Storð : heimur í öðru ljósi - 01.03.1985, Page 86

Storð : heimur í öðru ljósi - 01.03.1985, Page 86
hafa starfsemi í mörgum landshlutum, eftir að tengja vinnustaði saman með eigin upplýsinganetum. Því fylgja þó oft talsverð vandamál því ósjaldan er nauðsynlegt að leggja kapla yfir land, sem er í eigu margra óskyldra aðila. Leyfi til lagnanna liggja því ekki ætíð á lausu. Mörg þessara fyrirtækja hafa í seinni tíð óskað eftir leyfi járnbraut- arfélaga til að leggja glerkapla eftir járnbrautarlínum og landræmum með- fram þeim. Nokkrir vísindamenn telja að Ijósþráðatæknin muni gjörbreyta tölvutækninni. Þeir benda á að hraði rafstraumsins sé þegar farinn að standa reiknihraða og afkastagetu full- komnustu tölvanna fyrir þrifum. í reikniverki tölva fer rafstraumur um straumrásirnar með hálfum Ijóshraða. Sérfræðingar bandaríska símafélagsins AT&T eru þeirrar skoöunar að Ijósþráða- tæknin verði svo ódýr, að fjarskipti um gervihnetti geti ekki keppt við hana. Þrátt fyrir að telja verði það ærinn sendihraða á boðum, fer Ijósið 50% hraðar um glerið í Ijósþráðunum. Með því að finna leiðir til að þróa glerþræði í rásirnar telja hinir bjartsýnustu í hópi áðurnefndra vísindamanna að framleiða megi nýjar kynslóðir af tölv- um, sem reikni með Ijósi í stað raf- magns. Þær tölvur muni taka rafeinda- tölvunum fram um reiknihraða, fyrir- ferð og orkunotkun. Þegar eru hafnar tilraunir til að nota Ijósþræði í stað rafeindatækni við hönnun tölvutækja. Hollenska fyrir- tækið Philips hefur ásamt fleirum reynt að hanna „ljósdiska“ til að varð- veita upplýsingar á. Talið er að varð- veita megi margfalt meira magn upp- lýsinga á þannig diskum en hinum hefðbundnu seguldiskum. Þó að þess- ar tilraunir hafi oft virst lofa góðu hefur enn sem komið er reynst erfitt að nýta þær í tölvutækjum. Miðað við þá reynslu má ætla að Ijósbyltingin eigi ennþá alllangt í land með að koma í stað rafeindatækninnar. Hins vegar er Ijóst að glerþræðirnir hafa nú þegar gjörbylt hugmyndum manna um fjar- skipti og flutning upplýsinga. Þessi tækni mun að öllum líkum taka við af koparvírunum, sem nú eru í notkun, eins fljótt og hagkvæmt reynist. Hin svonefndu tölvunet eða upplýsinganet krefjast bein- línis afkastamikilla boðlína. Tölvunet, sem tengja saman tæki á þröngu svæði, og nefnd hafa verið nærnet á íslensku, nota mörg hver Ijósþræði í kapla sína. Sem dæmi um eitt af þeim fyrirtækjum, sem hannað hafa athyglisverð tölvunet, er nota Ijósþráðatækni má nefna danska fyrirtækið Christian Rovsing. Ekki er ólíklegt að með tilkomu símakcrfa, sem eingöngu nota lagnir úr Ijósþráðum muni allir möguleikar á upplýsingamiðlun í þjóðfélaginu gjör- breytast. Flutningsgeta Ijósþráðanna er það mikil að ætla má að sendingar útvarps og sjónvarps megi leiða um símakerfið. Þá verður einnig einfald- ara og ódýrara að tengja heimilistölv- ur við upplýsingabanka og aðrar tölv- ur cn nú er. í dag er nauðsynlegt fyrir tölvunotanda að kaupa sérstakt tæki, sem breytir tölvuboðunum fyrir síma- kerfið og þýðir boð, sem koma úr því, fyrir tölvuna. Þessi tæki eru kölluð „módem“. Þegar notaðar eru símalín- ur með Ijósþráðum verður þeirra ekki þörf. Ef þessi verður raunin mun hvert heimili hafa sitt „upplýsinga- inntak“. Við þetta inntak má tengja venjulegt talsímatæki auk heimilis- tölvu, sjónvarps og útvarps. Hér hlýtur þó kostnaður að stjórna framkvæmdahraða. Endurnýj- un alls símakerfisins mun að sjálf- sögðu taka langan tíma. Hin stærri og þéttbýlli lönd munu væntanlega fyrst njóta þessarar tækni. Áður hefur verið drepið á áform japanska símafélags- ins. Fleiri lönd munu að sjálfsögðu fylgja á eftir. Hér á landi er þess þó tæplega að vænta að þessi tækni muni hafa umtalsverð áhrif í náinni framtíð. Stefán Ingólfsson er verkfrœðingur og starfar hjá Fasteignamati ríkisins. l/ann á sæti í stjórn Skýrsluvéla ríkisins og Reykjavíkurborgar. 84
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Storð : heimur í öðru ljósi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Storð : heimur í öðru ljósi
https://timarit.is/publication/1614

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.