Storð : heimur í öðru ljósi - 01.03.1985, Qupperneq 80
Rafrásirnar og smárarnir í nýjustu myndavélunum hafa valdið byltingu í Ijósmyndatækni.
Hvaö ber framtíöin í skauti sér?
myndbandstækni, þar á meðal Canon,
Nikon, Pentax, Kodak, Fuji, Minolta,
Panasonic, BASF og Hitachi. Og öll
eru þau í startholunum með vélar.
Á síðustu ólympíuleikum skaut
svo Canon keppinautunum ref fyrir
rass. Fyrirtækið var þá komið með
fullbúna vél sem notuð var til reynslu
af ljósmyndara Yumuri, stærsta
dagblaðs Japans. Hafði Canon tekist
að auka virkni CCD magnarans um
helming frá því er verið hafði á Sony-
vélinni, og hafði Canon haft samvinnu
við bandaríska fyrirtækið Texas Instru-
ments um þetta verkefni. CCD mögn-
urunum hafði verið fjölgað úr einum í
þrjá og hraði vélarinnar var orðinn 4
myndir á sekúndu. Nú komust 50
myndir fyrir á hverjum diski, í stað 25
áður. Nota má venjulegar Canon lins-
ur á þessa nýju gerð myndavélar, en
Canon fyrirtækið býður einnig uppá
aðrar linsur, vegna þess að myndin er
miklu minni, og því verður brenni-
víddin ekki sú sama. Vél sú er notuð
var í Los Angeles síðastliðið sumar var
með „Zoom“ linsu, 16—200 mm.
Ljósopið var 2,0 sem ógjörningur væri
að hafa á venjulegri 35 mm vél.
Nú í haust hafa svo allir helstu
framleiðendurnir sýnt til-
raunavélar sem þeir ætla fljót-
lega að koma í seljanlegt horf.
Þessar vélar geta samt aldrei keppt við
þá vinnslu á myndum sem við þekkj-
um, fyrr en hægt hefur verið að lag-
færa skerpuna til muna. Einn af for-
stjórum Canon sagði nýlega í viðtali
að notkun nýju vélanna yrði varla al-
menn á þessari öld, nema þá hjá
dagblöðum. Á meðan höldum við
áfram að framkalla myndir á sama
hátt og Talbot karlinn gerði árið 1839.
Baldvin Einarsson er sérmenntaður í viðgerðum
á myndavélum.
ÞITTFÉLAG
SAMVINNU
TRYGGINGAR
ÁRMÚLA3 SÍMI81411
UMBOÐSMENN UM LANDALLT