Storð : heimur í öðru ljósi - 01.03.1985, Page 91

Storð : heimur í öðru ljósi - 01.03.1985, Page 91
arbúum, nýtur til dæmis ótakmarkaðs málfrelsis og kemst oft í nánara sam- band við víðáttur hugans. Þess vegna hlýtur Jón, af því hann hefur hvorki vængi á höndunum né mótor í maganum og getur þar af leiðandi ekki svifið með þotunum um blámann, þess vegna hlýtur hann að vera á einhverju öðru flugi í huganum. Við nánari athugun, þegar penninn er færður nær Ijósastaurnum, kemur líka í Ijós, — hversu göfugt sem það nú er — að Jón situr með klámblað í skauti sér, en það hefur þá sögulega sérstöðu að vera fyrsta klámblaðið í einkaeign stráks í götunni. Og hvar skyldi Jón hafa náð í klámblaðið? Svarið við þeirri spurningu er einfalt: því hnuplaði hann í fornbóka- sölunni hjá feitasta fornbókasala borg- arinnar, honum Jóa sódó, en hann sel- ur í fornbókasölunni sinni myndablöð með berrössuðum konum og þar á hann systur sem stundum dansar nak- in fyrir miðaldra kalla. Neðri vörin á Jóa nær alla leið niður á bringu og hann tók ekki eftir neinu þegar Jón hnuplaði blaðinu, af því að hann, eins og Jón sagði síðar, var svo upptekinn við að klóra sér í rassinum. Á meðan Jón flettir klámblaðinu, hanga lappir hans fram af Ijósakrón- unni. Stundum lítur hann upp og horfir grettinn framan í daufa sólar- geislana og af og til pirrar peninga- lyktin úr strompi síldarbræðslunnar nef hans; já hún kemur stundum í gusum, ekki ósvipað og það sé hellt lýsi uppí nasirnar. En allt í einu heyrir Jón að ein- hvers staðar hringlar í lyklum, úti- dyrahurð opnast og lokast og hann sér hvar Lárus legsteinasali, sem vanalega er kallaður Lalli leg, kemur labbandi út úr næsta húsi. Jón byrjar að glotta og glottir því tvíræða hæðnisglotti, sem í bíómynd- um á hvíta tjaldinu, er vanalega eign- að amerískum einkaspæjurum, þó ræt- ur þess í bókmenntunum séu raktar allt aftur til íslenskra fornkappa: Að minnsta kosti á þetta glott sér langa sögu og kemur víða við í samskiptum mannanna. Hvað á ég nú til bragðs að taka, hugsar Jón um leið og hann rúllar klámblaðinu saman og stingur því í rassvasann, nuddar saman höndunum og horfir á Lárus sem er samanrekinn og kubbslegur, með stóra ístru í mót- un. Það voru skrifstofu- og úti- dyralyklar sem hringlaði í og Lárus, sem heldur á skjalatösku niður tröppurn- ar, er í Ijósgráum jakkafötum, með hvítan skyrtuflibba og bindi sem helst líkist þjóðfána. Gullúr glitrar og skyrtuhnappar með útskornum hrókum á, glampa í sólinni. Ef Jón væri með litla vasa- spegilinn sinn, mundi hann kannski beina sólargeislunum í auga Lárusar, bæði til að skemmta sjálfum sér og til að rugla Lárus í ríminu. Lárus legsteinasali rekur, einsog viðurncfnið gefur til kynna, fyrirtæki sem framleiðir legsteina, legsteina í öllum stærðum, með útflúri og ískornu skrauti, og hann er, eftir að hann birtist aldraðri spákonu sem þingmaður bæði í kaffibolla og spil- um, allur að stússast í stjórnmálum og heldur oft ræður í ýmiskonar kalla- klúbbum. Varirnar á Lárusi bærast á leið hans að bílnum og þess vegna ályktar Jón, að sé hann ekki að fara yfir bók- hald legsteinagerðarinnar í huganum, þá hljóti hann að vera með ræðu uppi í munninum, ræðu sem hann reynir að rifja upp og læra utanbókar. En hvað um það .. . Ræða eða bókhald ... Á meðan Lárus legsteinasali fimbulfambar með skjalatöskuna fyrir framan bílinn sinn og leitar að bíllykl- unum í jakkavösunum, þá býr Jón til lúður úr öðrum lófanum og lætur rödd sína hljóma ofan af Ijósastaurnum, einsog hún komi úr helli. Hvert ertu að fara spyr hann. Lárusi bregður. Hann kippist við og hrekkur í kút. Er verið að tala til hans úr loftinu? Heyrir hann rödd af himnum? Nei, Lárus sér ekki neinn, ekki fyrr en hann í gegnum daufa sól- argeislana kemur auga á Jón. Hvað káfar það upp á þig, segir Lárus með kulda í röddinni, líkt og hann haldi að þar með sé málið af- greitt og hann geti bara keyrt burt og skilið þessa sögu hér eina eftir í göt- unni. Er það eitthvert leyndarmál? Nei, en þú átt ekki skipta þér af annarra högum. Þá breytist glottið á Jóni í hlátur.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Storð : heimur í öðru ljósi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Storð : heimur í öðru ljósi
https://timarit.is/publication/1614

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.