Storð : heimur í öðru ljósi - 01.03.1985, Qupperneq 27
á sér. Verið er að gefa bændum falsk-
an tilverugrundvöll sem kippa má
undan þeim með einu pennastriki
hvenær sem er. Niðurgreiðslur á orku
eru m.a. afleiðingar af því að ríkið
skattleggur efni og búnað í ýmsar raf-
orkuframkvæmdir, sérstaklega í
dreifikerfin. Fyrst þarf ríkið að taka
erlend lán til að greiða sjálfu sér
skatta af fjárfestingunum. Þegar
óhagstæð gengisþróun og þungur fjár-
magnskostnaður af hinum erlendu lán-
um byrjar svo að sliga rafmagnsnot-
endur er rokið upp til handa og fóta
og lagðir á nýir skattar til þess að
hjálpa til við að borga lánin sem voru
notuð til að greiða ríkinu skatta í
upphafi. Þetta er náttúrulega hrein
endaleysa.
Nargt er gert undir merkj-
um byggðastefnunnar.
Það er athyglisvert að sú
byggðastefna sem rekin
hefur verið á undanförnum árum hef-
ur fyrst og fremst miðast við að auka
eyðslugetu þeirra sem aðstoð hafa
fengið. Miklu minna hefur verið hugs-
að um að bæta möguleika fólksins til
þess að afla sér tekna og standa þannig
undir eigin eyðslufé og búsetukostn-
aði á stöðum þar sem hann er óhjá-
kvæmilega hár.
Margir þeirra sem skipta sér af
velferðarmálum eygja þrjár megin-
leiðir til lausnar á þeim vandamálum
sem við höfum fjallað um hér. Fyrsta
leiðin er að eyða meiri peningum í
velferðarmálin. Önnur leiðin er að
eyða ennþá meiri peningum í þessi
mál og þriðja leiðin er að moka yfir
vandamálin með peningum. En á sama
hátt og arfinn verður ekki kæfður með
því að fela hann með mold, þá eru
mjög mörg af vandamálum velferðar-
ríkis þess eðlis að þau verða ekki leyst
með því meiri peningaeyðslu.
Víða erlendis hefur á síðustu ár-
um farið fram mikil umræða um vel-
ferðarríkið og hvert skuli stefna. Bæði
vestan hafs og austan hafa verið skrif-
aðar ótal greinar og bækur og málin
rædd frá mörgum hliðum. Þessi um-
ræða er tæpast hafin hér ennþá enda
erum við að ýmsu leyti betur sett en
aðrir hvað umfang skattheimtu og
fjárhagshalla varðar. Við höfum til
skamms tíma getað haldið velferðar-
kerfinu uppi en háværar kröfur opin-
berra starfsmanna um hærri laun,
Námslán
Stundum hefur boriö á gagnrýni í pá átt, aö námslán fái fólk sem alls
ekki þurfi þeirra meö og að mikill kippur komi í sölu á hljómflutningstækjum
og ööru slíku á þeim tímum sem námslánin eru greidd út. En hve mikiö geta
námsmenn fengið lánaö og hvernig er upphæðin miðað viö almennar launa-
tekjur?
Ákveönar reglur gilda um veitingu námslána og tekið er tillit til margra
atriöa í þeim efnum, svo sem hvort námsmaður búi í foreldrahúsum, hverjar
tekjur hans séu af sumarvinnu, tekjur maka, börn á framfæri og fleira í þeim
dúr. Til að einfalda málið skulu hér tekin tvö dæmi:
Dæmi 1:
Hjón sem bæöi eru í námi hér á
landí og hafa eitt bam á framfæri
geta fengiö allt aö 40.200 krónur á
mánuöi frá Lánasjóðnum.
Dæmi 2:
Einstætt foreldri meö eitt barn
á framfæri getur fengið allt að 23.450
krónur á mánuöi frá Lánasjóönum.
Séu þessar tölur bornar saman viö kaup verkafólks, þá eru lágmarks-
laun þess nú 14.075 krónur á mánuöi og fólk sem hvorki nýtur bónus-
greiðslna né yfirborgana hefur margt um 16.000 á mánuði. Á sama tíma er
reiknaö meö að námsmaður þurfi 16.750 krónur á mánuði.
En hvort hefur nú námsmaðurinn meiri ráöstöfunartekjur í námi eöa að
því loknu? Ef við tökum dæmi um hjón með eitt barn þá lítur dæmið þannig
út:
/ vinnu:
Tekjur hjónanna samtals, og í
þessu dæmi er gert ráö fyrir aö hann
sé meö 60% og hún 40% teknanna:
Samtals áriö 1985 ...... 562.500
Opinber gjöld ......... * 40.320
522.180
Þetta er sú upphæð sem þau hafa til
ráðstöfunar ef þau vinna bæöi úti.
/ námi:
Gert er ráö fyrir sömu mánaðar-
launum í sumarvinnunni og eftir aö
þau koma úr námi og þaö sem á
vantar upp á framfærsluna, eins og
hún er reiknuö hjá Lánasjóðnum nú
um áramót (16.750 krónur á mánuöi
fyrir einstakling) veröi brúaö meö
lánum úr sjóðnum. Meö barnabót-
um, sem námsmenn fá eins og aörir
heföu hjónin samtals kr. 479.500 til
ráöstöfunar. Auk þess gætu þau
fengið lánaö tíl kaupa á námsbókum
samtals 10—38 þúsund bæöi, eftir
því í hvaöa skóla þau eru.
Samkvæmt þessum dæmum hefðu hjónin aðeins um 42 þúsund krón-
um minna til ráðstöfunar á ári ef þau væru í námi. Þau greiða þá enga skatta,
en stór hluti þess sem þau hafa til ráðstöfunar er lán, sem þau verða að
sjálfsögðu að endurgreiða. Lánið er vísitölubundið og endurgreiðsla hefst
þremur árum eftir námslok. Greitt er tvisvar á ári og endurgreiðslan er háð
tekjum. Miðað við sömu laun gæti endurgreiöslan verið rösklega 20 þúsund
í ár fyrir þau bæði.
Kári Jónasson tók saman.
25