Storð : heimur í öðru ljósi - 01.03.1985, Page 24

Storð : heimur í öðru ljósi - 01.03.1985, Page 24
mennirnir, kennararnir, ráða mestu um þarfirnar og hvar og hvernig fjár- magninu er eytt; hvað er kennt og hvenær. Kennararnir hafa að sjálf- sögðu hvergi nærri sömu aðstöðu og læknar til að segja notendum þjónust- unnar hvað þeim sé fyrir bestu, en nemendur og foreldrar hafa þó furðu lítið að segja. Nemendur hafa úr nokkrum námsbrautum að velja og stórt á litið verður að segja að hver og einn geti lært það sem hann langar til. Nenntakerfið er þó engan veginn fullkomið. Nám á neðstu skólastigunum er ekki nægilega markvisst og svo virðist sem gæði fjölbrauta- skólanna og menntaskólanna hafi ekki haldist í hendur við fjölgun þeirra. Nemendur virðast alltaf verr og verr búnir undir háskólanám. Lánamál stúdenta á háskólastigi virðast vera komin í ógöngur. Endur- greiðslur á lánum til Lánasjóðs ís- lenskra námsmanna hafa löngum verið í molum og það eru ekki nema síðustu árgangarnir sem greiða umtalsverðan hluta af lánum sínum til baka. Lánin eru nú orðin svo há í sumum tilvikum, að ráðstöfunarfé námsfólks getur ver- ið meira en ráðstöfunartekjurnar að námi loknu. Ráðstöfunarfé námsfólks- ins er líka í mörgum tilfellum meira en fólksins sem greiðir skattana til að standa undir námslánunum. Viðmiðun Lánasjóðs íslenskra námsmanna við mat framfærslukostn- aðar var um sl. áramót 16.750 krónur á mánuði fyrir einstakling í námi og 33.500 krónur á mánuði fyrir hjón séu þau bæði í lánshæfu námi. Þessi mörk eru svo hærri hjá barnafólki. Lág- markslaun fyrir dagvinnu samkvæmt samningum aðila vinnumarkaðarins voru á sama tíma 14.075 krónur á mánuði. Félagsleg aðstoð við fullfrískt fólk er án efa eitraðasti hluti velferð- arkerfisins. Það nær náttúrulega ekki nokkurri átt að hagkvæmasta leiðin til þess að komast yfir íbúð sé að draga úr vinnu og lækka í tekjum. Það þarf engar útlistanir til að sjá að slíkt kerfi gengur ekki upp. Gífurlegar niður- greiðslur á landbúnaðarvörum og orku eru heldur ekki til góðs. Með niður- greiðslum á landbúnaðarvörum og út- flutningsuppbótum er verið að festa í sessi framleiðslu sem í raun á ekki rétt Möguleikarnir til aö eyða peningum í heilsugæslu eru óþrjótandi. Hvað þarf hann að hafa í tekjur? Sígilt vandamál tengt aöstoð viö einstæða foreldra er að það getur orðið fjárhagslega óhagkvæmt fyrir þá að ganga í hjónaband eða fara í sambúð. Skattakerfi okkar hefur sér- stakar ívilnanir fyrir einstæða foreldra en auk þess fá þeir mæðra- eða feðralaun. Þegar einstæðir foreldrar fá sér maka missa þeir bæði skatta- ívilnanirnar og mæðra- eða feðralaun- in. Auk þess veröur heimiliskostnað- urinn í heild meiri hjá tveimur fullorðn- um en hjá einum. Þegar það leiðir til verulegs tekjutaps fyrir einstæða for- eldra að ganga í hjónaband eða fara í sambúð, þá stóreykst hættan á því að fólk fari í óskráða sambúð og reyni að svindla á kerfinu, eða þá að fólk sem hefur skilið, e.t.v. vegna fjárhagsörð- ugleika, taki óformlega saman aftur án vitneskju kerfisins. Meira og meira er farið að fréttast af slíkum tilvikum og fólk hvíslast á um svokallaða „plastpokagæja“. í Bandaríkjunum er svipað form á aðstoð við einstæða foreldra talin ein meginástæðan fyrir upplausn fjölskyldunnar, sérstaklega meðal minnihlutahópa. Það er ein- faldlega dómur reynslunnar að þegar hjónaskilnaðir eða sambúðarslit verða fjárhagslega hagkvæm, þá fjölgar hjónaskilnuðum og sambúð- arslitum. Við sjáum á myndunum þremur hvernig hinir fjárhagslegu útreikningar geta horft við einstæðum foreldrum. 22
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Storð : heimur í öðru ljósi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Storð : heimur í öðru ljósi
https://timarit.is/publication/1614

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.