Storð : heimur í öðru ljósi - 01.03.1985, Síða 79

Storð : heimur í öðru ljósi - 01.03.1985, Síða 79
LJÓSMYNDUN Segulfilman flytir fyrir Eftir Baldvin Einarsson Tuttuguogein komma átta blikkar á ljósatöflunni. Kepp- andi númer fimmtíu og átta er fyrstur í mark. Hundruð ljósmyndara þyrpast í kringum ólympíusigurvegarann og keppa um að verða fyrstir að ná mynd af honum. Framkalla í snatri og símsenda myndir sínar til blaða og tímarita, þar sem beðið er í ofvæni eftir „Myndinni". Meðan allir hinir ljósmyndararnir eru að bardúsa í kolamyrkri gengur ljósmyndari japanska dagblaðsins Yumuri beint að næsta síma og hring- ir rafsegulmynd sína inn á ritstjórnina. Ekki er liðin nema ein mínúta frá því að myndin var tekin þar til hún liggur tilbúin hjá blaðamanni, sem þegar er í óðaönn að skrifa myndatexta. Hann var örugglega fyrstur í Los Angeles í sumar, ljósmyndarinn frá Yumuri. Sú ljósmyndatækni sem við þekkjum best, á rætur sínar að rekja til bresks landeiganda, Fox Talbot að nafni. Árið 1839 fann hann upp aðferð til að festa það sem fyrir auga bar á blað/filmu. Reyndar hafði hann ekki ýkja mikinn áhuga á þessari uppfinn- ingu í byrjun og fór að sinna öðrum áhugamálum. Það var ekki fyrr en sex árum síðar, þegar aðrir höfðu fundið upp svipaða aðferð, að hann gerðist ljósmyndari og gerði þá tilkall til upp- finningarinnar sem aðrir ljósmyndarar hafa notast við síðan. Árið 1981 kom Sony svo öllum á óvart þegar fyrirtækið kynnti Mavica, myndavél á stærð við venjulega 35 mm SLR (Reflex) en í stað venjulegr- ar filmu er notaður diskur, húðaður segulprúðri. Diskurinn er 47 mm að Canon D413 Stillivídeóvélin. Hana má tengja viö tæki sem fundiö getur hvern tekinn myndramma (A), en þaö má svo aftur tengja beint viö sjónvarpstæki eöa skerm, símsendingar- og móttökutæki (B,C), leysigeisla „ skanner “ til litgreiningar (D), og prentara, bæði fyrir plötur og pappír (E,F). ummáli og 3,6 mm þykkur; þyngd hans er aðeins 8 gr. Ljósnæmi disksins samsvarar ASA/ISO 100 á venjulegri filmu. Mesti hraði myndavélarinnar er 1 / 500 og getur hún tekið tvær myndir á sekúndu. Myndin verður til með rafsegulboðum, með svokölluðum CCD (Charge-coupled device) magn- ara. Hann framleiðir rafboð í hlutfalli við það ljós sem á hann fellur og er tækið mjög nákvæmt, en eina helst mætti líkja því við lítinn plötuspilara. Rafseguldisknum er snúið 3.600 snún- inga á mínútu af mótor á stærð við þumalfingurgóm, og CCD magnarinn býr svo til rásir sem hann síðan les af til að fá mynd. Magnarinn þarf að vera á hárréttum stað yfir disknum, og má ekki skeika meira en 0,005 mm. Sporin eru 0,06 mm breið og bilið á milli þeirra er 0,04 mm. Eftir að þær 25 myndir sem rúmast á disknum hafa verið teknar, er hann tekinn úr vélinni og þarf þá einungis að setja hann í lítið tæki sem breytir myndinni í sjón- varpsmynd á skjá, en einnig er hægt að láta tækið prenta myndirnar. Rostirnir við þessa tækni eru þeir helstir að engrar fram- köllunar er þörf og hægt er að skoða myndirnar strax eftir að þær hafa verið teknar. Einnig er mjög auðvelt að flytja rafsegulmyndir milli staða. ókostirnir eru hinsvegar þeir að mjög mikið vantar enn uppá gæðin, miðað við venjulegar filmur. Myndin hjá Sony var svo óskýr að fyrirtækið hefur enn ekki sett vélina á markað, þrátt fyrir að loforð hafi verið gefin árið 1982 um að Mavica myndi koma á markaðinn í lok 1983. En þótt Sony hafi unnið fyrstu lotuna, eru fleiri um hituna. í lok maí 1984 sameinuðust 32 fyrirtæki um að nota seguldisk samsvarandi Sony- disknum sem staðal. Undir þennan al- þjóðlega staðal skrifuðu öll stærstu fyrirtækin á sviði ljósmyndunar og 77
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Storð : heimur í öðru ljósi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Storð : heimur í öðru ljósi
https://timarit.is/publication/1614

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.