Storð : heimur í öðru ljósi - 01.03.1985, Blaðsíða 90
Smásaga
eftir
Einar Má
Guðmundsson
Hæglát svöl golan, sem
siglir með hvítu máva-
gargi frá sjónum, ber
með sér gráleitan reyk úr
strompi síldarbræðslunn-
ar. Og reykurinn úr
strompinum; hann svífur yfir hverf-
inu, greiðir þar úr slæðum sínum og
skilur eftir sig í loftinu þessa undar-
legu fýlu, sem borgarbúar kalla pen-
ingalykt.
Annars er bjart í loftinu. Daufir
sólargeislar falla einsog gylltir krónu-
peningar til jarðar og lítil lambhvít
ský velta sér um Ijósbláan himininn.
Af og til svífa líka þotur, sem
skilja eftir sig skýgular rákir, svífa
einsog risavaxin fiðrildi með raf-
magnsmótor í maganum, stundum svo
margar að skýgular rákirnar mynda
óráðna krossgátu í loftinu; en inní þot-
unum sitja grænklæddir hermenn frá
herstöðinni.
Niðri á jörðinni liggja göturnar í
hverfinu, þær liggja út um allt einsog
flæktar reimar í strigaskóm og með-
fram þeim rísa húsin lík tröllköllum
með gleraugu og horfa á Ijósastaurana,
sem standa fyrir framan þau.
Þennan dag, í einni af götunum,
uppá einum af Ijósastaurunum, situr
Jón. Or fjarlægð mætti alveg halda að
Jón væri punt, sem borgaryfirvöld
hafa hengt uppá staurinn, því þar situr
hann einsog myndastytta. Ljósastaur-
inn, sem Jón situr uppá, er beint fyrir
framan húsið heima hjá honum og af
öllum Ijósastaurum í hverfinu er hann
uppáhalds Ijósastaurinn hans.
í sjálfu sér eru þetta engin tíð-
indi: Út um allt hverfi situr Jón uppá
Ijósastaurum og flestir sem þar búa
hafa séð hann uppá mörgum þeirra.
Það er líka alkunna hvernig hann þýt-
ur upp rennur á húsum, prílar upp
möstur á skipum og stekkur aftan á
öskubíla á ferð. Það er engu líkara en
hann sé með segulkraft í fingrunum
eða klifurgadda á tánum.
Oft er Jón bara að hugsa þegar
hann situr uppá Ijósastaurum, eða
hann situr og gerir eitthvað annað,
flettir leikaramyndum, blæs í blokk-
flautu, syngur bítlalög, eða hann stríð-
ir vegfarendum, hæðir þá og spottar,
því einsog gefur að skilja: því hærra
sem maðurinn fer uppí loftið, þeim
mun frjálsari er hann gagnvart jarð-
_ Hláturinn
í ljosastaumum