Storð : heimur í öðru ljósi - 01.03.1985, Side 41
Handverk enskra alabastursmanna á íslandi
Altaristafla úr Hftardalskirkju frá 1450—1460, nú
í Þjóðminjasafni Islands (þjms. 3617—3622). Hún sýnir
gleðiviðburði I lifi Marlu I sjö lágmyndum. Þær sýna, talið frá vinstri til
hægri: Jóhannes skírara, boðun Marlu, fæðingu Krists, heilaga þrenningu
í miðjunni (dúfuna vantar), upphafningu Marlu, krýningu Marfu og
Jóhannes guðspjallamann. Myndirnar hafa verið settar ( nýja
einfalda tréumgjörð. Stærð: hæð 51 cm og lengd 150 cm.
Neðst: Upphafning Marlu.
ALABAST
fvrir altari
Eftir Beru Nordal Ljósm. Páll Stefánsson
Á miööldum voru íslenskar
kirkjur ríkulega skreyttar helgigrip-
um eins og annars staðar. Mikill
hluti þessara muna var af erlendum
uppruna. Varðveist hefur fjöldi
listaverka sem gefur allgóða mynd
af fjölbreytileika þeirra. Þar má
nefna dýrmæt 13. aldar smeltiverk
frá Limoges í Frakklandi, fjölmarg-
ar helgimyndir frá dögum Hansa-
verslunarinnar, fagran Opus Angli-
canum útsaum frá um 1200 og ala-
bastursverk frá 15. öld.
Ekki hefur verið rannsakað að
neinu marki hve mikill hlutur ís-
lendinga var í smíði kirkjugripa á
miðöldum, en þó er fullvíst að hér
var m.a. mikill fjöldi bóka lýstur,
reflar saumaðir, kaleikar smíðaöir
og helgimyndir útskornar. Það sem
hefur varðveist ber vitni um slíkt og
sýnir aö hér var ekki um tilviljun-
arkenndan hagleik höfunda að
ræða heldur sterka listhefð. Stíll og
táknmál verkanna sýna einnig að
vel hefur verið fylgst með listþróun
í Evrópu. Hér mættust margir skól-
ar og stefnur frá ýmsum löndum og
oft var frjálslega unnið úr efniviðn-
um.
39