Fiskifréttir - 21.09.1984, Page 65
föstudagur 21. september
65
Marex hf.
Aukín gæðí hafa
skilað hærra verði
— seglr Guðmundur Þormóðsson (ramkvæmda-
stjóri um gáma£lutninga á ferskum fiski
Líklega er flestum sem eitthvaö
fylgjast með málefnum sjávarút-
vegsins sú staöreynd kunn að mikil
breyting hefur orðið á þeim flutn-
ingsmáta sem viðhafður er í flutn-
ingum á ferskum fiski. Stóraukn-
ing hefur orðið á flutningum í
gámum en að sama skapi hafa
siglingar fiskiskipa minnkað veru-
lega. Eitt þeirra fyrirtækja sem
tekið hefur þátt í þessum breyting-
um er MAREX hf., en fyrirtækið
hefur annast milligöngu fyrir mörg
af þeim útgerðarfyrirtækjum sem
senda ferskan físk í gámum á
markað í Evrópu.
„Gámafiskurinn er mjög gott hrá-
efni sem skilað hefur sér í hærra
verði,“ sagði Guðmundur Þor-
móðsson framkvæmdastjóri í sam-
tali við Fiskifréttir nýlega. Hann
sagði að þeir bátar sem lönduðu
afla sínum í gáma færu venjulega
stuttar veiðiferðir og skiluðu því
mun betra hráefni en venja væri
til. Sjómennirnir fengju hlutdeild í
söluverðinu og væri það mikil
hvatning fyrir áhafnir bátanna að
vanda meðferð aflans. Sú meðferð
sem gámafiskurinn fengi væri m.
a. fólgin í því að hann væri settur
í kör um borð í skipunum og lægi
þar óhreyfður þar til hann kæmi á
markaðinn. Þetta tryggði mun
meiri gæði en með hefðbundnum
aðferðum auk þess sem ísum væri
auðveldari og körin tryggðu góða
einangrun.
Þau kör sem hér um ræðir eru
að sögn Guðmundar framleidd af
fyrirtækinu Normex hf. í Garðabæ
en MAREX HF er umboðsaðili og
annast sölu á þeim. Hægt er að fá
þau í þrem stærðum þ.e. 1000, 750
og 660 lítra og er hönnunin á þeim
sérstaklega miðuð við íslenskar
aðstæður. Þau hafa reynst með
þeim hætti að innflutt kör sjást nú
vart auk þess sem verðið er mjög
hagstætt. Körin má nota í saltfísk-
vinnslu, pækilsöltun og til ísunar á
ferskfiski, þau eru sérstaklega auð-
veld í meðförum, þola mikið
hnjask auk þess sem auðvelt er að
þrífa þau.
MAREX HF hefur ennfremur á
boðstólum frauðkassa sem ætlaðir
eru undir ferskan fisk til útflutn-
ings. Þeir eru einkar hentugir til
flutninga með flugvélum og einnig
við beinar sölur til útlanda þar sem
erfítt eða ógerlegt er að fá hin
hefðbundnu kör eða kassa til baka.
Guðmundur sagði að frauð-
kassarnir væru mikið notaðir hjá
nágrannaþjóðunum og í raun sú
leið sem valin hefði verið til að
varðveita gæði fersks fisks. Enn-
fremur er lax eingöngu fluttur út
með þessum hætti. Hér á landi
væri þessi pökkunaraðferð á til-
raunastigi og ýmsum spurningum
ósvarað t. d. hvaða stærð væri
heppilegust og hvaða meðferð þeir
þyrftu að hljóta. Ljóst væri þó að
frauðkassarnir gætu opnað íslend-
ingum leið að nýjum og betri
mörkuðum. Aðspurður sagði hann
að komið hefði til tals að hefja
framleiðslu á þessum kössum hér
á landi en ennþá væri markaðurinn
ekki nógu stór.
Eins og áður sagði er MAREX
HF umboðsaðili fyrir ýmsa aðila
sem flytja fisk út í gámum. Hann
var spurður að því hvert gámarnir
færu og hvernig slíkir flutningar
gengju fyrir sig.
„Við seljum fisk til Bretlands,
Belgíu og Þýskalands og er allur
fiskur sem seldur er gegnum okkur
nær eingöngu fluttur út í gámum.
