Heilsuvernd - 01.04.1946, Blaðsíða 14
12
HEILSUVERND
liafi verið uni fleiri, a’ð þar yrði rekið fyrirmyndar-
mjólkurbú og framleidd hrein og góð barnamjólk eftir
ströngustu kröfum, eins og vissulega hefir vakað fyrir
ágætismanninum Thor Jensen. Þar mætti framleiða
mjólk handa mörgum börnum, sem verða sjúkdómum
og vanþroska að bráð vegna skorts á óspilltri og lifandi
barnafæðu. En það er ekki nóg, að meðferð mjólkur-
innar sé í engu ábótavant. það verður að gera sömu
kröfur til meðferðar kúnna og fóðrunar þeirra.
Vanfóðrun verður kúm að bana? Eg sannfrétti nýiega
lærdómsríkt dæmi austan úr sveitum, sem sýnir hve
viðsjárverðar nýjustu fóðrunaraðferðir geta reynzt.
Á smábúi einu austanfjalls eru 1 kýr. Mjólkin úr
þeim er seld innansveitar. Einn morgun, þegar komið
er i fjósið, liggur ein kýrin steindauð á básnum. Eftir
nokkra daga fer önnur kýrin sömu Ieiðina. Eittbvað af
innýflum kúnna var sent á rannsóknarstofu, en rann-
sóknin leiddi ekkert í ljós um orsakirnar. Ég spurðist
fyrir um fóður kúnna á þessum bæ. Ég fékk þær upp-
iýsingar, að kýrnar iiefðu verið fóðraðar á síðslegnu
bevi, og að á túnið hefði verið borinn tilbúinn áburður
undanfarin 4 ár. Auk þess var kúnum gefið kraftfóður,
rúgmjöl og síldarmjöl, sennilega meira af síldarmjöli.
En í fyrra fengu þær i fóðurbæti rúgmjöl, maís og síld-
armjöl til þriðjunga, og bæði árin var fóðurbætisgjöf-
in samtals 5 pund á dag. í fvrra veiktist ein kýrin, en
benni batnaði aftur, og það var hún, sem drapst fyrst.
Auðvitað datt mönnum fyrst í hug, að hér væru ein-
hverjir bráðdrepandi sýklar að verki. En hvað sem öll-
um sýklum líður, þá leikur lítill vafi á því, að frum-
orsökin er vanfóðrun, ekki skortur á liitaeiningum eða
fóðureiningum, heldur röskun á jafnvægi þeirra efna,
sem kúafóður þarf að innihalda, afleiðingar af mikilli
fóðurbætisgjöf og kúnstræktuðu heyi.
Enginn skyldi láta sér til liugar koma, að mjólk úr
vanfóðruðum kúm sé fullkomin eða lieilnæm mjólk.