Storð : heimur í öðru ljósi - 01.03.1985, Side 83

Storð : heimur í öðru ljósi - 01.03.1985, Side 83
MANNAMUNUR Viltu dansa? Eftir Kristínu Bjarnadóttur Enn er því haldið fram að kven- menn séu öðruvísi — og að karlmenn séu allt öðruvísi öðruvísi. Það er sagt að kven- menn hafi betri stjórn á vinstra hveli heilans, meðan karlmaðurinn hafi betri stjórn á því hægra. Þetta er eitthvað líffræðilegt, rétt eins og það að kynin eru gagnstæð. Sálfræðingur- inn Camilla P. Benbow hefur t.d. haldið því fram að líffræðin orsaki það að karlmenn sýnast ekki eins háðir samhengi og kvenmenn. Þeir séu þess vegna sértækari og færari um að leysa viðfangsefni sem lúta að sjón og rúmi. Körlum láti vel að fá hluti til að lúta að stjórn sinni, en kvenmenn séu háð- ari, málgefnari og hafi mciri áhuga á fólki. Þetta má vel vera rétt og satt, en ég er engu nær. Eg er í rauninni engu nær en þegar ég fór á mitt fyrsta mannamót. Alvöru mannamót. Fyrir tuttugu og fimm árum. Fyrri hluti mótsins var félagsvist. I félaginu voru allir innansveitarmenn. Allir sem vettlingi gátu valdið og spilum. Fólk spilaði hvert innan um annað eftir settum reglum, án tillits til líffræðinn- ar. Pabbar og mömmur, afar og ömm- ur og börn á skólaaldri. Svo byrjaði dansinn. Við undirleik dragorgansins. Elsta fólkið og yngsta fólkið fór heim en obbinn varð eftir og háði dans. Polka og ræla, skottísa og marsúka, hringdansa og keðjur, marsa með skiptum inná við og útá við og nafna- köllum. Ég þóttist kunna þetta allt eftir ómælda heimavinnu á ganggólf- inu heima. IVfér fannst ég meira að segja dansa það vel að enginn þyrfti að skammast sín fyrir að dansa við mig. Ég var ellefu ára. Og ég var ný á þessu gólfi. Ég varð fyrir áfalli. Ég varð fyrir því þegar ég sá að allir kven- mennirnir biðu eftir því að karlmenn- irnir streymdu yfir gólfið, brunuðu að þeim og bæðu þær um dans. Sátu sem fastast þar til þær voru beðnar. Ég reyndi að gera eins. Það kostaði mig annað áfall. Ég beið eftir því. Það var sá karlmaður sem fór sér hægast og var síðastur yfir gólfið, sem bauð mér upp af því ég var meðal þeirra fáu kvenmanna sem voru afgangs. Ég hlýt að hafa verið nógu þroskuð, líffræði- lega, til að gera mér grein fyrir að í þessu var fólgin viss niðurlæging. Ég ákvað að láta þetta ekki henda mig aftur. Ákvað sjálf að bjóða upp í næsta dans. Ákvað að taka á mig rögg þrátt fyrir feimnina og herða mig upp hvað sem það kostaði. Það kostaði þriðja áfallið. Bóndinn sem ég réðist að og bauð upp í dans, tók mér að vísu karlmannlega, þ.e.a.s. hann lét sér hvergi bregða, greip mig traustataki og sveiflaði mér og hélt mér fastri samtímis. Ég stóðst þrautina og gat því vel staðið við framtak mitt. Ég stóðst hinsvegar ekki augnagotur kvenmannanna. Þegar ég fann að ég roðnaði, þá tók ég fyrst eftir hvað allar konurnar virtust hvítar og rólegar í framan. En þó kátar. Þær brostu allar yfir axlir karlmannanna. Nema þegar þær litu á mig. Djöfullinn í heitasta heitasta. IVIér leið eins og afbrota- manni, sem hafði komið upp um sig vegna vankunnáttu. Stór hluti af baráttu kvenna, við sjálfar sig og samfélagið, er baráttan við söguna, við leikreglur sem tilheyra fortíðinni. Við höfum allt það frelsi sem við tökum okkur, á því er enginn vafi. En almennt og sameiginlegt eig- um við aðeins valfrelsið. Við ráðum hverjum við bjóðum upp. Og nú á ég við atvinnuveitendur. Við ráðum ekki lengur hvort við bjóðum upp eða ekki, því okkur er alls ekki til setunnar boð- ið. Við erum búnar að sjá fyrir því. Kvenmennirnir eru farnir að gera kröfur til sín, langt út yfir eigin- konu- húsmóður- og móðurhlutverkið og búnir að komast að því að dansinn er enginn þrautakóngur, svo lengi sem þeir dansa saman. Kvenmennirnir. Hin er þrautin þyngri, að þurfa sífellt að bjóða körlum upp. Það kom mér nefnilega á óvart, síðast þegar ég lenti í atvinnuleit, að dag eftir dag varð ég fyrir hryggbroti af völdum karla, sem bersýnilega þorðu ekki að treysta um of á það hversu vel ég hafði þjálfað mig heima fyrir. Ég hrökklaðist út af skrifstofum, misjafnlega bjartsýn á að fá bót meina minna á næstu skrifstofu, þar til það rann upp fyrir mér að ég hafði verið haldin þeirri villutrú að konur væru orðnar jafnráða á atvinnu- markaðinum eftir frelsisdans síðustu ára. En hver sáir sem hann uppsker, svei mér þá. að sem mér finnst kannski erf- iðast að horfast í augu við, er að á meðan kvennabarátta er stéttabarátta, virðist valdabar- átta milli kynjanna vera óhjákvæmi- leg. Kristín Bjarnadóttir er leikkona og Ijóðskáld. 81
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Storð : heimur í öðru ljósi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Storð : heimur í öðru ljósi
https://timarit.is/publication/1614

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.