Storð : heimur í öðru ljósi - 01.03.1985, Page 85

Storð : heimur í öðru ljósi - 01.03.1985, Page 85
i þessum bút eru tólf glerþræðir, sem hver um sig er mjórri en títuprjónn. Allur annar umbúnaöur er til einangrunar. berast til þeirra, magna þau og senda síðan áfram eftir línunni. Sé notaður venjulegur símavír þarf að magna upp boðin með tæplega tveggja kílómetra millibili. Þetta fyrirkomulag skapar hættu á því að upplýsingar misfarist. Sérstaklega á það við um viðkvæmar upplýsingar, eins og tölvuboð. Einnig geta venjuleg símtöl brenglast eins og flestir kannast við. Annað vandamál er að sjálfsögðu hversu lítið af upplýsingum unnt er að senda samtímis um málmþræði með rafboðum. Sökum þess verður að fjölga vírum ef auka á flutningsgetu símalínu. Flutningsgeta glerþráðanna er aftur á móti aðallega háð tíðni leis- ertækisins, sem sendir Ijósboðin og næmleika díóðunnar, sem nemur þau. Flutningsgetan takmarkast ekki af þráðunum sjálfum. Senda má 250 sinnum meira af upplýsingum um glerþráð en kopar- þráð. Afkastagetan er þó stöðugt að aukast. Vitað er, að þegar á næsta ári mun þessi afkastageta enn tvöfaldast. Sendihraði hraðvirkasta leisertækis, sem nú er boðið til sölu á almennum markaði svarar til þess að senda megi sex þúsund símtöl samtímis í gegnum einn glerþráð. í tilraunum hefur náðst enn meiri hraði. Mesti sendihraði sem mælst hefur, er 25 milljón orð á sek- úndu. Með þeim hraða mætti senda Fasteignaskrána, sem nefnd var í upp- hafi þessarar greinar, frá Reykjavík til Egilsstaða á skemmri tíma en einni sekúndu. Þegar flutningsgeta símakerfis mcð glerþráðum er orðin of lítil, skipt- ir símafélagið einungis um lcisertæki og díóður án þess að þurfa að hrófla við þeim lögnum, sem fyrir eru. Á sama hátt og gerist í málmþræði dofna og bjagast Ijósboð, sem send eru eftir glerþræði. Á svipaðan hátt og lýst var fyrir málmþræðina áður þarf því að magna upp skilaboðin á löngum vega- lengdum. Sú vegalengd, sem senda má skilaboð um án þess að gera þurfi þessar ráðstafanir, er hins vegar mun lengri, cn þegar koparvír á í hlut. 50 kílómetrar geta verið á milli sendi- staða og móttökustöðva, án þess að setja þurfi magnara á línuna. Þessi vegalengd fer vaxandi með hverju ári. Vitað er að skilaboð hafa verið send 160 kílómetra í tilraunakerfum. Bandaríkjamenn og Japanir keppa um forystu í Ijósþráða- tækni. Mörgjapönsk fyrirtæki telja að glerþráðatæknin marki upphaf nýrrar tækniþróunar, sem kunni að leysa rafeindatækni af hólmi. Svo virðist sem stjórnvöld þar í landi líti Ijósþráðatæknina sömu aug- um og hvetji á allan hátt til frekari sóknar á þessu sviði. Japanir og Bandaríkjamenn hafa undanfarin ár skipst á um að hafa for- ystu í rannsóknum á Ijósþráðum og tækni, sem þeim tengist. Bandaríkja- menn standa Japönum þó framar sem stcndur. Bandarísku fyrirtækin AT&T Technologies Inc. og Corning Glass Works eru stærstu fyrirtækin í þess- um nýja iðnaði. Japanska fyrirtækið Sumitomo Electric Industries er hið þriðja í röðinni. Talið er að fyrirtæki frá þessum tveimur þjóðum muni að mestu sitja ein að markaði fyrir Ijós- þráðatækni í náinni framtíð. Eins og áður hefur komið fram hafa Ijósþræðir einkum verið notaðir á þeim stöðum, sem flytja þarf mikið af upplýsing- um, einkum tölvuupplýsingar. Nú þegar eru áform uppi um að leggja mikla Ijóskapla til að endurnýja eldri koparkapla. Bandaríska símafélagið AT&T mun á næstu fjórum árum leggja kapal úr glerþráðum yfir Atl- antshaf. Þetta kann ýmsum að virðast ein- kennileg ráðstöfun í kjölfar allra þcirra fjarskiptahnatta, sem skotið hefur verið á loft undanfarin ár. Sér- fræðingar bandaríska fyrirtækisins eru þó á þeirri skoðun að Ijósþráðatæknin verði svo ódýr, að fjarskipti með gervi- hnöttum muni ekki geta keppt við hana. Japanska símafélagið NTT hef- ur jafnvel enn stórtækari áform. Fyrir- tækið hyggst eyða 2400 milljörðum króna á næstu fimmtán árum í að endurnýja algjörlega símanet sitt. Fyrsti áfangi þessarar áætlunar hófst fyrir ári síðan. Þá var hafist handa við lagningu kapals, sem mun tengja hina norðlægu borg Sapporo við borgirnar Tokyo, Flirosima og Fukuoka. Hann verður samtals nálægt 3000 kílómetr- ar að lengd. Glerþræðir halda einnig innreið sína í upplýsinganet einkaaðila. í Bandaríkjunum hefur einkaleyfi AT&T til símarekstrar verið afnumið. í framhaldi af því eru mörg fyrirtæki að koma sér upp sínum eigin upplýs- inganetum. Þessi net flytja oft mikið magn tölvutækra upplýsinga og henta því vel fyrir Ijósþræði. Þá sækjast stór fyrirtæki, sem 83
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Storð : heimur í öðru ljósi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Storð : heimur í öðru ljósi
https://timarit.is/publication/1614

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.