Storð : heimur í öðru ljósi - 01.03.1985, Síða 25

Storð : heimur í öðru ljósi - 01.03.1985, Síða 25
1) Ef HÚN vill vera heimavinnandí 2) Ef HÚN vill afla 20% heimilistekna 3) Ef HÚN vill afla 40% heimilistekna eftir giftingu. (ca. 'h starf án yfirvinnu). (ca. fullt starf án yfirvinnu). Dæmi er tekiö af einstæðri móöur meö tvö börn. Á árinu 1985 fær hún a.m.k. 53.000 krónur í mæðralaun, a.m.k. 64.600 kr. í meðlag (sem hún reyndar heldur nema hún gangi í hjónaband með fööur barnanna), og sé gert ráð fyrir því að annað barnið sé yngra en 7 ára þá getur hún fengið 67.500 kr. útgreiddar í barnabætur. Samtals geta þetta orðið a.m.k. 185.100 kr. á þessu ári. Við að ganga i hjónaband lækka barnabæturnar og mæðralaunin hverfa. Ennfremur eykst heimiliskostnaðurinn vegna mannsins og hér er reiknað með því að sá kostnaður sé 25% af ráðstöfunartekj- um heimilisins. Á mynd 1 sjáum við hvernig dæmið getur litið út fyrir þessa konu ef hún vill aðeins giftast með því skil- yrði að hún geti verið heimavinnandi og hugsað um heimilið. Ef hún sjálf myndi t.d. vinna fyrir 200 þúsundum á þessu ári, þá þyrfti tilvonandi eigin- maður að hafa 425 þúsund í árstekjur til þess aö hún kæmi fjárhagslega slétt út úr því að giftast honum og taka alfarið upp húsmóöurstarfið. Ef hún myndi sjálf hafa upp undir 300 þúsund þarf hinn tilvonandi eiginmað- ur að ná 600 þúsund króna árstekjum. Og ef hún er sjálf með enn hærri tekj- ur t.d. með 400 þúsund á þessu ári, þá þyrfti maðurinn aö vera með 725 þúsund til þess að hún kæmi fjár- hagslega jafn vel sett út úr því að giftast og gerast húsmóðir. Á mynd 2 sjáum við hvernig út- reikningarnir breytast ef þessi ein- stæða móðir vill halda áfram að vinna t.d. hálfan daginn, sleppa yfirvinnu og taka sérstök frí við og við. Þá lækka tekjumörkin fyrir hinn tilvonandi eigin- mann. Ef hún myndi að óbreyttu hafa 200 þúsund á þessu ári en eftir gift- ingu 65 þúsund þá þyrfti eiginmaður- inn tilvonandi að hafa 340 þúsund í tekjur á þessu ári til þess að fjár- hagsstaða hennar versni ekki við gift- inguna. Ef hún heföi að óbreyttu 250 þúsund en 100 þúsund eftir giftingu, þá þyrfti eiginmaöurinn að vera með 405 þúsund króna árstekjur. Á mynd 3 sjáum við sömu út- reikninga fyrir þessa konu ef hún vill áfram vinna fullt starf en draga úr yfir- vinnu og taka sér kannski einhver frí. Ef hún myndi að óbreyttu hafa í árs- tekjur 150 þúsund en 130 þúsund gift, þá lækka tekjumörkin hjá tilvonandi eiginmanni í 195 þúsund. Ef tekjurnar yrðu 300 þúsund án giftingar en 230 þúsund með giftingu, þá yrðu tekju- mörkin fyrir eiginmanninn 340 þús- und. Þessir útreikningar hafa verið settir upp út frá einstæðri móður með tvö börn. En þetta eru í raun líka út- reikningar fyrir gift fólk sem veltir því fyrir sér að skilja. Nákvæmlega það sama gildir í því tilfelli. Útreikningarnir eru ennfremur byggðir á ákveðnum forsendum sem eru breytilegar eftir einstaklingum og aðrar forsendur gefa aðrar niðurstöður. Mjög mikilvægt er að gera sér grein fyrir því að þetta eru fjárhags- legir útreikningar. Að sjálfsögðu giftir fólk sig á öðrum forsendum en fjár- hagslegum, þótt enginn sleppi undan því aö hugsa líka um krónur og aura. Fjölskyldulíf er mikils virði og börnin, uppeldi þeirra og líf er aldrei unnt aö meta í tilfinningalausum peningum. Spurningin sem þessum útreikn- ingum er ætlað að vekja er sú hvort eðlilegt samræmi sé á milli aðstoðar við einstæða foreldra og skattlagn- ingar hjóna. Sú niðurstaða virðist næsta augljós að svo sé ekki, en það þýöir ekki aö hækka eigi skatta á ein- stæðum foreldrum eða draga úr aö- stoðinni við þá, heldur viröist mun skynsamlegra aö lækka tekjuskatta á hjónum og sérstaklega að afnema þann mismun sem er á skattlagningu heimila eftir því hvernig tekjum hjón- anna er skiþt. Lægri skattar á hjón myndu stórlega draga úr þeim fjár- hagsskelli sem einstæðir foreldrar geta orðiö fyrir viö að ganga í hjóna- band og þess vegna raunhæfasta aö- geröin til lausnar á því sígilda vanda- máli sem hér er kynnt. Vilhjálmur Egilsson tók saman.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Storð : heimur í öðru ljósi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Storð : heimur í öðru ljósi
https://timarit.is/publication/1614

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.