Storð : heimur í öðru ljósi - 01.03.1985, Side 69

Storð : heimur í öðru ljósi - 01.03.1985, Side 69
VÍNKJALLARINN Að dreypa á stjörnum Eftir Einar Thoroddsen Champagne er nyrsta vínhérað Frakklands og liggur umhverf- is borgina Rheims. Allt ekta kampavín er ættað frá ákveðn- um héruðum þar í grenndinni. Kampavín kostar ætíð drjúgan skild- ing, enda bregst það aldrei nema það hafi skemmst. Kostnaðurinn liggur að hluta í þeirri vinnu sem vinnsla kampavíns útheimtir. Sagan segir að Dom Pérignon, blindur munkur og kjallarameistari, hafi fyrstur gert kampavín. Er hann drakk fyrsta sop- ann, varð honum að orði: Eg drekk stjörnur . . . Þessa sögu sel ég ekki dýrari en ég keypti. Önnur saga hermir að fólk- ið í nágrenni Rheims hafi eitt sinn búið til hvítvín, sem það seldi m.a. til Englands. Haust nokkurt á 17. öld stöðvaðist gerjunin vegna kulda, skömmu áður en vínið var flutt á áfangastað. Á Englandi hlýnaði með vorinu og gerjunin fór aftur í gang. Við það kom gos í vínið og allir urðu glaðir. Hins vegar þoldu flöskurnar ekki þrýstinginn og ófáar sprungu á þessum bernskuárum kampavínsins. Við gerjun kampavíns myndast grugg sem lengi vel var erfitt að losna við. Það var ekkja vínframleiðandans Cliquots sem fann upp óbrigðula að- ferð. Hún nefnist remuage og er fólg- in í því að flöskunum er komið fyrir í rekka með stútinn skáhallt niður. Síð- an er þeim snúið u.þ.b. einn áttunda úr hring með smávegis titringi á hverj- um degi, uns allt grugg er komið niður í stútinn. Þetta getur tekið 7—8 vikur. I fyllingu tímans eru flöskurnar opnaðar, um leið og þeim er snúið á réttan kjöl. Loftbólan á botninum stíg- ur þá upp í stútinn og sprengir út gruggið (dégorgement), en fullgerjað vínið stendur eftir. Þessi aðferð krefst mikillar lagni og góður kjallarameist- ari kemst yfir að snúa 20—30.000 flöskum á dag. Önnur aðferð er að frysta gruggið og sprengja það út sem tappa. Flöskurnar eru svo fylltar með sykurupplausn, mismunandi sterkri eftir því hve sætt vínið á að vera. Þurr- asta kampavínið heitir brut, en svo koma extra sec, sec og demi-sec. Kampavín er oftast gert úr tveimur berjategundum, Pinot noir og Chardonnay í hlutföllunum 3:1. Dökku berin eru pressuð hratt svo að hýðið nái ekki að lita safann — nema þá að fyrirmælin hljóði upp á champ- agne rosé. Þó eru til ýmis afbrigði kampavína, þekktast er Blanc de blancs (hvítt úr hvítum berjum) eða 100% Chardonnay, sem þykir mjög fínlegt á bragðið. Ekki þræti ég fyrir það, en venjulega blandan er alveg nógu fínleg fyrir minn smekk. Kampavín er án efa jafnbesta eðalvín í heimi og með hárfínni blönd- un er bragðinu haldið stöðugu frá ári til árs. Blöndunin er mjög vandasöm og krefst góðs lyktar- og bragðskyns. Hún fer fram hjá vínfyrirtækjunum, en þau eiga ýmist sjálf vínekrur eða kaupa vínin frá ýmsum framleiðend- um í Champagne-héraði og blanda þau svo. Þegar vel árar eru gerð svokölluð árgangsvín, vintage champagne, (millesimé) og er þá blandan öll frá sama ári — annars er mismunandi árgöngum blandað saman. Árgangs- kampavínin eru eilítið dýrari og held- ur bragðfyllri, en menn greinir á um hvort þau séu betri en „venjuleg“ kampavín. Nú er farið að búa til enn dýr- ari vín, deluxe champagne, nokkurs konar skrautfjaðrir hvers framleiðanda. Þar má nefna Dom Pérignon (frá Moét et Chandon, sem blandar einnig Chanel No 5), Comtes de Champagne (Taitt- inger), Cristal (Roederer), og La Grande Dame (Veuve Cliquot-Ponsar- din). Þessi vín hafa að hluta komið í stað árgangskampavínanna, enda meira upp úr þeim að hafa. Fyrirtækið Krug segir að öll vín sem það fram- leiðir séu í hæsta gæðaflokki. Þau kosta líka sitt, en ég er sammála fram- leiðendunum. Árgangskampavín voru búin til árin 1970, 71, 73, 75, 76, 79, 82 og 83, sem þýðir ekki að allir hinir ár- gangarnir hafi verið slæmir. Árið 1981 var til dæmis ágætt, en þá var framleiðslan svo lítil að megnið af vín- inu var notað í blöndur. Árgangs- kampavín eldast betur en þau sem Tvær góöar til brúks viö hátíöleg tækifæri — og hvunndags. 67
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Storð : heimur í öðru ljósi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Storð : heimur í öðru ljósi
https://timarit.is/publication/1614

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.