Storð : heimur í öðru ljósi - 01.03.1985, Side 88
tæki sem gerð eru með það að mark-
miði að halda upphaflegri ímynd upp-
tökunnar svo sem unnt er, bæði hvað
varðar tónbrigði og hljómmynd.
Kaupendur slíkra tækja eru oftast að-
dáendur sígildrar tónlistar, sem vita
vel hvernig slík tónlist hljómar á
hljómleikum og sækjast fyrst og
fremst eftir því að endurskapa þann
raunveruleika, en kæra sig kollótta um
tónjafnara, tónstilla eða annað það
sem falboðið er í þeim tilgangi að
breyta tónlistinni frá því sem er að
finna á hljómplötunni eða í útvarps-
sendingu.
Það mun hafa verið á öndverðri 15.
öld að ítalskir málarar endurreisnar-
tímans innleiddu fjarvíddina eða dýpt-
ina í myndlistinni, en árin eru ekki
ýkjamörg síðan fjarvíddin hélt innreið
sína í hljómmyndina, sem hljómflutn-
ingstækin geta skapað okkur heima í
stofu. í fyrstu var því jafnvel haldið
fram að slíkt væri tæknilega ómögu-
legt. Hinsvegar eru það ekki einvörð-
ungu framfarir á sviði rafeindatækni
sem gera fjarvíðar upptökur möguleg-
ar, heldur og betra og nákvæmara
handverk við smíði hljómflutnings-
tækjanna nú á síðari árum. Á það eink-
um við um tónhausa, tónarma, plötu-
spilara og hátalara, auk þess sem sam-
ræming þessara tækja er mjög mikil-
væg. Er þá ekki átt við útlit og viðar-
áferð, heldur samsvörun eiginleika
tækjanna til endursköpunar þeirrar
hljómlistar sem leikin er.
annseyrað eða öllu fremur
mannsheilinn skynjar legu
hljóðgjafa vegna þess sek-
úndubrots sem munar þeg-
ar hljóðið berst hægra og vinstra eyra.
Því er augljóst að til þess að endur-
skapa þá hljómmynd sem hlustandinn
skynjar og þá ekki einungis sem flöt
milli hátalaranna tveggja, heldur sem
trúverðuga ímynd hljómleikasalarins,
verður nákvæmnin að vera mikil við
endurflutning hljómlistarinnar og
sömuleiðis er nauðsynlegt að taka tillit
til hljómburðar og endurkasts frá hús-
munum í því herbergi þar sem hátöl-
urunum er komið fyrir.
Þessi mikilvægi eiginleiki hljóm-
tækja hefur enn á ný verið mjög til
umræðu í sambandi við hina nýju leis-
erspilara. Enda þótt nákvæmnin sitji
þar í fyrirrúmi og öll bjögun eigi að
vera hverfandi hafa vantrúarmenn
Unnendur sígildrar tónlistar sækjast fyrst
og fremst eftir hljómtækjum sem endur-
skapa tónlistina eins og hún hljómar
á tónleikum.
þessa nývirkis talið að þar sé raunar að
finna Akillesarhæl þess. Þrátt fyrir að
hljómur tækisins sé svo tær og hreinn,
sem raun ber vitni, þá sé hljómur
hinnar endurfluttu tónlistar samt sem
áður ekki trúverðugur því dýpt
hljómmyndarinnar sé takmörkuð, auk
annarra þátta sem ekki verða raktir
hér að sinni. Góð hljómtæki þurfa sem
sé að hafa fleira til brunns að bera en
bylmingsbassa og bjarmandi framhlið.
Konráð S. Konráðsson er læknir í Váxjö í Sví-
þjóð og hefur skrifað greinar um hijómplötur
og hljómtæki í íslensk blöð.
86