Fréttablaðið - 20.11.2021, Page 80
Það ætti engan að undra að
jólabjórshefðin á sér mun
dýpri rætur í heimsmenn-
ingunni en J-dagurinn í
Danmörku, þegar Tuborg
brugghúsið hefur sölu á
jólabjórnum með frasanum
„Glædelig jul og godt Tub’år“.
jme@frettabladid.is
Fyrir hver jól keppast brugg-
hús víða um heim við að fram-
leiða bragðgóða, áhugaverða og
stundum stórskrítna jólabjóra.
Flest brugghús halda sig við að
bragðbæta bjórinn með jóla-
legu bragði og kryddi eins og
mandarínu, eplum, allrahanda,
kardimommum, kanil, stjörnu-
anís eða múskati, á meðan önnur
ganga mun lengra en góðu hófi
gegnir og skella til dæmis súrum
hvalseistum í bruggið eða jafnvel
grænum baunum og rauðkáli.
Jólabjór er ekki einn sérstakur
bruggstíll, heldur getur jólabjór
verið hvernig bjór sem er. Hann
getur verið boch, súrbjór, stout,
porter, lager, pale-ale, IPA, eða
hvað sem er annað. Flestir eru þó
sammála um að jólabjór þurfi að
minna á jólin á einhvern hátt eða
einskorðast að einhverju leyti við
jólatímann. En hvaðan kemur
eiginlega þessi jólabjórahefð?
Vetrarhátíð Satúrnusar
Jólabjórhefðin á rætur sínar að
rekja 2.000 ár aftur í tímann,
þegar menn brugguðu bjór fyrir
Satúrnusarhátíðina í Róm. Hátíðin
hófst 17. desember og var haldin
til heiðurs Satúrnusi að lokinni
vetrarsáningu. Jólabjórhefðin
hélt áfram gegnum aldirnar og á
miðöldum brugguðu munkar bjór
sérstaklega fyrir jólahátíðina.
Godt Tub’år
Jólabjórhefðin er misveigamikil
á milli landa en hún hefur heldur
betur skipað sinn sess í dönsku
skemmtanalífi. Þar í landi er
J-dagurinn haldinn hátíðlegur
hvert ár, fyrstu helgina í nóvember.
Hefðin hefur haldist allt frá árinu
1981. Þá setur Tuborg-jólabjórinn í
sölu með tilheyrandi bláklæddum
jólasveinum, fölskum jólalaga-
söng og jólabjórsötri. Í dag geta
Danir valið á milli hundraða ólíkra
jólabjórtegunda frá hinum ýmsu
brugghúsum, innlendum sem
erlendum.
Íslendingar vilja síður vera eftir-
bátur Dana og hafa undanfarin ár
haldið J-daginn hátíðlegan þegar
Jólatúborginn kemur á öldurhús
borgarinnar. Í fyrra þurfti hins
vegar að aflýsa hátíðinni í fyrsta
sinn vegna Covid-19 faraldursins.
Jólabjórinn á Íslandi
Jólabjórhefðin á Íslandi verður
sífellt veigameiri með hverju árinu.
Samkvæmt elstu fréttinni á heima-
síðu Vínbúðanna sem snýr að jóla-
bjór, frá árinu 2003, kemur fram að
heilar átta tegundir af jólabjór hafi
verið í sölu það árið. Sala á jólabjór
hófst í Vínbúðunum fimmtu-
daginn 4. nóvember og var þá von
á 130 ólíkum jólabjórtegundum í
rekka Vínbúðanna. Hefðin hefur
því tekið miklum stakkaskiptum á
stuttum tíma. Íslenskum brugg-
húsum fjölgar sífellt og eru þau
dugleg að taka þátt í jólabjórhefð-
inni og blanda í áhugaverða bjóra
með jólalegum innihaldsefnum og
aðferðum. n
Jólabjórinn ljúfi
Því ber að fagna þegar jólabjórinn kemur í krana öldurhúsanna og á hillur
vínbúðanna. Jólabjórinn á sér langa og skemmtilega sögu. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Soroptimistar um allan
heim standa fyrir 16 daga
átaki gegn kynbundnu
ofbeldi frá 25. nóvember
til 10. desember. Þetta er
í þrítugasta skiptið sem
Soroptimistar hefja slíkt
átak á alþjóðlegum baráttu-
degi gegn ofbeldi gagnvart
konum og stúlkum.
elin@frettabladid.is
Soroptimistar slást í för með
um sex þúsund samtökum í 187
löndum sem leidd eru af Sam-
einuðu þjóðunum til að vekja
athygli á kynbundnu of beldi með
slagorðinu #roðagyllumheiminn
eða #orangetheworld. Roðagyllti
liturinn er litur átaksins og táknar
bjartari framtíð án of beldis
gegn konum og stúlkum. Átakið
stendur til 10. desember en sá
dagur er alþjóðlegur mannrétt-
indadagur Sameinuðu þjóðanna
og jafnframt dagur Soroptimista.
Markmið 16 daga átaksins er
að beina athyglinni að alvar-
leika kynbundins of beldis,
fræða almenning og hvetja til að
of beldi verði stöðvað. Til þess þarf
vitundarvakningu. Ein af hverjum
þremur konum hefur verið beitt
of beldi á lífsleiðinni og er það eitt
útbreiddasta mannréttindabrot í
heimi.
