Storð : heimur í öðru ljósi - 01.03.1985, Page 93

Storð : heimur í öðru ljósi - 01.03.1985, Page 93
setur upp ekta kökukeflissvip og munnur hennar strekkist eins og þvottasnúra yfir andlitið, áður en hún hefur raust sína á loft og segir, hvorki á hebresku né einhverri óskiljanlegri Hvítasunnutungu, heldur sínu eigin móðurmáli: Þú ert bara alveg snarvitlaus, það var fyrir guðs náð og miskunn að þú hittir ekki nýfætt barnið mitt í höfuð- ið. Hvað á svona lagað eiginlega að þýða? Já hvað á það að þýða étur Jón eftir henni. Er ekki nóg fyrir þig að selja legsteina, þarftu líka að drepa fólk? Þegi þú ... Þe-þe-þetta er allt ho-honum að kenna stamar Lárus, áð- ur en hann finnur jafnvægi í orðunum og byrjar hægt og rólega að útskýra alla málavöxtu fyrir Öddu. En annað hvort eru það útskýr- ingarnar, sem gera málavextina fárán- lega, eða málavextirnir útskýringarn- ar, því varla hefur Lárus nefnt Jóa sódó til sögunnar þegar Adda grípur frammí. Og grýttirðu strákinn fyrir það? Nei nú detta mér allar dauðar lýs.' Já ég ... Það er ekkert já ég hérna. Að þú fullorðinn maðurinn skulir láta svona strákapíp hafa áhrif á þig, það er bara af því að þú tekur það til þín, Já alveg rétt, áfram Adda hrópar Jón. Þegi þú litli djöfull með hjartað fullt af púkum. Þú ert engu skárri, þið eruð allir eins. Jón hlær, en Lárus rétt nær að gleypa goluna, með orð uppí munnin- um, þegar Adda snýr sér aftur að hon- um. Ég vona bara að þú sért borgun- armaður fyrir rúðunni Lárus. Hann Júlli minn er nýbúinn að skipta um gler og þú veist hvað það kostar. Já þetta verður gert upp flýtir Lárus sér að segja, guðs lifandi feginn að málið skuli allt í einu byrjað að snúast um peninga. Og það sem fyrst. Já sem fyrst endurtekur Lárus, lítur á gullúrið, brosir þvinguðu Dale Carnegie brosi og segir með augun- um, nú verð ég að fara. Herðablöðin sitja í dapurlegum stellingum og öllum má vera Ijóst að það er dauflegur maður sem keyrir hikstandi í bíl gegnum blágrátt reykský út götuna. Eftir á götunni stendur Adda og hristir hausinn með hendur á mjöðm- um, lítur síðan upp til Jóns og segir: Slorkjaftur og dóni. A eftir þessum orðum skellist kjallarahurðin í húsinu svo fast að Ijósastaurinn hristist og Jón hlær svo undir tekur í öllu rafkerfi borgarinnar. I? ■ J inhvers staðar í fjarska hef- ■ 1 ur flokkur gargandi máva I J sig uppí loftið og þennan dag í hæglátri svalri golunni situr Jón aleinn eftir í götunni. Hann hagræðir klámblaðinu í rassvasanum, áður en hann grípur ann- arri hendinni í þverslá Ijósastaursins, þannig að lappir hans dingla í lausu lofti, þar til hann krækir þeim í hnút utan um staurinn. Svo byrjar hann að renna. Svart skýið, sem áður teygði sig eins og sveppur uppí loftið og sat þar um stund eins og hárlokkur krullaðrar tröllskessu, það hefur dreift úr sér á meðan önnur gráleit hafa hópast fyrir sólina. Daufir sólargeislarnir falla ekki lengur eins og gylltir krónupeningar til jarðar og litlu lambhvítu skýin eru hætt að velta sér um himininn. Sömu- leiðis eru allar skýgulu rákirnar horfn- ar. Já allt er horfið, allt nema gráleit- ur reykurinn úr strompi síldarbræðsl- unnar og þoturnar tvær sem skullu saman og urðu að eldkúlu í loftinu. Þær loga á fjallstindi fyrir utan borgina og þar á klettasyllu sitja ótal hrafnar. Hrafnarnir skilja ekkert í allri þcssari birtu, í öllum þessum hita, sem brætt hefur vængi þeirra. Þeir geta ekki flogið, þeir bara krunka í kór. Allt stækkar fyrir framan Jón, þar sem hann stendur á jörðinni. Hann horfir á gráleit skýin þéttast í loftinu, þar til þau í svífandi vofuklæðum koma labbandi eftir götunni. Hvernig var það? Gleypti þokan Jón, eða hvarf hann með henni inn til sín, tók þar upp símann við símaborðið þar sem ein löppin er brotin, og hringdi í alla glerskera borgarinnar? Að minnsta kosti skömmu síðar, þegar byrjað var að rigna, birtist hópur holdvotra manna með rúður á bakinu. Þeir stóðu eins og heill trúarsöfnuður fyrir utan kjallaradyrnar hjá Öddu, sem gapti þegar hún kom til dyra næstum því jafn hissa og þegar hún sér guð á sam- komum Hvítasunnumanna. Á nákvæmlega sama tíma, eftir að þokan hefur hrifið Jón burt úr göt- unni og á meðan glerskerarnir stóðu fyrir framan kjallaradyrnar, þá situr Lárus legsteinasali í bíl sínum og hringsólar með honum um alla borg, sofandi undir stýri. Hann rumskar af og til, en sefur og dreymir að hann sé bráðkvaddur, þegar bíllinn, líkt og hann rati sjálfur um borgina, hemlar allt í einu fyrir framan Oddfellowhöll- ina. Þar inni hafði Lárus átt að halda ræðuna sem hann æfði á leiðinni út í bílinn, þegar Jón ávarpaði hann ofan af Ijósastaurnum. En fundurinn er fyrir löngu búinn þegar Lárus gengur í salinn, borðin auð og bara einn drykkfelldur barþjónn til staðar. Nei þessum degi átti Lárus leg- stcinasali aldrei eftir að gleyma og seinna, þegar hann í samræmi við sýn- ir spákonunnar var orðinn þingmaður, þá lagði hann ekki bara til, að allir Ijósastaurar í borginni yrðu lækkaðir, heldur á hann það stundum til að æsa sig upp í ræðupúlti þinghússins, og það er segin saga, að alltaf bandar hann þá með annarri hendinni, líkt og kasti hann grjóti. Nýjasía bók Einars Más Guðmundssonar er skáldsagan Vœngjasláííur í þakrennum, Al- menna bókafélagið, 1983. 91
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Storð : heimur í öðru ljósi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Storð : heimur í öðru ljósi
https://timarit.is/publication/1614

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.