt er að fá bátana búna
vélum og tækjum að ósk kaup-
enda. Allir bátarnir eru styrktir
fyrir 30 sjómílna gang.
Bátasmiðja Guðmundar fram-
leiðir einnig trausta og sterk-
byggða fiskibáta, BG 28, sem hafa
reynst afbragðs vel. Ganghraði
þeirra er 8 sjómílur ef miðað er við
45 ha. vél. Bátana er hægt að fá
annaðhvort fram- eða aftur-
byggða.
Sómi 600 Lengd: 6,15 m Sómi 800 Lengd: 7,98 m
Breidd: 2,42 m Breidd: 2,65 m
Dýpt: 1,20 m Dýpt: 1,38 m
Þyngd 1500 kg Þyngd 2400 kg
Sómi 700 Lengd: 7,19 m BG 28 Lengd: 8,40 m
Breidd: 2,65 m Breidd: 2,52 m
Dýpt: 1,38 m Dýpt: 1,48 m
Þyngd 2000 kg Þyngd 3000 kg
Sómi 800. Rúmgóður og þægilegur alvöru fiskibátur.
SÚMI
Sómi 600 og Sómi 700 eru
traustir, liprirog hraóskreióir
skemmti- og fiskibátar.
Nú er kominn glænýr bátur,
Sómi 800, sérstaklega ætlaöur
fyrir færaveióar.
Unnt er aó fá bátana á öllum
framleióslustigum. Aflið upp-
Hagstæóir
greiösluskilmálar.
lýsinga hjá Bátasmióju
Guömundar í síma 50818.
Önnumst viðhald og vió-
geróiráöllum plastbátum.
kATÆ I
SMIDJA ?
GUÐMUNDAR j
HELLUHRAUNI6 S
220 HAFNARFIRÐI S
SÍMI50818
Ólafsvík
Staldrað við á bryggj-
unni i Ólafsvík
—rætt við Erling Ólafsson skip•
stjóra og útgerðarmann
Fyrir skömmu þegar blaðamaður
Fiskifrétta var á ferð um Ólafsvík
var staldrað við á bryggjunni þar
sem verið var að landa úr Ólafi
Bjarnasyni SH 137. Báturinn er
115 tonn og er útgerðarmaður
hans Erlingur Ólafsson en hann er
jafnframt skipstjóri. Við tókum
hann tali og spurðum hann fyrst að
því hvað þeir hefðu fengist við og
hvernig hefði gengið.
„Við hættum veiðum 14. apríl
enda þá komnir langt með kvótann
og fór þá báturinn í slipp til
viðgerða. Síðan byrjuðum við aft-
ur í júní og hefur gengið mjög vel.
Undanfarið hefur verið óhemju
ýsuveiði og ýsan verið mjög stór
og falleg.“
„Aðspurður sagði Erlingur þeir
hefðu verið nokkuð ánægðir með
kvótann sem þeir fengu en þó taldi
hann að þetta fyrirkomulag myndi
bitna sérstaklega á bátum við
Breiðafjörð þar sem mest væri
veitt af þorski.“
Matið taldi hann í nokkuð föst-
um skorðum og meðalverðið kæmi
svipað hvort sem um væri að ræða
fiskitroll eða net.
„Menn virðast ráða við tilskilinn
netafjölda, sagði Erlingur, enda er
stutt á mið. Ég held að menn skilji
ekki við net vegna þess hversu
stutt er. Ef farið er eftir settum
reglum tel ég að ástandið á neta-
veiðunum sé nokkuð gott.“
Að lokum inntum við Erling
eftir því hvað hann teldi að myndi
gerast í haust.
„Ég sé ekki fram á annað en að
stefni í allsherjarstopp vegna þess
hve margir eru búnir með kvótann.
Mér finnst að ákvarðanir komi allt
of seint til að hægt sé að skipu-
leggja veiðarnar“, sagði Erlingur
Ólafsson að lokum.
Ólafur Bjarnason SH-137 í höfninni á Ólafsvík.