Nærri 140 konur eru myrtar
á hverjum degi af nánum fjöl-
skyldumeðlimi. Um 15 milljónir
núlifandi unglingsstúlkna, 15-19
ára, hafa verið beittar kynferðis-
legu of beldi. Konur eru 72 prósent
allra þeirra í heiminum sem
hneppt eru í mansal og kynlífs-
þrælkun. 200 milljónir núlifandi
stúlkna og kvenna hafa verið
limlestar á kynfærum. Á hverri
mínútu eru 23 barnungar stúlkur
þvingaðar í hjónaband.
Áherslan á stafrænt ofbeldi
Sú hefð hefur skapast að ákveðið
málefni verður í brennidepli ár
hvert. Áhersla íslenskra Soroptim-
ista mun að þessu sinni beinast að
stafrænu ofbeldi. Stafrænt ofbeldi
fer fram gegnum tæki og tækni,
svo sem síma, tölvu og samfélags-
miðla. Notkun á samfélagsmiðlum
hefur aukist mikið undanfarin ár
og sífellt f leiri konur og stúlkur eru
áreittar, beittar ofbeldi, ofsóttar,
niðurlægðar eða þeim ógnað
gegnum þá.
Með auknu aðgengi að stafræn-
um miðlum og útbreiðslu þeirra
varð til ný og oft dulin nálgun á
of beldi gegn konum og stúlkum
þar sem oft er erfitt að rekja
of beldið, verja sig gegn því og
uppræta það. Það getur verið texti
eða mynd með skilaboðum eða
tölvupósti. Það er líka stafrænt
of beldi ef einhver er að fylgjast
með hvað þú gerir í símanum
þínum og hvað þú gerir á netinu.
Fólk sem verður fyrir stafrænu
of beldi upplifir oft ótta, reiði,
kvíða, þunglyndi og að hafa ekki
stjórn á eigin lífi. Fólki finnst það
ekki eiga neitt einkalíf, er líklegt
til að einangra sig og upplifa
hjálparleysi. Tíunda hver kona
hafði orðið fyrir stafrænu of beldi
fyrir heimsfaraldur Covid-19 en
fjöldinn hefur aukist mikið.
Ýmislegt verður gert þessa 16
daga til að beina athygli að staf-
rænu of beldi. Íslenskir Soropt im-
istar, sem nú eru um 600 talsins í
19 klúbbum um allt land, munu
vera sýnilegir meðal annars
með því að klæðast roðagylltum
lit, skrifa greinar í blöð og selja
appelsínugul blóm eða annan
varning. Byggingar í heimabyggð
klúbba verða lýstar upp í roða-
gylltum lit og einnig sendiráð
Íslands víða um heim.
Soroptimistar eru alþjóðleg
samtök kvenna sem hafa það
markmið að stuðla að jákvæðri
heimsmynd þar sem samtaka-
máttur kvenna nær fram því sem
sem völ er á. Samtökin vinna að
bættri stöðu kvenna, mannrétt-
indum öllum til handa sem og
jafnrétti, framförum og friði með
alþjóðlegri vináttu og skilningi.
Soroptimistar segja nei við kyn-
bundnu of beldi. n
Átak gegn kynbundnu ofbeldi
Soroptimistar
um víða veröld
standa þétt
saman gegn
kynbundnu of-
beldi undir slag-
orðinu #roða-
gyllumheiminn.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
Soroptimistar standa saman.
Jólabjórhefðin á
rætur sínar að
rekja 2.000 ár aftur í
tímann, þegar menn
brugguðu bjór fyrir
Satúrnusarhátíðina í
Róm.
Vorhús Hafnars t ræt i 71 Akureyr i www.vorhus . i s . . .
ÞÚ FINNUR GJÖFINA Í VEFVERSLUN VORHÚS
VIÐ PÖKKUM INN, SKRIFUM ÞÍNA KVEÐJU Á KORTIÐ
OG SENDUM BEINT TIL VIÐTAKANDA.
Síðumúli 31 - 108 Reykjavik - S: 562-9018 / 898-5618
info@arcticstar.is - www.arcticstar.is
SÆBJÚGNAHYLKI +D3 FYRIR HEILSUNA
Þjáist af liðverkjum og stirðleika?
Viðkvæmt ónæmiskerfi? - Of hár blóðþrýstingur?
Í Kína eru sæbjúgu þekkt sem heilsubótar-
fæði og notuð til bóta á mörgu meini.
Vítamín D:
• Stuðlar að eðlilegri upptöku kalsíums
og fosfórs.
• Stuðlar að viðhaldi beina, tanna
og vöðva.
• Stuðlar að bættri starfsemi ónæmis-
kerfisins.
• Eining hefur D-vítamín hlutverki
að gegna við frumuskiptingu.
ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA,
Framleiðandi er Arctic Star ehf.
Allar nánari upplýsingar fast á
www.arcticstar.is
Arctic Star Sæbjúgnahylki +D3
Varan fæst í flestum apótekum, heilsubúðum,
Hagkaupum, Fjarðakaup og Heimkaup.is
6 kynningarblað A L LT 20. nóvember 2021 LAUGARDAGUR