Storð : heimur í öðru ljósi - 01.03.1985, Blaðsíða 18
VELFERÐAR ÞJÓÐFÉLAG
Á VILLIGÖTUM
Félagsleg
aöstoð við
fuHfriskt
fólk
Eftir Dr. Vilhjálm Egilsson
au Nonni og Gerða voru lík öllum hinum sem kaupa þak yfir höfuðið
HTÍ i' fyrsta sinn. Þau voru þessi Meðaljón og Dæmigerður sem setjast
niður og reikna og reikna. Ekki til að finna falinn happdrættisvinning
heldur til þess að leita að hagkvæmustu og skynsamlegustu leiðinni.
Þeim til mikillar undrunar virtist koma best út að fá sér íbúð með því að hætta
að vinna.
fbúðarkaup eru yfirleitt stærstu og fjárfrekustu viðskipti sem ung hjón
leggja útí. Nonni hafði unnið við margt, verið á sjó, í frystihúsi, í byggingar-
vinnu og jafnvel tekið til hendinni í virkjunum. Gerða hafði verið á skrifstofu en
reynt að vera sem mest heima eftir að seinni krakkinn kom. Hann hafði
sæmilegt upp með mikilli vinnu, en einhvern veginn höfðu þau aldrei gefið sér
tíma til þess að pæla í að kaupa íbúð. Það var ekki fyrr en hún fór að vera meira
heima að hún gat byrjað að hringja og spyrja, fá upplýsingar og skoða. Leigan
var ekki svo rosaleg, en þau vissu að þau myndu koðna niður ef þau kæmust ekki
í eigið húsnæði.
Hún hringdi út um allt, fór til bankastjóra, tékkaði á lífeyrissjóðunum,
talaði við þá hjá Húsnæðismálastofnun og fór á fasteignasölur og skoðaði
nokkrar íbúðir. Stóra vandamálið var að þau voru komin með tvo krakka og
eiginlega var of lítið að fá sér tveggja herbergja íbúð sem þau hefðu hugsanlega
ráðið vel við. Raunhæfasti kosturinn til þess að komast í stærra var að reyna að
komast í verkamannabústaði. Þar þurfti aðeins að borga 20% út en afgangurinn
var lánaður til 43 ára.
En bæði var langur biðlisti fyrir verkamannabústaðina og eins voru tekjurn-
ar of háar. Aðeins þeir sem höfðu lægri tekjur en 318 þúsund að meðaltali á
árunum 1981—1983, auk 29.000 króna fyrir hvert barn, komu til greina. Það
var tekjumarkið fyrir hjón með tvö börn. Þessi tala samsvaraði um 600 þúsund-
um á árinu 1985 eða 50 þúsundum á mánuði fyrir hjón með tvö börn. Það var
farið eftir skattframtali og tekjur Nonna og Gerðu voru yfir markinu árin sem
miðað var við, því þau unnu bæði eitt árið og allt var gefið upp. Þau yrðu líka
yfir markinu þegar nýtt ár yrði tekið inn í myndina, því Nonni fékk sér betur
borgaða vinnu með meiri yfirvinnu þegar hún fór að vera heima hjá krökkunum.
Þau voru bara
venjulegt fólk
aö reikna út
hvernig best
væri aö
fá sér íbúö.
16