Fiskifréttir


Fiskifréttir - 08.06.2001, Page 4

Fiskifréttir - 08.06.2001, Page 4
4 FISKIFRETTIR 8. júní 2001 Fiskirannsóknir Ofmat Hafrannsóknastofnunar: Þorskstofninn helmingi minni en áætlaó var fyrir tveim árum í ástandsskýrslu Hafrann- sóknastofnunar vorið 1999 kom fram það mat að veiðistofn þorsks myndi vaxa úr 1.031 þús- und tonnum í ársbyrjun 1999 í 1.150 þúsund tonn í ársbyrjun 2002 og hrygningarstofninn vaxa úr 528 þús. tonnum í 575 þús. tonn. Núna réttum tveimur árum síðar blasir allt önnur mynd við. Samkvæmt nýjustu úttekt stofnunarinnar er veiði- stofninn metinn 577 þús. tonn nú í upphafi þessa árs og hrygning- arstofninn 219 þús. tonn. Stofn- inn er sem sagt orðinn helmingi minni en áætlað var og munar hálfri milljón tonna í veiðistofni og yfir 300 þús. tonnum í hrygn- ingarstofni. Þorskaflinn 1955-2000. Veiðidánartala þorsks 5-10 ára á sama tíma- bili. (Súlurit: Hafrannsóknastofnun). Hafrannsóknastofnun hefur of- metið þorskstofninn tvö ár í röð. Fyrir einu ári var stofninn í ársbyrj- un 2001 áætlaður 866 þús. tonn en nú er hann metinn á 577 þús. tonn eins og áður sagði. Ofmatið að þessu sinni er 289 þús. tonn eða 50%. Um 40 þús. tonn (13%) af of- matinu nú má skýra með lægri meðalþyngd eftir aldri en áætlað var, segir í skýrslunni. „Meginskýr- inga á ofmati er hins vegar að leita í auknum veiðanleika á árunum 1997 og 1998, sem líklega má rekja til verulegrar minnkunar í sókn á árunum þar á undan. Einnig virðist sókn flotans í eldri fisk á árunum 1996 og 1998 hafa verið mun meiri en reiknað var með. Þetta sést m.a. á því að netaflotinn skipti á þessum árum úr 7-8 tommu möskvastærð í 9-10 tommu. Við stofnmat varreynt að taka tillit til þessara breytinga en áhrif þeina voru vanmetin. Ekki er útilokað að brottkast hafi einnig valdið skekkju í stofnmati en áhrif þess geta ekki skýrt nema lítinn hluta ofmatsins," segir í skýrslunni. Veiðihlutfall 27-42% undanfarin ár Og áfram segir í skýrslunni: „Vegna ofmats á stofnstærð und- anfarinna ár hefur afli sem hlutfall af veiðistofni verið á bilinu 27- 42% sem er langt umfram þau 25% sem stefnt var að. Bæði veiði- og hrygningarstofn eru nú nálægt sögulegu lágmarki og veiðar á næstu árum munu byggj- ast að mestu á árgöngunum frá 1997-1999. Yngri ftskur en 6 ára verður því uppistaða aflans. Allir árgangar frá 1985-1996, eða í rúman áratug, hafa reynst undir langtímameðaltali. Árgang- arnir 1997, 1998 og 1999 eru nú metnir tæpir meðalárgangar að stærð og þó enn ríki talsverð óvissa um stærð 2000 árgangsins eru fyrstu vísbendingar í þá átt að hann sé af svipaðri stærð. Aflamark þorsks fyrir yfirstand- andi fiskveiðiár er 220 þús. tonn. Ný aflaregla var tekin í notkun á síðasta ári með þeim breytingum að bætt var við 30 þús. tonna sveiflujöfnun og fellt niður 155 þús. tonna aflalágmark. Aflamark samkvæmt aflareglunni verður 190 þús. tonn fiskveiðiárið 2001/2002. Veiðistofninn mun vaxa úr 577 þús. tonnum í ársbyrjun 2001 í 745 þús. tonn í ársbyrjun 2003, en hrygningarstofn úr 219 þús. tonn- um árið 2001 í 315 þús. tonn árið 2001 og í 315 þús. tonn árið 2003,“ segir í skýrslunni. Fráleitt að grisja þurfí stofninn Jóhann Sigurjónsson forstjóri Hafrannsóknastofnunar sagði á blaðamannafundi, þegar skýrslan var kynnt nú í vikunni, að komið hefði í ljós að viðvarandi væg til- hneiging hefði verið til ofmats á þorskstofninum á undanförnum árum. Þorskstofninn hefði verið gróflega ofmetinn þegar loðnan brást og góð aflabrögð á árunum 1997 og 1998 hefðu sömuleiðis skekkt matið stórlega. Að fenginni reynslu og með auknum rannsókn- um teldi hann góða möguleika á því að bæta matið á næstu árum. Jóhann vísaði alfarið á bug þeirri kenningu að bágt ástand þorsk- Tillögur Hafró, kvóti og áætluð veiði Tillaga Tillaga TiIIaga Hafró Kvóti Hafró Kvóti Hafró Kvóti Tegund 99/2000 99/2000 2000/01 2000/01 2001/02 2001/02 Þorskur 247 250 203 220 190 190 Ýsa 35 35 30 30 30 30 Ufsi 25 30 25 30 25 30 35-—■ ™ — Djúpkarfi 25-"" 60 22''-' 3>65 30'-'^ Grálúða 10 10 20 20 20 20 Skarkoli 4 4 4 4 4 4 Sandkoli 7 7 4 5,5 3 3 Skrápflúra 5 5 5 5 5 5 Langlúra 1,1 1,1 1,1 1,1 1,35 1.35 Þykkvalúra 1,4 1,4 1,4 1,4 1,4 1,4 Steinbítur 13 13 13 13 1,3 - Síld 100 100 110 110 125 125 Loðna 856" 1000 650" 97521 700" 1.0502’ Gulllax 12 - 12 - 12 - Humar 1,2 1,2 1,2 1,2 1,5 1,5 Innfj.rækja 3,25" 3,25 2,2" 2,2’ 1,4" 1,4 Úth.rækja 20" 20 12" 20' 1,7" 1,7" Hörpudisk. 9,8 9,8 9,3 9,3 6,5 6,5 1) Byrjunarkvótar. 2) Áætlaður heildarkvóti loðnu, þar af koma 850 þús. tonn í hlut Islands. 3) Heildarkvóti úthafsrækju.

x

Fiskifréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.