Við sjáum um sölu á allt að 100
tonnum á viku og er það í okkar
verkahring að tryggja upplýsinga-
streymi milli seljenda og kaupenda
og koma sölunni í kring. Við
sjáum um að gámar séu til staðar
þar sem verið er að landa úr
bátunum og skráum niður það
magn og þær tegundir sem hver
bátur kemur með að landi. Síðan
er haft samband við kaupendurna
úti og þeim tilkynnt að farmur sé
á leiðinni. Umboðsmenn erlendis
fylgjast síðan með hverri sölu og
sjá til þess að allt fari rétt fram. Að
sölunni lokinni fáum við tilkynn-
ingu um hvernig salan fór og
miðlum þeim upplýsingum til selj-
endanna hér. Til þess að auðvelda
okkur vinnuna höfum við tekið í
notkun tölvu sem vinnur úr öllum
upplýsingum jafnóðum og þær
berast og því er hægt að fá útprent-
að yfirlit yfir hverja sölu fljótlega
eftir að hún hefur farið fram. Hér
geta menn einnig fengið að sjá á
myndbandi hvernig uppboð á fiski
fara fram og hvernig hann er
meðhöndlaður á markaðnum.“
Að sögn Guðmundar hefur þessi
flutningsmáti að flytja fisk í gám-
um tryggt það að ferskur fiskur
berst nú frá íslandi til kaupenda
erlendis allt árið og taldi hann að
þeir væru farnir að reiða sig á
íslenska fiskinn.
„Þetta stöðuga og jafna framboð
hefur haft í för með sér að verðið
hefur haldist hærra en ella og
hefur það komið þeim íslensku
fiskiskipum sem sigla með afla
sinn til góða. Belgíumenn eru
farnir að treysta gæðunum og eru
mjög ánægðir með þau. Af þessu
má vera ljóst að gámaflutningarnir
á ferskum fiski eiga tvímælalaust
rétt á sér og eru mjög hagstæðir
fyrir þá aðila sem áunnið hafa sér
traust á hinum erlendu mörkuð-
um,“ sagði Guðmundur Þormóðs-
son að lokum. Þess má geta að
MAREX HF kynnir vörur sínar
og starfsemi í bás nr. C6 og C8 á
S j ávarútvegssýningunni.
Ferskur fiskur tilbúinn til útflutnings í frauðkassa frá Marex hf.
Fiski skipað á land í kari frá Marex hf.
John Aikmann:
Einangrunareíiginleikar Urethane
50% betri en annarra efna
Það er almennt viðurkennd stað-
reynd í heiminum í dag, að albesta
einangrunarefni, sem völ er á, sé
úreþan, þ. e. a. s. pollyurethane
(PUR) ogpolyisocyanurete (PIR).
Einangrunareiginleikar þessarra
efna eru að minnsta kosti 50%
betri en þeirra efna sem næst
komast.
En hvað þýðir þessi mikli ein-
angrunarhæfileiki í raun og veru?
Ef steinull og úreþan eru borin
saman, er um helmings munur á
einangrunargildi þessarra tveggja
efna, eða að helmingi þykkara lag
þarf af steinull til að ná sömu
einangrun. í framkvæmd þýðir
þetta, að miðað við sama utanmál
húss, þá er nýtanlegur gólfflötur
um það bil 5% til 10% meiri ef
notað er úreþan, en ef steinullin
væri notuð. Sama á auðvitað við
um frystigeymslur, frystilestar,
kæligáma o. s. frv. Meðfylgjandi
samanburðartafla skýrir ofanritað
að nokkru leyti.
Úreþan er einnig mjög fjölhæft
einangrunarefni ef litið er til þeirra
aðferða sem notaðar eru við að
koma því fyrir: Innspýting, á-
sprautun, holrúmsfylling eða álím-
ing.
í bás E58 kynna John Aikman
og Resina Chemie V. O. F. úr-
eþanhráefni og vélar til vinnslu
úreþans í samvinnu við Tectrade
Aps. Bæði vélar og hráefni hafa
verið lengi í notkun hér á landi og
eru vel kynnt, svo og tækniþjón-
usta þessarra fyrirtækja.
Einnig verða í básnum kynnt
plasthráefni frá Chemische Werke
Húls AG, sem m. a. eru notuð í
net, kaðla og fiskkassa.
Þá verða vélar til framleiðslu úr
trefjaplasti kynntar í samráði við
Tectrade ApS, svo og hráefni til
þeirrar vinnslu.
í bás E 58 verður einnig lögð
áhersla á að öll framangreind fyrir-
tæki veita mjög góða tæknilega
þjónustu, og að John Aikman
ÞYKK * T í MM 1 1
ÚREÞAN 20mm
HVÍTT PLAST 3 3mm
GLERULL 34mm
STEINULL 41mm
ÞANINN KORKUR 47mm
Súlurit þetta sýnir þær mismun-
andi þykktir einangrunarefna, sem
þarf til að ná sama einangrunar-
gildi.
hefur sérhæft sig í útvegun tækni-
þekkingar, „Know-How“, til iðn-
aðar.