Storð : heimur í öðru ljósi - 01.03.1985, Blaðsíða 9
STORÐ
FRÁ ÚTGEFANDA
Útgefandi:
Haraldur J. Hamar
Ritstjórar:
Aöalsteinn Ingólfsson
Haraldur J. Hamar
Starfsmenn á ritstjórn:
Elín Jónsdóttir
Solveíg K. Jónsdóttir
Ljósmyndari:
Páll Stefánsson
Útlitshönnun:
Guöjón Sveinbjörnsson
Fjármálastjórn:
Erna Franklín
Ritstjórn og auglýsingar:
Höföabakki 9, pósthólf 93,
Reykjavík, sími 84966.
Áskriftir og dreifing:
sama staö.
Setning:
Prentsmiöja Morgunblaösins.
Litgreiningar og filmuvinna:
Prentmyndastofan hf.
STORÐ kemur út ársfjóröungs-
lega.
í lausasölu kostar
eintakiö 195 krónur.
Efni STORÐAR má ekki afrita meö
neinum hætti, svo sem Ijósmynd-
un, prentun, hljóöritun eöa á annan
sambærilegan hátt, aö hluta eöa í
heild, án skriflegs leyfis útgefanda.
Að loknum fyrsta áfanga
eö þessu tölublaði STORÐAR lýkur þvl áskriftar-
tímabili, sem hófst á öörum fjóröungi síðasta árs.
Útgáfa þessa rits hefur verið tilraun til nýsköpunar
á íslenskum markaði, hún hefur gengið nokkuð (
aðra átt en fólk hefur átt að venjast.
STORÐ hefur fengið góðan hljómgrunn. Margt
ágætt fólk og vandfýsið, sem við tökum mikið
mark á, hefur haft góð orö um ritið. Það hefur
verið örvandi. Ýmsir hafa hins vegar látið ( Ijós
efasemdir um að hægt yrði að halda úti riti í
þessum gæðaflokki á íslandi. En svo eru hinir,
sem telja STORÐ of menningarlega sinnað rit og
að ekki sé nógu mikið að gerast á síðum þess til
að gera það áhugavert. Allar ábendingar eru vel
þegnar. Það var hins vegar aldrei ætlunin að láta
STORÐ fræða fólk enn meira um J.R. og Dallas-
fólkið, eða flytja álika efni, sem nú svalar þorsta
margra. Tilraunin var fólgin í því aö bera á borð
efni af betra tagi í vönduðum búningi. Eins og
þeir, sem kynnst hafa ritinu, þekkja best, er
STORÐ ekki menningarrit fyrir fáa útvalda.
Okkur, sem aö útgáfunni höfum staöið, hefur
reynst viðfangsefnið skemmtilegt og sannarlega
erfiöisins virði. Við lok þessa áfanga verður reynsl-
an metin — og spáð ( spilin.
Það er ekki nóg að hafa stóran og vaxandi les-
endahóp. Ritið verður líka að hafa ákveðnar aug-
lýsingatekjur sér til viögangs og á því sviði virðast
horfurnar ekki sérlega bjartar fyrir tímaritin í land-
inu. [ efnahagslífinu eru ýmsar blikur á lofti og
margt ekki vænlegt. Þessar aöstæður veröur að
meta nú, þegar næsti áfangi STORÐAR er undir-
búinn.
7